08.12.1980
Efri deild: 21. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (1086)

13. mál, vélstjóranám

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég flyt hér frv. til l. um breyt. á lögum nr. 67/1966, um vélstjóranám. Þetta mál var lagt fyrir Nd. og hefur fengið þar umfjöllun og hefur nú verið vísað til þessarar hv. deildar. Málið var þar rætt að sjálfsögðu við þrjár umræður og fór þar til nefndar. Menntmn. fjallaði um þetta mál og lagði til að það yrði samþykkt óbreytt eins og það var upphaflega lagt fram, og þannig birtist frv. nú hér.

Efni þessa frv. er það einvörðungu, eins og segir í fyrri grein frv., að sá, sem lokið hefur fyllsta námi frá Vélaskóla Íslands og hefur auk þess lokið sveinsprófi í vélvirkjun eða annarri málmiðnaðargrein, á rétt á starfsheitinu vélfræðingur.

Þetta frv. er flutt samkv. sérstakri beiðni Vélstjórafélags Íslands. Starfsheitið vélstjóri tekur nú til manna sem hafa mjög mismunandi menntun, allt frá því að vera með réttindi fyrir allra minnstu bátavélar og til manna sem lokið hafa mjög löngu vélstjóranámi sem tekur mörg ár, allt að því eins og um háskólanám sé að ræða. Það er megintilgangur með flutningi þessa frv., að þeir, sem lokið hafa lengsta námi í vélfræði, fái að kalla sig vélfræðinga.

Þetta orð, vélfræðingur, var notað um eitt skeið yfir vissa tegund af tæknifræðingum, en ég hygg að það sé ekki lengur notað og enginn maður kalli sig því starfsheiti. Að því leyti sýnist mér vera óhætt og eðlilegt að leggja til að þeir vélstjórar, sem lengstu námi hafa lokið, fái að kalla sig þessu starfsheiti. En eins og ég segi hefur þetta mál gengið gegnum Nd. og var samþykkt þar algerlega óbreytt að tillögu menntmn. Ég legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. nú að lokinni 1. umr. og til menntmn.