20.02.1980
Neðri deild: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í B-deild Alþingistíðinda. (965)

110. mál, lögskráning sjómanna

Flm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil byrja mál mitt á því að þakka ræðumönnum fyrir undirtektir þeirra við þetta frv., en vil þó vegna orða hv. 5. þm. Vestf. taka fram, að það eru hin furðulegustu atriði sem hafa verið tekin inn í hinn svokallaða félagsmálapakka til sjómanna, þ. á m. atriði sem maður telur hinn sjálfsagðasta hlut í sambandi við öryggismál. Þá undanskil ég algjörlega eðlilega félagslega þróun í þjóðfélagi okkar sem aðilar allra þjóðþinga eiga að geta flutt frv. um og barist fyrir að ná fram, en eiga ekki alltaf að þurfa að fara inn á viðskiptasvið viðkomandi vinstri ríkisstjórna og verkalýðshreyfingar. — En það, sem ég bendi á í sambandi við félagsmálapakkann sérstaklega og ég hef ekki enn þá fyrirgefið sumum félögum mínum í íslenskri sjómannastétt að fara að semja um sem viðskiptavöru, vegna þess að ég tel svo sjálfsagt að því sé komið á, er m.a. einn og annar öryggisbúnaður sem er sjálfsagður um borð í flotanum. Ég veit ekki hvaða aðilar meðal launþega, sem í landi starfa, þurfa að gefa eftir í launum sínum, t.d. ef það eru sett upp ný umferðarmerki á Suðurlandsbrautinni. Það er eitthvað álíka sem fyrri ríkisstj. samdi um og taldi rétt að bjóða sjómannastéttinni.

En vegna þess, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, þá má vel vera og ég efa ekki að þess muni finnast dæmi, að á samningum einhverra aðila, sem samið hafa um tryggingar, sé eitthvert ólag. En ég bendi þá á að þeir hafa þá vörn að þeir eru við til þess að fylgjast með slíku sjálfir.

Þeir hafa trúnaðarmenn í landi til að vinna fyrir sig, og þeir fylgjast með málum.

Lögskráningu í lögum var breytt á einu stigi í þá átt að gefa aukið frjálsræði til útgerðar fiskiskipa í sambandi við lögskráningu, oft og tíðum á þann veg að viðkomandi aðilar, sem skráðir eru um borð í skipin, koma þar ekki nærri. Þeir eru kannske ekki lögskráðir þegar skipið er komið út á sjó. Þeir eru búnir að vera úti á sjó marga daga þegar þeir eru lögskráðir. Þeir geta jafnvel verið dauðir, og þess finnast því miður dæmi. Því er um svo mikla sérstöðu í sambandi við þetta mál að ræða að ég vil ekki leggja sjómenn að líku við aðrar stéttir landsins í sambandi við slík mál.

Til viðbótar skal ég taka það fram, að þess vegna er svo tekið til orða hjá mér í frumvarpsflutningi mínum að greiðslan sé á ábyrgð ríkissjóðs, að í og með hef ég í huga að viðkomandi embættismaður sé fríaður af því að að sjálfsögðu geta mannleg mistök alltaf átt sér stað. En það er þá í hendi viðkomandi yfirmanns viðkomandi stofnunar, ríkissjóðs í þessu tilfelli, að gera ráðstafanir til þess og meta hvort eigi að fara að þeim embættismanni með skaðabótakröfu eða ekki. Ég veit að reynt er að gæta þessa. Ég vil líka undirstrika það sem kom fram í orðum hv. þm. Karvels Pálmasonar. Við vitum báðir, því að við höfum við þau mál fengist, að víða er misbrestur á. Við vitum líka að það er afskaplega erfitt að gegna starfi skráningarstjóra. Það eru t.d. hreppstjórar sem þarf að kalla til að nóttu sem degi undir vissum kringumstæðum. Ég vil því ekki alfarið gefa sök þeim hópi manna sem gegnir þessu starfi. Því segi ég að það sé eðlilegt, ef mistök koma fyrir, eins og við höfum hér átakanlegt dæmi um, þá sé það ríkissjóður sjálfur sem beri ábyrgðina. Að sjálfsögðu getur hann tryggt sig fyrir slíku ef hann telur að mistökin verði í svo miklum mæli að þess sé þörf.