03.12.1980
Neðri deild: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)

88. mál, grunnskólar

Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir undirtektir hans við þetta mál og vonast til þess, að í hinum nýju tillögum, sem koma frá endurskoðunarnefnd grunnskólalaga sem hann skýrði hér frá, séu ákvæði sem eitthvað eru í þá veru sem hér er lagt til.

Að því er varðar ræðu hv. 5. þm. Vestf., sem nú lauk máli sínu, eru nokkur atriði sem mig langar til að víkja að. Að vísu ræddi hv. þm. að miklu leyti um annað en það sem í þessu frv. stendur.

Hv. þm. gagnrýndi ákvæði sem verið hafa í gildi á Íslandi áratugum saman. Hann gagnrýndi ákvæði sem samþ. var í Evrópusáttmálanum um mannréttindi árið 1952. Fræðslulögin tóku gildi 1907, þannig að hv. þm. þarf kannske að taka til hendi ef á að breyta vissum atriðum sem það vörðuðu, en ekki beinlínis þetta frv.

Hv. þm. setti fram visst grundvallarsjónarmið í sambandi við fræðsluskyldu og skólaskyldu. Það er í sjálfu sér gott eitt um það að segja að vekja athygli á muninum á þessu tvennu, en það ætla ég ekki að ræða efnislega.

Hv. þm. vék reyndar að einu atriði enn sem er ekki heldur nýtt í þessu frv. Hann gagnrýndi það fyrirkomulag, að viss leynd eða þagnarskylda væri í sambandi við vitnisburði nemenda. Það ákvæði er í grunnskólalögunum sem nú gilda. Það er ekki nýtt í þessu frv. Hins vegar eru viss ákvæði í þessu frv. um hvernig með þetta skuli fara og að í vissum tilfellum megi einmitt frá þessu víkja. Sjálf þagnarskyldan um þetta atriði þarf þá ekki heldur að valda sérstökum umr. hér.

En ég vil víkja nánar að þeim orðum sem hv. þm. lét falla um þá grein frv. sem tekur mið af ákvæðinu í Evrópuráðssáttmálanum. Það ákvæði er frá 1952 og er lagt til að það sé tekið inn í stefnumótandi grein grunnskólalaganna, en ákvæðið fjallar um rétt forráðamanna til að tryggja að menntun og fræðsla séu í samræmi við trúar- og lífsskoðanir þeirra.

Hv. þm. nefndi dæmi sem ég er alveg hissa á að skuli koma frá skólamanni, eins og ég veit að hv. þm. er. Hann hlýtur að vita hvernig þessi mál eru í framkvæmd. Ef svo stæði á að nemandi kæmi frá heimili sem væri Múhameðstrúar, eins og hv. þm. nefndi, eða foreldrar óskuðu af öðrum ástæðum eftir því, að barni þeirra væru ekki kennd kristin fræði, þá er það framkvæmt svo í íslensku skólakerfi, að í slíkum tilvikum geta foreldrarnir óskað þess, að barninu sé gefið leyfi úr kennslustundum í kristnum fræðum. Það er ekki þar með sagt að allur bekkurinn færi á mis við þessa fræðslu. Þetta hefur verið talið sjálfsagt í mörgum skólum landsins. Ég man eftir því sjálf, að þegar ég var í barnaskóla átti ég skólasystur sem átti foreldra er voru aðventistar. Það þótti sjálfsagt að þessi stúlka ætti frí á laugardögum og þótti ekkert við það að athuga. Slíkt fyrirkomulag er ósköp vel framkvæmanlegt, en rétturinn til þess þarf að vera fyrir hendi.

Hv. þm. nefndi fleiri sérkennileg dæmi. Hann nefndi dæmi um það, að mér skildist, að kennari væri stórdrykkjumaður. Hv. þm. spurði: Má þá kennari ekki tala um áfengi? — Að sjálfsögðu má hann tala um áfengi. En hann mætti ekki segja við nemendur sína: Þið skuluð, krakkar mínir, ef þið viljið vera reglulega hress um helgar, kaupa ykkur eina ginflösku og drekka úr henni. — Með því væri hann að halda því að þeim, að æskilegt væri að þau hefðu þessi viðhorf hans. Það tel ég að fari yfir þau mörk hlutlægni sem hæstv. menntmrh. lagði hér réttilega áherslu á.

Hv. þm. nefndi líka dæmi um það, ef svo stæði á að kennari væri stjórnleysingi, hvort hann mætti þá ekki tala um að menn kæmu á réttum tíma eða sætu kyrrir í sæti sínu. Ég skil þetta ekki alveg, því að mér finnst ekki líklegt að þetta væru atriði sem stjórnleysinginn vildi sérstaklega halda að nemendum sínum. Ég hygg að stjórnleysinginn hefði ekki af því minnstu áhyggjur þó að krakkarnir kæmu of seint í tíma eða hlypu út um alla stofu í kennslustundum ef' þeim sýndist svo.

Mér finnst einhvern veginn að þessi dæmi, sem hv. þm. nefndi, séu til að finna sér eitthvað til sem e.t.v. væri hægt að setja út á frv. En þessi atriði standast ekki. Svo einfalt er það.

Það á vitanlega að gera þá kröfu til þeirra, sem annast grunnskólafræðsluna, að þeir miðli þekkingu sinni af fyllstu hlutlægni. Það er sjálfsögð lágmarkskrafa til þess að þeir séu færir um að gegna þessu starfi. Á það atriði er lögð áhersla með þessari frvgr., sem hér er skráð, og á það atriði hefur verið lögð áhersla og það raunar viðurkennt í alþjóðlegum sáumálum um margra áratuga skeið. Mig furðar á því, að upp skuli koma raddir á Íslandi sem sjá eitthvað við það að athuga eða finnst það eitthvað tortryggilegt. Ég held í raun og veru að þær raddir hljóti að hafa komið upp vegna einhvers misskilnings eða ótímabærrar tortryggni.