03.12.1980
Neðri deild: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)
142. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég fagna því, að þetta frv. skuli nú hafa séð dagsins ljós, og sérstaklega fagna ég þó því, að gert er ráð fyrir að standa við það loforð, sem gefið var varðandi lausn sjómannadeilunnar á Vestfjörðum, og ákvæði frv. muni gildi frá 1. júní 1980. Það er þó ástæða til að vekja athygli á því, eins og raunar kom fram hjá hæstv. ráðh., að enn er ekkert um það séð hver fæðispeningagreiðsla kann að verða. Það á nú að ákveða með reglugerð, en var áður bundið í lögum, þannig að allt er óljóst um það. Ég vek líka athygli á því, að hér er það að mér sýnist helst rn. sem ræður þessu. Það á að vísu að leita umsagnar þeirra aðila, sem tilnefna fulltrúa í stjórn Aflatryggingasjóðs, svo og Fiskifélagsins. Þessir aðilar eru umsagnaraðilar, en endanlega er það þó rn. sem kemur til með að ráða niðurstöðunni.
Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég á sæti í þeirri n. sem frv. mun fara til og þá gefst frekari kostur á að fá upplýsingar um málið. En ég vil nota þetta tækifæri til að fagna því, að þetta frv. er fram komið og vænti þess, að greiðslurnar verði í þeim anda sem lofað var á sínum tíma, en það á auðvitað eftir að sjást frekar í reglugerðarákvæðum.