03.12.1980
Neðri deild: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)

139. mál, söluskattur

Flm. (Ágúst Einarsson):

Herra forseti. Frv. það, sem ég mæli fyrir, flyt ég ásamt þeim hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, Guðmundi G. Þórarinssyni og Arna Gunnarssyni. Frv. gerir ráð fyrir að fella niður söluskatt af vogum og rafeindatækjum til mælinga og skoðunar í fiskiðnaði.

Hér er um að ræða breytingu á lögum um söluskatt. Til nánari skilgreiningar á tækjum þessum má benda á þær vörulýsingar sem eru í tollskrám undir tollskrárnúmerunum 84.20, 90.15 og 90.28. Í tveim fyrrgreindu flokkunum eru vogir skilgreindar og síðasti flokkurinn á við rafeindatæki til mælinga og skoðunar. Þar sem vörur þessar eru þegar skilgreindar í tollskrám munu ekki koma upp nein vandkvæði varðandi framkvæmd lagafrv. þessa.

Meginröksemdum fyrir þessu frv. má skipta í tvo flokka. Annars vegar er það hagræði fyrir fiskiðnaðinn og hins vegar stuðningsaðgerð við rafeindaiðnað hérlendis.

Sú skoðun hefur undanfarin ár rutt sér æ meira til rúms að líta á fiskiðnað Íslendinga sem þá atvinnugrein sem einna mesta framtíð eigi fyrir sér. Það hefur átt sér stað á síðustu árum ánægjuleg hugarfarsbreyting hjá stjórnvöldum varðandi vélvæðingu í fiskiðnaði. Þannig hefur söluskatti verið aflétt af flestum fiskvinnsluvélum og er það hrósvert. Fiskvinnsluvélar eru að langmestu leyti innfluttar, en því miður hefur eigi skapast hérlendis öflugur vélaframleiðsluiðnaður á sviði fiskvinnsluvéla. Ber að fagna sérhverri viðleitni ríkisvaldsins til að létta af gjöldum hjá fiskiðnaðinum til að gera honum kleift að komast á auðveldari hátt yfir tæki sem bætt geta nýtingu og aukið framleiðsluna og stuðlað að meiri hagræðingu í vinnslunni sjálfri. Niðurfelling söluskatts á þeim tækjum, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, er mjög brýnt hagsmunamál fyrir fiskiðnaðinn og ekki síst fyrir hinn ört vaxandi rafeindaiðnað Íslendinga.

Hérlendis hefur byggst upp á undanförnum árum mjög athyglisverður iðnaður á sviði rafeindafræði. Þessi iðnaður byggist fyrst og fremst á hugviti og skipulagningu, en er ekki mjög mannfrekur né þarf mikla fjárfestingu. Vissulega er nauðsynlegt í þessum iðnaði að lagt sé í verulegan hönnunarkostnað þeirra vara sem framleiddar eru.

Á undanförnum árum hafa risið upp nokkur fyrirtæki sem hafa sýnt og sannað að þau geta ekki einungis framleitt mjög góðar vörur fyrir íslenskan fiskiðnað, heldur gætu orðið með réttum stuðningi leiðandi fyrirtæki á heimsmarkaði. Mig langar til að nefna hér fyrirtækið Pólinn á Ísafirði sem náð hefur ótrúlegum árangri í vinnu sinni. Póllinn hefur þróað og framleitt mjög fullkomnar vogir til notkunar í fiskiðnaði. Er það mál manna, sem kynnst hafa þessari framleiðslu, að hér sé um tæknibyltingu að ræða. Einnig má geta fjölmargra annarra framleiðsluvara frá Pólnum sem reynst hafa mjög vel þar sem þær hafa verið notaðar.

Mig langar sérstaklega að vekja hér á hinu háa Alþingi athygli á vél frá Pólnum sem nú er verið að reyna í fyrsta sinn í frystihúsi Íshúsfélags Ísfirðinga á Ísafirði. Hér er um að ræða vélasamstæðu sem raðar fiskflökum saman í pakkningu, pakkar hverju flaki í lofttæmdar umbúðir, vigtar flökin og pakkar þeim síðan. Hér er um að ræða ótrúleg tæki sem munu auka nýtingu og spara yfirvigt og mannafla þegar þau eru komin í fulla framleiðslu og notkun í frystihúsum landsins.

Það sést e.t.v. best á því, hve stórkostlegum árangri þetta fyrirtæki á Ísafirði hefur náð, að hjá því vinna einungis 40 manns og þar af ekki nema rúmlega fjórðungur við framleiðsluna sjálfa.

En það er rétt í þessu sambandi að geta einnig annarra fyrirtækja í þessum rafeindaiðnaði, svo sem vélsmiðjunnar Völundar í Vestmannaeyjum. og fyrirtækisins Örtölvutækni sem framleiðir olíunotkunarmæla sem eru ekki einungis notaðir í skipum hérlendis, heldur einnig fluttir út.

Þessi iðnaður hefur sýnt svo að ekki verður um villst að Íslendingar eru fullkomlega færir um að þróa og smíða fullkomin tæki sem stuðla að betri nýtingu fiskafla, betra eftirliti og hagkvæmari stjórnun innan sjávarútvegsins. Það ríður ekki hvað síst á því fyrir okkur Íslendinga að fylgjast vel með þessari þróun og efla þennan iðnað þegar höfð er í huga sú örtölvubylting sem þegar hefur hafið innreið sína.

Ljóst er að á næstu árum muni eiga sér stað stórfelldar framfarir á sviði rafeindafræði í öllum atvinnugreinum. Þessi þróun er þegar hafin erlendis, og það er ánægjulegt að sjá að Íslendingar hafa með framangreindum fyrirtækjum tekið forustu í þessum málum innan alþjóðlegs fiskiðnaðar. Það ætti því að vera augljóst að efla ber þá starfsemi, sem byggist á íslensku hugviti, í stað þess að leita til útlanda um kaup á slíkum tækninýjungum.

Ég nefndi fyrr í máli mínu að fjölmargar fiskvinnsluvélar væru þegar undanþegnar söluskatti. Flestar þessara véla eru fluttar inn frá útlöndum. Það er ekki nema réttlátt, þegar hér byggist upp iðnaður sem getur selt vörur sem standa erlendri framleiðslu framar, að sá iðnaður sitji við sama borð og aðrir fiskvinnsluvélaframleiðendur.

Það er augljóst að niðurfelling söluskatts á tækjum þessum, eins og gert er ráð fyrir í frv., mun leiða til meiri útbreiðstu þessara vara hérlendis og kæmi þannig þessum iðnaði mjög vel í auknum tekjum. Forráðamenn helstu fyrirtækja í þessari grein hafa sagt við mig að þeir mundu meta samþykkt þessa frv. mjög mikils. Söluskattur er orðinn það hár að aðilar í fiskiðnaði hugsa sig um tvisvar við kaup á sérhverri tækninýjung sem greiða þarf söluskatt af. Niðurfelling söluskattsins mun koma fiskiðnaðinum mjög til góða og verða hvatning enn fleiri aðilum í fiskiðnaði til að festa kaup á þessum tækjum.

Hér er einungis um að ræða lítið skref til aðstoðar bæði rafeindaiðnaðinum og sjávarútvegi í heild í heimi vaxandi samkeppni. En það er sjálfsagt að íslenskir framleiðendur standi ekki valtari fótum en erlendir vélaframleiðendur.

Þar sem hér er um að ræða tæki sem fyrst og fremst stuðla að meiri nákvæmni, en ekki að því að ná endilega meira út úr hverju fiskflaki með því að ganga nær hráefninu, mun notkun þessara nákvæmnistækja leiða til verulegs gjaldeyrisauka fyrir þjóðarbúið. Til að mynda má nefna vandamál yfirvigtar, sem mjög er til baga í íslenskum fiskiðnaði. Með vogum þeim, sem hér hafa verið framleiddar, hverfur þetta vandamál vegna nákvæmni tækjanna. Jafnframt munu rafeindatæki, sem notuð eru og munu verða notuð, auka alla nákvæmni í eftirliti og gera eftirlit í fiskiðnaðinum yfirleitt fljótvirkt og ná því markmiði, sem menn stefna almennt að í fiskiðnaði, að fylgst verði betur með framleiðslunni á einstökum stigum vinnslunnar. Þannig mundi framleiðni aukast verulega. Það óverulega tekjutap, sem ríkissjóður verður fyrir við niðurfellingu söluskatts af vörum þessum, verður miklu meira en vegið upp við þá auknu útbreiðslu þessara tækja í íslenskum sjávarútvegi sem kæmi fram í auknum gjaldeyristekjum í þessari atvinnugrein til hagsbóta fyrir þjóðarbúið allt.

Ég geri það að tillögu minni að frv. verði vísað til fjh.og viðskn. að lokinni þessari umr.