03.12.1980
Neðri deild: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1103 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)

139. mál, söluskattur

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil taka undir þá meginhugmynd sem er að baki þessa frv., sem ég skil svo að auðvelda eigi íslenskum fiskiðnaði að nýta þá nýjustu tækni sem nú ryður sér mjög til rúms. Hitt veit ég að er rétt, sem kom fram hjá síðasta hv. ræðumanni, að vera kann erfitt um niðurfellingu söluskatts. En það eru fleiri gjöld þarna á lögð, eins og vörugjald t.d. og í sumum tilfellum tollur.

Ég vil jafnframt upplýsa að í athugun, sem fram fer á vegum sjútvrn. á aðgerðum til að auka framleiðni í fiskiðnaði, hefur mjög verið staldrað við ýmsa svona kostnaðarliði. Gæti ég talið upp ýmislegt fleira en rafeindavogir, þó að þær séu einn stærsti möguleikinn til framfara á þessu sviði. Ég tek undir allt það sem hv. frsm. sagði um framfarirnar þar. Mætti ýmsu við það bæta. En ég get einnig nefnt t.d. tölvur sem hafa rutt sér mjög til rúms í stærri fiskvinnslufyrirtækjum. Það eru mikil gjöld heimt af slíkum tölvum og er því kostnaðarsamt að koma þeim upp. Af öðrum óskyldum hlutum mætti t.d. nefna þurrefnasíur, sem geta leitt til verulegs sparnaðar með endurheimtun hráefnis sem annars fer út með vatninu, en gjöldin af slíkum síum eru að öllum líkindum meiri en hagkvæmnin eða a.m.k. meiri en fæst á einu ári í endurheimt hráefnis. Er þá annar stofnkostnaður ótalinn. Ég hygg að opinber gjöld séu þar álíka mikil og stofnkostnaðurinn, þannig að menn leggja ekki í slíkt eins og er þegar fjármagnskostnaður er jafnframt mikill. Því er verið að athuga ýmsa slíka þætti sem væru til hagsbóta fyrir fiskiðnaðinn, og hafa þessi mál reyndar þegar verið rædd í ríkisstj. Jafnframt er á vegum fjmrn. starfandi nefnd sem er að endurskoða tolla á ýmsum innfluttum vörum. Þessi mál hafa einnig komið til hennar kasta. Sömuleiðis hefur mjög borið á samanburði á svokölluðum samkeppnisiðnaði og fiskiðnaði. Ég beitti mér fyrir því s.l. vor að felld voru niður aðflutningsgjöld af fjórum slíkum tollaflokkum, þar sem fiskiðnaðurinn bjó tvímælalaust við stórum óhagstæðari kjör að þessu leyti en svokallaður samkeppnisiðnaður. Ég tek það fram, að ég veit ekki hvað er meiri samkeppnisiðnaður en fiskiðnaðurinn í dag, en hann hefur samt ekki notið náðar slíkrar nafngiftar. Þess eru dæmi, að unnt hefur verið að flytja inn tæki í súkkulaðigerð annars vegar og sleppa við aðflutningsgjöld vegna samkeppni við innflutt súkkulaði, en hins vegar orðið að greiða mjög há aðflutningsgjöld ef sams konar tæki er flutt inn til fiskvinnslu. Nokkur leiðrétting var á þessu gerð s.l. vor. Jafnframt voru fengnir menn til að gera samanburð á þessum iðnaði öllum. Þótt fiskur sé ekki fluttur inn í landið er hér samkeppnisiðnaður ýmist á innlendum eða erlendum markaði, og þarf að samræma þá aðstöðu sem við er búið.

En ég stóð fyrst og fremst upp til að taka undir þann meginanda sem í frv. er. Þarna er mikið verk að vinna og gott til þess að auðvelda okkar fiskvinnslu að afla sér tækja til aukinnar framleiðni.