21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (995)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Eins og kunnugt er og skýrt hefur verið hér frá, hefur ríkisstj. talið æskilegt að hlé yrði um tveggja vikna skeið á fundum Alþingis. Til þess liggja tvær ástæður. Önnur er sú, að Norðurlandaráðsþing stendur yfir 3.–7. mars, og þá er venja, þegar það þing er háð hér, að niður falli fundir Alþingis. Hin er sú, að ríkisstj. hefur nú, eins og oft áður þegar svipað hefur staðið á, óskað eftir nokkru fundarhléi á Alþ. til þess að ganga frá undirbúningi mála. Meðal annars og ekki síst er það fjárlagafrv. og mál sem standa í beinu sambandi við það.
Í ríkisstj. var talað um að lögð yrði áhersla á að afgreiða tvö mál áður en þinghlé yrði, þá væntanlega nú seinni hluta þessarar viku. Annað var frv. um breyt. á lögum um tekju- og eignarskatt sem nú hefur verið afgreitt frá Alþ., og hitt var frv. um ríkisábyrgð vegna 3 milljarða kr. lántöku Framleiðsluráðs landbúnaðarins í sambandi við útflutningsuppbætur. Það mál er til 2. umr. á hv. Ed. nú.
Ég tjáði formanni þingflokks Alþfl. og formanni þingflokks Sjálfstfl. þessar óskir. Þá bar á góma þriðja málið, frv. um breyt. á lögum um tekjustofna, sem hv. 3. þm. Vestf. gerði hér að umtalsefni. Ég tók það fram, að ég liti svo á að það frv. yrði því aðeins afgreitt fyrir þinghlé að um það væri samstaða í þinginu. Ég lít svo á, að ef ágreiningur er um það mál og óskir eða eindregnar kröfur um að það verði ekki afgreitt nú, þá lít ég svo á, að það verði ekki afgreitt áður en þinghlé verður. Að þessu leyti vil ég staðfesta það sem hv. þm. sagði um það mál.