20.02.1980
Efri deild: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (955)
44. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Eins og fram hefur komið hér í umræðunum hafa þessar till. ekki fengið neina athugun í n. Eins og hæstv. forsrh. sagði áðan er nauðsynlegt að mjög ítarleg skoðun fari fram í nefndum þingsins á skattstigum. Engar slíkar óskir komu fram fyrr en á allra síðustu dögum. Með tilliti til þess, að ég tel nauðsynlegt að þingið vandi vel slíkar ákvarðanir, mun ég beita mér fyrir því, að bæði í þinghléi og strax þegar þing kemur saman mun hæstv. fjh.- og viðskn. þessarar d. vinna vandlega að athugun þessa máls, en tel ekki tímabært að taka ákvörðun um það nú og segi nei.