19.02.1980
Sameinað þing: 25. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (918)

Kosning sjö manna og jafnmargra varamanna í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins

Forseti (Jón Helgason):

Vegna ábendingar hv. 1. þm. Reykn. um varamenn í stjórn Framkvæmdastofnunar vil ég geta þess, að ég fór eftir því, að nöfnum á A-lista er stillt upp í tvennu lagi, aðalmenn og varamenn sitt á hvorum miðanum. Tók ég tvo efstu menn af hvorum miða í samræmi við atkvæðamagn. Hins vegar mun það vera rétt ábending hjá hv. þm., að raunverulega eigi að vera í einni röð aðal- og varamenn. Mun því rétt vera, ef þessari röð er haldið, að varamenn af A-lista séu Ólafur G. Einarsson og Halldór Blöndal.