03.12.1980
Efri deild: 19. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1084 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)
133. mál, heilbrigðisþjónusta
Flm. (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 158 höfum við hv. þm. Egill Jónsson, Davíð Aðalsteinsson og Ólafur Björnsson leyft okkur að flytja frv. til l. um breyt. á lögum um heilbrigðisþjónustu.
Þetta er stutt frv. 1. gr. þess er um það, að við 1. mgr. lið 1 í 13. gr. laganna bætast orðin: Þar er þó einnig heimilt að ráða aðstoðarlækni hluta úr ári. — Hér er átt við H 1 stöðvarnar.
2. gr.: Við 14. gr. laganna bætist ný mgr., 14.12. svohljóðandi: Nú hefur læknir unnið við heilsugæslustöð H 1 í samfleytt þrjú ár, og á hann þá rétt á að hljóta eins árs leyfi með fullum launum til framhaldsnáms hér á landi eða erlendis, enda fylgi því skuldbinding um áframhaldandi þjónustu í minnst þrjú ár við heilsugæslustöð H1.
Þetta er auðskilið mál, að ég hygg, og ég vil leyfa mér að lesa yfir grg. sem fylgir þessu frv. Hins vegar kann hér að vera um nokkurt álitamál að ræða sem rétt er að taka rækilega fyrir í heilbr.- og trn. og athuga vel alla þætti. Það er okkur ljóst, sem þetta mál flytjum, að einkanlega þarf að athuga 2. gr. Ég hygg að varðandi 1. gr. þyki allsjálfsagt mál að þarna verði með einhverjum hætti úr að bæta. En í grg. segir svo, með leyfi forseta:
„Þegar lögin um heilbrigðisþjónustu voru sett 1973, hafði ástandið í læknamálum landsbyggðarinnar verið með öllu óviðunandi.
Ekki síst var það tilgangur nýrrar löggjafar að bæta hér verulega úr. Í kjölfar löggjafarinnar og mikilla framkvæmda í heilsugæslumálum úti á landi hefur mikil breyting orðið á til batnaðar og þróunin stefnir í rétta átt, til alhliða bættrar þjónustu á sviði heilsugæslu um allt land.
Enn ber þó á nokkurn skugga. Erfiðlega hefur gengið að fá lækna að H1 stöðvunum — þeim heilsugæslustöðvum þar sem aðeins skal starfa einn læknir.
Hér er um stöðvar að ræða sem velflestar þjóna þeim svæðum, sem afskekktust eru eða verst í sveit sett hvað snertir samgöngur, miklar fjarlægðir eða nálægð við sjúkrahús. Þörfin á góðri og öruggri heilsugæslu er því hvergi brýnni né meir knýjandi og því má einskis láta ófreistað til að unnt sé að fá lækna þar til starfa og til sem lengsts tíma.
Ýmsar tillögur hafa verið uppi um úrbætur, ef takast mætti að laða menn fremur til starfa á þessum stöðum. Landlæknir hefur að vonum látið þessi mál mjög til sín taka, enda brennur vandinn hvað heitast á honum, og m.a. reifaði hann á s.l. vetri ýmsar hugmyndir sínar til úrbóta í þessu efni við heilbrigðis- og trygginganefndir þingsins. Þeim er nú að miklu leyti komið hér í frv.-form, því full ástæða er til nánari umfjöllunar viðkomandi nefnda og þingsins í heild um þetta málefni.“
Ég vil taka fram í þessu sambandi að landlæknir hefur mjög óskað eftir því, að þetta mál kæmist með einhverjum hætti hér inn, og ég tel ekkert óeðlilegt við að það sé gert, hefði reyndar talið æskilegast að þetta fylgdi í kjölfar breytinganna sem væntanlegar eru á heilsugæslulögunum í heild sinni. En eftir þeim þarf að bíða töluvert. Hér er um afmörkuð atriði að ræða, sem ég hef rætt við hæstv. heilbrrh. um hvort væri nokkuð til fyrirstöðu að kæmu hér inn sérstaklega. Kvað hann svo ekki vera, enda tel ég að þetta stangist ekki neitt á við þá heildarendurskoðun sem nú er í gangi varðandi málið í heild, þ.e. lögin um heilbrigðisþjónustu.
Í grg. segir áfram að þessar hugmyndir hafi m.a. komið fram hjá læknum sem á H1 stöðvum hafa starfað og þá alveg sérstaklega hugmynd númer 1 í 1. gr. frv., sem er um leið meginatriði hugmyndanna og örugglega sú virkasta. Hér er um að ræða þá heimild að ráða aðstoðartækni hluta úr ári.
Margir hafa gegnt störfum með mikilli prýði á H1 stöðvunum, en það eru mjög fáar stöðvar, því miður, sem njóta þess að þar séu menn með svipuðu hugarfari og t.d. ég hef best dæmi um úr mínu kjördæmi með Þengil Oddsson á Vopnafirði. Hann hefur gegnt þar starfi með mikilli prýði. Hann hefur t.d. lagt alveg sérstaka áherslu á að einhver heimild af þessu tagi fáist. Heimildin er ekki til nú vegna þess að þar yrði þá eingöngu um staðgengil að ræða er hér kæmi til greina að ráða hluta úr ári, tvo til þrjá mánuði yfir t.d. erfiðasta tímann, annasamasta tímann, mann í starf með héraðslækninum, en um leið mundi það auðvelda þeim hinum sama að taka að sér hlutverk staðgengils einnig. Hann mundi kynnast aðstæðum á staðnum og mundi eiga auðveldara með að taka að sér áframhaldandi starf, enda líka um lengri tíma að ræða og auðveldara viðureignar. Ég held að þessi skoðun Þengils og margra fleiri lækna á H1 stöðvunum sem þar hafa starfað sé rétt og þetta leysi sem sagt bæði vanda þeirra og annir miklar og eins staðgengilsmál þeirra líka að nokkru leyti.
Greinarnar skýra sig sjálfar, en í þeim er ætlað að ýta undir það, að menn fáist fremur til starfa á H 1 stöðvum, þar sem aðstaða öll og álag er með öðrum hætti en þar sem fleiri koma til. Því er lagt til í 1. gr. frv., að við bætist sú heimild, að við H1 stöðvar megi ráða aðstoðarlækni hluta úr ári. Sama er að segja um þau ótvíræðu og mikilvægu hlunnindi sem lögð eru til í 2. gr., með þeirri skuldbindingu sem þar fylgir. Hvati ætti þetta að vera alveg án efa.
Nú er hérna um miklu vafasamara atriði að ræða og okkur flm. er það vel ljóst að réttindum af þessu tagi, sem fylgir jafnframt þó skuldbinding, fylgir vissulega alltaf einhver vafi. Ég bendi á það þó varðandi læknanema, að svipaður háttur hefur áður verið uppi varðandi tæknanemana, ekki þó varðandi leyfi þeirra til starfa á fullum launum, enda þeir ekki komnir í starf, heldur varðandi námsstyrki til þeirra og stuðning við nám þeirra gegn vissri skuldbindingu um að gegna læknisstarfi á eftir. Þetta fyrirkomulag reyndist á sínum tíma misjafnlega að vísu, en í mörgum tilfellum vel.
Nú vil ég ekki leggja dóm á það, hver árangur yrði af þessu. En meðan þessir læknar búa við þær aðstæður sem þeir búa í dag held ég að það sé ótvírætt, að hér yrði um nokkuð aukna tryggingu að ræða að þessir læknar störfuðu lengur á H1 stöðvum. Það er kannske meginmálið fyrir fólkið sem býr í þessum héruðum að stöðugleiki í læknamálum á H1 stöðvunum sé meiri en hann er. Það er kannske aðalatriðið. Samband milli læknis og sjúklinga er vissulega mjög náið og þarf að vera náið. Þar þarf að ríkja ákveðið trúnaðartraust. Hin sífelldu læknaskipti, við höfum af því reynslu sem búum úti á landi, eru slæm fyrir íbúana og óheillavænleg í alla staði. Til viðbótar því verður afleiðingin oft sú, að fólk leitar meira annað þar sem meiri er stöðugleiki, á H2 stöðvarnar jafnvel, til lækna sem þar eru og grónir í starfi.
Ég hef dæmi um þetta frá tíðum læknaskiptum úr læknishéraði mínu Eskifjarðarlæknishéraði, þar sem voru áður um skeið alltíð skipti. Þá var hinn ágæti læknir uppi á Egilsstöðum, Guðmundur Sigurðsson. Þegar nýir menn voru að koma kusu menn frekar að fara upp í Egilsstaði og hitta þann ágæta mann, sem þar sat, og leita ráða hjá honum. Þeir þekktu til hans og þekktu hann nokkuð vel. Ég held þess vegna að það sé ekki lítið atriði að meiri festa skapist í læknamálum þessara stöðva. Það er einmitt atriði sem þarna er vikið sérstaklega að.
Að vísu hefur landlæknir viljað ganga enn lengra en við gerum í þessu frv. Bæði hefur hann viljað hafa þessa skuldbindingu styttri, hann hefur viljað hafa skuldbindinguna aðeins tvö ár, og hann hefur viljað hafa réttinn til eins árs leyfis líka eftir tvö ár. Við fórum bil beggja varðandi þetta, miðað við þær umræður sem höfðu farið fram í nefndinni í fyrra um þetta, og vorum með þrjú ár áður en leyfið væri tekið og þrjú ár í skuldbindingu á eftir, en þetta verður allt athugað betur í nefnd og einnig það atriði hvort hér eigi að vera um þennan hvata að ræða eða ekki, sem geta vel verið skiptar skoðanir um.
Landlæknir hefur bent á fleiri atriði sem gætu verið hvetjandi í þessu efni. Hann hefur t.d. bent á að í stöður við heilbrigðisstofnanir eða í stöður heilsugæslulækna skuli starfsaldur læknis við H1 stöð teljast fimm ár fyrir hver þrjú ár. Við treystum okkur ekki til að taka þetta inn, en við teljum þetta vissulega athyglisvert og vísum þessu, eins og frv. í heild og öðrum atriðum sem landlæknir mun kynna á fundum nefndarinnar, til skoðunar í nefndum þingsins og einnig til skoðunar rn. varðandi frekari framkvæmd þessa atriðis og einnig varðandi hugmyndir landlæknis um frekari fríðindi sem falla að 2. gr. þessa frv.
Ég hygg að ekki þurfi að hafa lengri framsögu. Það er mjög nauðsynlegt að á þessu máli verði tekið á einhvern hátt og það tryggt að meiri festa skapist í læknamálum H1 stöðvanna, þó við flm. vitum allir að vandinn er læknaskorturinn almennt. Það er kannske svolítið broslegt að vera að tala um læknaskort eins og við framleiðum mikið af þessum ágætu mönnum, en engu að síður er hann staðreynd. Menn una ekki hérlendis, þeir fara utan, þeir þurfa mjög að sérhæfa sig, og er ekkert nema gott um það að segja, en endirinn verður svo oft sá, eins og menn þekkja, að þeir ílendast erlendis og við njótum ekki þeirra góðu starfskrafta sem við annars ættum í raun og veru og eigum í raun og veru vissa heimtingu á að fá að njóta.
Ég vil svo leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og trn.