21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (997)

Umræður utan dagskrár

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Það er rétt sem fram kom hjá formanni þingflokksins, að á þingflokksfundi í gær bar hann þau skilaboð að þessu máli um tekjustofna sveitarfélaga yrði frestað, þannig að það var ekki tekið til umræðu á þingflokksfundi. Þess vegna kom það mér spánskt fyrir sjónir í morgun þegar afgreiða átti þetta mál, vegna þess að auk þess að um væri að ræða samræmingaratriði í brtt. var um að ræða grundvallarbreytingar sem þingflokkurinn hafði af þeim sökum, sem ég lýsti, ekki haft tíma til að fjalla um. Ég sagðist á fundi félmn. telja að þingflokkurinn gæti fallist á að afgreiða þau atriði sem lytu að samræmingarbreytingartillögunum, en hann þyrfti að fá tíma til að athuga aðrar till. Ég taldi mig þurfa að bera þetta mál undir þingflokkinn áður en ég skrifaði undir nál. En svo mikið liggur á að ganga frá þessu máli og knýja það gegnum þingið að formaður n. hefur sent nál í prentun án þess svo mikið sem að leyfa nm. að sjá það. Ég tel, eftir þann stutta tíma sem ég hef verið á þingi, að venja sé að þingmenn skrifi undir viðkomandi nál. og fái að sjá staf fyrir staf hvað þeir eru að skrifa undir. Því vil ég mótmæla þessum vinnubrögðum og tel það mjög óvanalega afgreiðslu sem hér á að viðhafa varðandi þetta mál.