19.12.1979
Neðri deild: 5. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (99)
42. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fjmrh. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Út af spurningu hv. 5. þm. Vestf. vitna ég í aths. með frv. til fjárlaga fyrir árið 1980, sem lagt var fram í upphafi þessa þinghalds. Þar segir á bls. 148 um þær breytingar, sem núv. ríkisstj. hefur gert á því fjárlfrv. sem lagt var fram í okt., um Kröfluvirkjun, með leyfi hæstv. forseta:
„Lánsfjáröflun er aukin um 450 millj. kr. og nemur alls 1200 millj. kr. Þessi breyting er gerð til þess að mögulegt verði að bora a.m.k. tvær holur í hliðum Kröflu og ganga frá nauðsynlegum tengingum við virkjunina.“ — Síðar segir, með leyfi forseta: „Hitt er ljóst, að skoða verður framlög til borana við Kröflu sem hreint áhættufé.“
Þetta er sem sé till. ríkisstj. eins og hún er fram borin í frv. til fjárl. Það er að sjálfsögðu með þessi mál eins og önnur, að það er Alþ. sem hefur síðasta orðið.
Mér er að sjálfsögðu mikil ánægja að því, að menn skuli vera ekki síður ánægðir en ég með það, að nú skuli það hafa gerst hvað eftir annað, sem ekki hefur gerst í heil fjögur ár, að ríkissjóður sé í plús í hlaupareikningum sínum í Seðlabanka Íslands. Skv. síðasta dagmiða frá ríkisbókhaldi erum við núna í plús um tæpa 3.7 milljarða, en því miður verð ég að hryggja þingheim með því, að við eigum ekki von á, hæstv. núv. ríkisstj., að geta haldið þessu forskoti til áramóta. Hins vegar skýrði ég frá því, að allar líkur bendi nú til þess, að sú áætlun um afkomu ríkissjóðs, sem gerð var í ágústmánuði s.l. — í lok ágústmánaðar, standist og vel það, þannig að þær ráðstafanir, sem gerðar voru fyrir þremur mánuðum til þess að tryggja — ja, eigum við að segja jafnvægi í ríkisfjármálunum það sem eftir var ársins, menn geta skoðað það hvernig sem þeir vilja, virðast ætla að standast, þrátt fyrir mjög aukinn verðbólguhraða, og vonandi rúmlega það, eftir því sem við best vitum nú.
Hver lánsfjárþörfin eða hver yfirdráttarþörf ríkissjóðs verður í janúarmánuði fer auðvitað m.a. eftir því, hvort hv. Alþ. fæst til að framlengja þau skattalög fyrrv. ríkisstj. sem eiga að falla úr gildi nú um áramótin, en fyrrv. ríkisstj. gerði ráð fyrir að þyrfti að framlengja á næsta ári og núv. ríkisstj. hefur leitað eftir samþykki Alþingis til að framlengd verði. Það segir sig auðvitað sjálft, að það fer mjög mikið eftir úrslitum þeirra mála hvernig fjárhagur ríkissjóðs verður í upphafi næsta árs. Hins vegar er alveg ljóst, að það mun fara nú eins og jafnan áður að ýmis útgjöld falla til greiðslu í upphafi næsta árs sem ekki koma tekjur jafnóðum inn fyrir, þannig að við verðum að gera ráð fyrir því, a.m.k. að einhverju leyti, að jafna þurfi þann halla með þeim úrræðum sem aðrar ríkisstj. hafa allar orðið að beita. Hins vegar tel ég nauðsynlegt að í framtíðinni verði reynt að draga úr þessum árstíðabundnu sveiflum ríkissjóðs sem allra mest, vegna þess að reynslan hefur sýnt að ekki er hægt að treysta á — þó að fjárlög séu afgreidd greiðsluhallalaus, jafnvel með verulegum rekstrarafgangi - að hægt sé að vinna upp síðustu mánuði ársins það sem menn hafa tapað fyrstu mánuði ársins í hallarekstri ríkissjóðs.
Um hitt, hversu tímabundin þessi yfirdráttarheimild við Seðlabanka Íslands þarf að vera, vil ég ekki dæma. Um það dæmir hv. Alþ. og þá fyrsta kastið fjh.- og viðskn. Það er að sjálfsögðu alveg ljóst, að ef menn eru að hugleiða að binda bráðabirgðagreiðsluheimild við t.d. 31. jan., þá er gersamlega útilokað að binda yfirdráttarheimild við Seðlabankann við sama dag, sem mundi þýða það, að fyrir lok janúarmánaðar yrði ríkissjóður að vera hallalaus á viðskiptareikningum sínum í Seðlabankanum. Það gefur auðvitað auga leið, að það er ekki unnt nema með því einfalda móti, sem hvaða ríkisstj. sem er mundi þá verða að grípa til, þ.e. að greiða ekki úr ríkissjóði aðrar greiðslur en þær sem inn í hann koma, og þá yrðu það náttúrlega fjölmargar greiðslur, sem ríkisstj. ber lagaleg skylda til þess að inna af hendi, sem ekki yrði hægt að standa við. En það er að sjálfsögðu Alþingis að meta þær aðstæður.
Hvort þörf verði á þessu í janúarmánuði, það verður náttúrlega hver og einn að meta fyrir sig, en það er hins vegar aldrei að vita hverjir á því þurfa að halda.