20.02.1980
Neðri deild: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í B-deild Alþingistíðinda. (977)
109. mál, tollskrá
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Hér liggur fyrir frv. um breytingu á lögum um tollskrá, um lækkun gjalda af bifreiðum, sem má nema allt að 750 þús. kr., og skattalækkun að meðtöldu innflutningsgjaldi allt að 1.5 millj. Ég fyrir mitt leyti er mjög hlynntur þessu frv. og er sammála því, að það sé athugað gaumgæfilega í n. Ég tel, að ekki hafi verið nóg gert í þessum efnum á undanförnum árum, og ég tel sömuleiðis, að það sé svo margt annað í þessu þjóðfélagi þar sem fé sé verr varið en til að koma til móts við þessa aðila.
Umræður hafa farið nokkuð út fyrir frv. sjálft. Einkum finnst mér hæstv. félmrh. hafa farið töluvert út fyrir umræðuefnið, sérstaklega út af ræðu hv. 7. landsk. þm. Hæstv. félmrh. taldi að hv. 7. landsk. þm. hefði verið reiður þegar hann flutti sína ræðu. Mér finnst þetta nú ekki bera vott um mikla skapstillingu hjá hæstv. ráðh., enda er varla við því að búast að honum líði sérstaklega vel. Það er búið að króa hann þarna af við heitan miðstöðvarofn og bræður hans í ríkisstj. og samherjar ætla að hita hann hægt. Það er þegar farið að sýna sig, að hann er farinn að fara ákaflega í höfuðið á honum, þessi hiti frá ofninum — og kannske líka samfélagið við hina. Þetta er greindur og gegn maður, hæstv. ráðh., en það er auðvitað hægt að fara þannig með heilsu manna að þeir tapi sér mjög, eins og hann gerði hér í ræðu sinni áðan.
Ég sá ekki nokkurn vott þess að 7. landsk. þm. væri reiður þegar hann talaði hér áðan. Hann spurði bara ósköp kurteisislega, eins og hans var von og vísa, hvernig hæstv. trmrh. ætlaði að sjá fyrir þessu fjármagni. Það er ósköp eðlilegt, að mönnum verði dálítið bilt við eftir að hafa fengið alveg sérstaklega íhaldssaman fjmrh. eins og nú er. Sérstaklega hefur þeim mönnum orðið bilt við sem hafa stutt Alþb., skal ég segja hæstv. félmrh., þegar þeir hafa séð hæstv. fjmrh. í sínu nýja gervi á sjónvarpsskerminum eða í viðtölum við blöð.
Hv. 7. landsk. þm. sagði að fjmrh. ætlaði að hækka skattana á landsmönnum og hæstv. félmrh. tók undir það með honum, að þarfirnar í þessu þ jóðfélagi væru margar, þar væri margt ógert — vitaskuld er það alveg rétt — og því þyrfti að hækka skatta. En ég þekki þrjá menn í hæstv. ríkisstj. sem vilja lækka skattana. Þeir eru horfnir, þeir sjást ekki núna, þeir eru kannske að undirbúa málið. Ég veit ekki annað en að forsrh. þessarar ríkisstj., landbrh. og dóms- og kirkjumálaráðh. hafi í Sjálfstfl. staðið að samþykkt um það að afnema alla skatta sem vinstri stjórnin lagði á sem hæstv. félmrh. var í og hæstv. fjmrh., — þeir stóðu að þeirri samþykkt, að þeir yrðu afnumdir. Það hefði því verið fróðlegt — jafnhliða því sem þessir ráðherrar telja að hækka beri skattana á landslýð — að heyra frá hinum, þessum þremur, hvernig þeir ætli að snúast við. Og mér er ekki grunlaust um að einn stuðningsmaður þessarar ríkisstj., sem nú er í framboði eða verður í framboði við forsetakjör, sé harðari en nokkur maður annar af þessum 60 í því að afnema þessa skatta. Hann stóð upp hér fyrir jólin í sambandi við staðfestingu þeirra brbl. og lagafrv., sem þá lágu fyrir, og talaði mjög harkalega gegn þeim. (Gripið fram í: Hefur landbrh. flutt einhverjar sparnaðarræður?) Nei, ekki skildist mér að það væri bein sparnaðarræða sem var flutt við setningu Búnaðarþings, síður en svo.
Það væri fróðlegt að fá að vita hvað þessi blessuð stjórn er að fara og hvort hún viti sjálf hvað hún er að fara. Það er ekki nóg að segja að það liggi á að mynda ríkisstj. í landinu því að Alþ. sé óstarfhæft, eins og hv. 3. þm. Reykv. sagði þegar hann skrifaði undir reisupassa forsrh. til Bessastaða. Svo á að reka Alþ. heim, eftir að þessi ríkisstj. er komin, og segja: Nú hafið þið ekkert að gera, skrattarnir ykkar, farið þið bara heim. — Það er skemmtilegt framundan í þessu þjóðfélagi. Hefur íslenska þjóðin höndlað hamingjuna með tilkomu þessarar ríkisstj.? Og svo eru menn í þessari stjórn sælir og glaðir yfir því, hvað þjóðin fagni þessari stjórnarmyndun.
Ég minnist þess, að ég var þá held ég 17–18 ára — nú er einn af guðfeðrunum að biðja um orðið — þegar Chamberlain kom frá því að semja við Hitler um frið um alla eilífð. Honum var fagnað á Heathrow-flugvelli af þúsundum manna og allir sögðu að Chamberlain væri einhver mesti friðarhöfðingi, hann hefði tryggt frið í heiminum. Það leið ekki langur tími þar til þeir, sem fögnuðu Chamberlain á Heathrow — flugvelli, könnuðust ekki við að hafa komið þangað. Og hvað skeði svo næst á eftir?
Nei, það er ekki ástæða til þess fyrir menn að fagna á meðan þeir hafa ekkert sýnt og ekkert gert. Það er ekki nóg að mynda ríkisstj. ef ekkert annað fylgir með, ef einn segist ætla að afnema skatta, annar segist ætla að bæta við skattana, þriðji segist ætla að beita aðhaldi í öllu og fjórði flytur svo ræðu um svona allt að 15 – 16 milljarða ný útgjöld. Hvar á að taka þau? Hæstv. félmrh. segir: Við eigum að hækka skattana, það er enn þá til fólk í þessu landi sem á peninga. Við verðum að taka þessa peninga af því.
En það er líka til annað. Þeir sem skara fram úr, þeir sem leggja mikið á sig og vinna lengi, þeir sem hafa háar tekjur í þjóðfélaginu eru ekki að gera þetta eingöngu fyrir samfélagið, ekkert frekar en ráðh. eru að gera það bara fyrir samfélagið að vera ráðh. Þeir vilja hafa eitthvað eftir af tekjunum. Við skulum segja að haldið sé áfram að hækka skatta taka meira til samfélagsins af þeim sem hafa háar tekjur og leggja hart að sér við vinnu.
Hvað skeður þá? Ef á að fara að taka kannske 90% af þessu fólki þegar komið er upp í ákveðna upphæð, þá minnkar það bara við sig vinnuna, hættir að vinna. Við skulum taka tekjuháar stéttir í þessu þjóðfélagi. Við skulum taka stétt eins og læknastéttina. Hvernig svara þeir? Þeir svara því með minnkandi vinnu, lengra fríi. Við skulum taka aflasæla skipstjóra eða sjómenn á aflasælum skipum, sem hafa góðar tekjur af því að þeir leggja mikið og hart að sér og eiga langan vinnudag. Ef á að fara að taka af þeim allt, þá vilja þeir heldur vera lengur heima á sínu heimili og dytta að sínu húsi og vera með sinni fjölskyldu. Þannig má lengi telja. Það er ekki nóg að vera gripinn skattabrjálæðishækkunum og sjá ekkert annað og vilja ekkert annað. Það verður ekki borgað með þeim hækkunum, þegar fólk er hætt að vinna og farið að draga við sig.
Hæstv. trmrh. sagði að enginn hefði bent á að hægt væri að lækka útgjöld til stærsta og dýrasta málaflokksins í þessu þjóðfélagi, heilbrigðis- og tryggingamála. Ég sé ekki að hægt sé að lækka mikið lífeyristryggingarnar nema lækka lífeyrisgreiðslurnar til einstaklinga. Minnsti kostnaður við lífeyristryggingarnar er útgreiðsla á vegum Tryggingastofnunar, það vita allir. Öðru máli gegnir um sjúkratryggingarnar. Þar er auðvitað ýmislegt hægt að færa til betri vegar, en til þess þarf stór og mikil átök. Ég geri ekki ráð fyrir því, að menn séu tilbúnir á nokkrum dögum eða vikum í slík átök, en vafalaust má þar lækka ýmislegt, sem maður gæti komið inn á við allt aðrar aðstæður en hér eru. Og ég segi fyrir mitt leyti, að ég vil standa með hvaða ríkisstj. sem situr — og þar með þessari — að því að beita auknu aðhaldi í rekstri þjóðfélagsins og þjóðarbúskaparins. Ég ætla ekki að taka undir hvaða óskir og kröfur sem gerðar eru á hendur samfélaginu, því að það er mín skoðun að við verðum að setja um það ákveðið mark hvað við getum gengið langt í sköttum á einstaklinga í þjóðfélaginu. Og þá verður þetta að fylgjast að, hvort sem okkur líkar sú stjórn sem situr vel eða illa.
Við vitum að of miklar skattahækkanir draga úr vinnu manna, draga úr áhuga þeirra að auka tekjur sínar. Þetta verðum við að hafa fast í huga þegar við ræðum þessi mál.
Ég ætlaði mér ekki að fara svo geyst út í umr. út af þessu frv. nema vegna þess sem á undan er gengið. En ég ætla að lokum að segja hæstv. félmrh. það — og í fullri vinsemd því að mér er síður en svo neitt í nöp við hann –að þegar hann kemur hér til þess að ræða um mál sem falla undir hans málaflokk eða málaflokka, þá skiptir þar ekki máli þó að hann hafi nú um hríð trúlofast litlum hluta af Sjálfstfl. Sjálfstfl. mun lifa eftir sem áður, þrátt fyrir þessa trúlofun Gunnars Thoroddsens og hans fylgifiska og Alþb. og Framsfl., og við sjálfstæðismenn — ég segi: við sjálfstæðismenn, sem virðum samþykktir og gerðir meiri hl. í okkar flokki á hverjum tíma, munum í afstöðu til þessarar ríkisstj. láta málefni ráða. (Gripið fram í: Er þetta um tollskrána?) Nei, þetta er aðeins utan við hana. Við munum láta málefni ráða hverju sinni. Við viljum standa með ríkisstj. í góðum og skynsamlegum málum. En ég tel fráleitt að Alþ. sé sent heim, eins og ég tel sjálfsagðan hlut að þingfundir falli niður á meðan Norðurlandaráðsþing er, en lengri töf á störtum Alþingis má ekki eiga sér stað, vegna þess að kosningar og annað sem þeim fylgir, stjórnarmyndun og þess háttar hafa tafið þingstörfin nógu lengi. Þau eru mörg mál sem bíða hér afgreiðslu og það er engin ástæða til að senda þingið heim, enda sé ég ekki — þó að þingið sé starfandi — að ráðh. sýni því þá virðingu að sitja hér í sætum sínum. Hæstv. fjmrh. hefur sest hér í sitt sæti öðru hverju, eins og þegar kría sest á stein. Hinir fjórir hafa ekki sést síðan á fyrstu fimm mínútunum. Og hérna situr sá eini sem er við miðstöðvarofninn.