20.02.1980
Efri deild: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (948)

44. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég vil lýsa undrun minni yfir þessari furðulegu ræðu hæstv. ráðh. Hann ásakar okkur þm. nánast fyrir það, að við höfum ekki sjálfsvirðingu og séum að vinna hér út í bláinn, ef ég man eitthvað af þeim orðum sem hann hafði hér um vinnubrögð okkar. Hæstv. ráðh. sagði sjálfur í sjónvarpi fyrir alþjóð í gær, að hann vissi ekkert hvernig þau skattalög, sem hann er að beita sér fyrir að verði sett á Alþ., komi út. Og svo kemur hann hingað og ásakar okkur fyrir það að við vitum ekkert hvað við erum að gera.

Ég vil benda hæstv. ráðh. á að það, sem hann er að tala um að þurfi skuggamyndavél til þess að skoða, er á þskj. 152 og er búið að liggja hér frammi á hinu háa Alþingi í nokkrar vikur. (Fjmrh.: Væri nú ekki rétt að skoða aðra möguleika?) Það er sjálfsagt að skoða aðra möguleika, hæstv. ráðh., en ég held að hv. þm. hafi allar upplýsingar um hvernig þessir skattstigar, sem við gerum hár till. um, komi út og það verði ekkert betrumbætt með neinum skuggamyndavélum. Það, sem vakir fyrir okkur tillöguflm., er einfaldlega sú tillitssemi við almenning í landinu að hann fái að vita það fyrr en einhvern tíma síðla í vor, hvaða skattaálögur hann á að bera á þessu ári. Ég veit að það er mismunandi tillitssemi sem hv. þm. hafa sýnt skattgreiðendum í þessu landi á undanförnum árum. Sumir hafa látið sig hafa það að leggja á afturvirka skatta eftir að búið var að leggja skatta á. Það eru vinnubrögð sem við sjálfstæðismenn viljum ekki að séu uppi höfð. Við höfum a.m.k. ekki viljað það fram að þessu. Það kunna að vera einhverjir sem hafa skipt um skoðun núna. Þess vegna held ég að þetta frv. eða þessar brtt. séu alveg ljósar.

Í máli eins af flm. komu fram glöggar upplýsingar um til hvers þessir skattstigar og þessar brtt. mundu leiða í skattlagningu. Það er auk heldur á þskj. 152 að finna fjölmargar upplýsingar um þetta mál. Ég sagði í ræðu minni áðan, að þessar brtt. séu hliðstæðar nokkrum greinum í því frv. sem liggur frammi hér á hinu háa Alþingi á þskj. 152. Þar er sem sagt að finna þessar upplýsingar. Ég held því að hv. d. eigi ekki að vera neitt að vanbúnaði að greiða atkv. um þetta. Það þarf bara að koma fram við þá atkvgr. hvort menn eru fylgjandi þeirri grundvallarstefnu sem í þessu er fótgin. Eru menn fylgjandi því að afnema í áföngum tekjuskatt af almennum launatekjum eða eru menn það ekki? Það verður að koma í ljós við atkvgr.