18.02.1980
Efri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (898)

44. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Frv. það til breytinga á gildandi tekjuskattslögum, sem er nú til 1. umr., hefur legið fyrir þinginu í tvo mánuði. Það hefur sætt sameiginlegri athugun fjh- og viðskn. beggja deilda Alþingis, en óneitanlega eru tveir mánuðir ekki langur tími til þess að fjalla um svo flókið og veigamikið mál. Engu að síður er nú ljóst að brýna nauðsyn ber til að ljúka afgreiðslu þessa máls hið fyrsta til að ekki verði nein vandræði við framkvæmd álagningar skatta á þessu ári.

Lög nr. 40/1978 ásamt þeim breytingum, sem í þessu frv. felast, eru tvímælalaust róttækasta og viðamesta breyting sem hefur verið gerð á beinni skattlagningu frá því að almennur tekjuskattur var lögleiddur hér á landi. Slík breyting eða umbylting á svo viðamiklu sviði fer auðvitað ekki fram átakalaust eða erfiðislaust.

Ég skýrði frá því við umræður í hv. Nd. fyrr í dag, að ýmsir hefðu orðið til að vara við því, að fen væri fram undan í þessum skattamálum, bæði vegna þess að mikil óvissa væri ríkjandi um það, hver yrðu áhrif þessarar lagasetningar, og eins um hitt, hverjar tekjurnar yrðu. Ég skýrði einnig frá því í þeim umræðum, að ég hefði rætt þetta mál ítarlega við ýmsa þá aðila, sem mest hafa undirbúið þessa breytingu, og lagt fyrir þá spurningar m.a. um það, hvort menn teldu að svo alvarleg vandamál væru framundan að ástæða væri til að hugleiða það í alvöru að leggja á samkv. gömlu lögunum og fresta þessu nýja skattakerfi um eitt ár. En það var samdóma álit þeirra manna sem ég ræddi við, að jafnvel þótt slíkt kynni kannske að hvarfla að mönnum, þá væri það óframkvæmanlegt, sporið hefði verið stigið og ekki yrði aftur snúið, lögin hefðu verið í gildi allt síðasta ár og það mundi hafa margvísleg vandamál og réttaróvissu í för með sér ef framkvæmd laganna yrði frestað.

Hinu er ekki að leyna, að menn hafa þungar áhyggjur af því, að veruleg breyting verði í skattlagningu hjá mörgum einstaklingum og þá alveg sérstaklega í hópi hjóna. Nú hverfur skattfrádráttur vegna vinnu eiginkonu utan heimilis, og vissulega hefði manni fundist koma til greina að slíkt stökk hefði verið tekið í einhverjum áföngum. En það hefur nú orðið úr að skella þessu yfir í einu lagi, og er ekki lengur neitt um það að sakast. Því verður ekki héðan af breytt.

Eins er það með þær áhyggjur sem menn hafa varðandi skattlagningu á atvinnurekstur. Það er ljóst, að samkv. þessum nýju lögum er unnt að skattleggja rekstraraðila sem rekur fyrirtæki með miklu tapi og á ekki einu sinni fyrir skuldum, einfaldlega vegna þess að verið er að færa verðbólguhagnaðinn, sem maðurinn hefur af skuldum sínum, sem tekjur og láta hann gjalda skatt af þeim. Vissulega hefði verið eðlilegra að gerð hefði verið rækileg könnun á því fyrir fram, hvernig atvinnureksturinn kemur út úr skattlagningu af slíku tagi. Það má vera að sumar greinar sleppi óþarflega vel, en aðrar komi mjög hastarlega út úr þessu. Ég hefði talið eðlilegast að svo sem 200–300 fyrirtæki hefðu verið tekin út úr og gerð könnun á því, hvernig þau koma út í þessari skattlagningu, og lögin endurskoðuð í ljósi þess. Því er ekki að leyna, að það að láta lögin koma nú til fullra framkvæmda er tilraunastarfsemi og getur brugðið til beggja vona hvernig fer með þá tilraun.

En þrátt fyrir þá fyrirvara, sem ég hef hér gert, er skoðun mín, að meginefni þessara laga horfi til hins betra og á þeim séu margir góðir kostir og þá fyrst og fremst það, að reynt er að samræma tekjuhugtakið því verðbólguástandi sem þjóðin býr við. Auðvitað hefur verðbólgan átt hvað mestan þátt í misrétti í skattamálum á undanförnum árum. Eldri tekjuskattslög tóku að vísu visst tillit til verðbólgu á ákveðnum sviðum, en að meginstefnu var tekjuhugtak þeirra á því byggt, að verðgildi peninga væri stöðugt. Þetta olli því, að margir þeir rekstraraðilar, sem í raun bættu stöðu sína fjárhagslega á tilteknu skattatímabili, komu út með reikningslegu tapi og voru því skattlausir. Jafnframt voru svo einnig aðrir aðilar, sem stóðu fjárhagslega verr í lok tímabils en í upphafi þess, gerðir upp með reikningslegum hagnaði og því skattlagðir þrátt fyrir slæma afkomu. Þetta misrétti í skattamálum hefur svo aftur verið einn aðalhvati þess, að fjölmargir rekstraraðilar hafa beint kröftum sínum að því að hagnast á verðbólgunni með rekstrarlega óarðbærum en verðtryggðum fjárfestinum, t.d. í steinsteypu, í stað þess að leggja áherslu á arðbæran rekstur.

Mikill hluti þessa frv. beinist að atvinnurekstrinum og er grundvallartilgangur þess að útfæra og fullkomna frekar þá stefnu sem mörkuð var í lögunum frá 1978 og lýtur að aðlögun tekjuhugtaksins að verðbólgunni. Frv. hefur sætt nokkuð miklum breytingum í meðförum í Nd., sem var að enda við að afgreiða málið. Það er orðið allmikið að vöxtum, en hafa ber í huga að í svo flóknum lögum sem tekjuskattslögin eru getur ein efnisbreyting kostað breytingar á texta fjögurra til fimm lagagreina. Eru því efnisbreytingar frv. alls ekki eins margþættar og viðamiklar og umfang þess bendir til.

Ég tel ekki ástæðu til að tíunda allar þær efnisbreytingar, sem í frv. þessu felast, og vil leyfa mér að vísa til frv, og grg. sem því fylgir. Ef menn óska sérstaklega eftir ákveðnum skýringum á einstökum greinum er sjálfsagt að verða við þeirri ósk, en tímans vegna leyfi ég mér að stytta mál mitt eins og ég get. Það var ekki áformað að halda hér uppi umræðum lengur en fram að kvöldmat og ætlunin að reyna að koma öðru frv. til nefndar. Ég minni á það, að á þessu stigi eru ekki gerðar till. um skattstiga, persónuafslátt eða aðrar tölur eða hlutföll í tekjuskattsálagningarkerfinu. Verður frv. um það efni flutt að þremur vikum liðnum, þegar það mál hefur verið undirbúið frekar. Það er því ljóst, að tekjuskattslögin koma hér til umræðu og afgreiðslu á síðara stigi, og hafi menn einhverjar sérstakar till. og hugmyndir fram að færa, sem þurfa nánari athugunar við, þá gefst gott tóm til þess að undirbúa þær og láta athuga þær frekar. Það voru því tilmæli mín til Nd. Alþingis í umræðum áðan, að þær brtt., sem ekki væri samkomulag um í fjh.- og viðskn., yrðu dregnar til baka og bornar fram að nýju þegar frv. kemur aftur til meðferðar eftir 3–4 vikur. Brtt., sem fram hafði komið, var dregin til baka, en atkvgr. fór fram um tvær till. deildarmanna. Önnur till. var samþ. Var það till. frá hv. þm. Vilmundi Gylfasyni og Árna Gunnarssyni og snertir það atriði, að lífeyrir frá Tryggingastofnun ríkisins verði frádráttarbær til skatts.

Ég hef spurt að því, hvort þetta atriði hafi ekki komið til umræðu í fjh.- og viðskn. þingsins á þeim tíma sem þær hafa haft málið til meðferðar, og mér er sagt að svo hafi aldrei verið, engin hugmynd af þessu tagi komið fram, engin till. Svo kemur fram till. í dag sem menn hafa ekki séð áður, og þá er því algjörlega neitað, að menn fái að skoða þessa till. neitt frekar eða átta sig á því, hvaða afleiðingar hún kunni að hafa eða hvort hún er rétt tilfærð inn í lagatextann. Nefnd fær ekki að skoða hana. Hún verður bara að koma til atkvgr. tafarlaust og þar er hún samþykkt. Svo þegar fundi Nd. lýkur hefst að sjálfsögðu ítarleg umræða manna á milli um það, hvort ekki muni eitthvað vanta í þessa till. og hvernig beri að skilja hana. Ég get upplýst það hér, að þeir, sem tóku þátt í þeirri umræðu að deildarfundinum loknum, höfðu jafnmargar skoðanir á því og mennirnir voru margir. Ég get því ekki upplýst hv. deild um það, hvað felst í raun og veru í þessari till. Sumir segja að þar felist nákvæmlega ekki neitt, því það hafi vantað ákveðin orð inn í till., aðrir segja að hún feli það í sér, að bæði eftirlaun og lífeyrir verði frádráttarbær til skatts, en þeir þriðju segja að það eigi einungis við um lífeyrinn. Það er því greinilegt, að fjh.- og viðskn. deildarinnar hefur verk að vinna, að kanna þetta atriði, átta sig á þessu máfi. Ég verð að segja það, að mér finnst það ekkert sjálfgefið að þeir menn, sem t.d. fá greiðslur úr fleiri en einum lífeyrissjóði — það eru dæmi um að menn fái greiðslur úr allt að þremur eða fjórum lífeyrissjóðum, t.d. fyrrv. ráðherrar — fái allan sinn lífeyri dreginn frá tekjum áður en skattur er á lagður. Það er auðvitað alls ekki sjálfgefið eða eðlilegt. En kannske á alls ekki að skilja till. á þennan veg. Má vera að þarna sé einungis átt við lífeyrisgreiðslurnar frá Tryggingastofnun ríkisins, þennan fasta lífeyri sem um getur í tryggingalögum. Þetta get ég ekki útskýrt frekar, en óska eindregið eftir því, að fjh.- og viðskn. skoði þetta sér á parti og geri þá tilraun til að lagfæra þetta, hugsanlega setja ákveðið hámark á það, sem er frádráttarbært í slíkum tilvikum, og jafnvel að samræma það þannig að það falli með eðlilegum hætti inn í lagatextann.

Ég vil svo geta þess, að í brtt. frá hv. fjh.- og viðskn. var gerð till. um að breyta hámörkum einstakra frádráttarliða til samræmis við breytt verðlag, en þau eru nauðsynleg til þess að framteljandi geti fyllt út skattskýrslu sína. Þessi hámörk eru almennt 65% hærri en þau voru í lögunum frá 1978.

Að lokum vil ég geta þess í framhaldi af því sem ég sagði áðan, að ég tel ekki að þeir, sem greiddu atkv. gegn þessari till. Vilmundar Gylfasonar og fleiri till. sem þar voru til umræðu, hafi verið að lýsa yfir andstöðu sinni við efni þessara till., en þeir töldu almennt nauðsynlegt og sjálfsagt að fá ofurlitið lengri tíma en gafst á þessum fundi deildarinnar í dag til að athuga málið.

Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að frv. þessu verði vísað til fjh.-og viðskn. að lokinni þessari umr.