08.12.1980
Efri deild: 21. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (1091)
119. mál, Lífeyrissjóður bænda
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég stíg ekki hér í stólinn af því að ég vantreysti svörum ráðherra, síður en svo. Ég vil aðeins staðfesta það sem hann var að segja hér. Ég vil leyfa mér að lesa hér upp bréf frá Pétri Sigurðssyni, framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins, sem gæti verið innlegg í þessar útskýringar allar saman. Með leyfi forseta, hljóðar bréfið á þessa leið:
„Með þessari breytingu á lögum Lífeyrissjóðs bænda er stefnt að því að draga nokkuð úr því misræmi í eftirlaunagreiðslum sem að öllu óbreyttu mun skapast milli bænda, sem fæddir eru 1914 og fyrr og fá eftirlaun sem miðast eingöngu við fjölda búskaparára eftir 55 ára aldur, og hinna, sem fæddir eru eftir 1914 og munu fá eftirlaun sem miðast við iðgjaldagreiðslu þeirra til sjóðsins.
Þessi breyting á lögunum mun ekki hafa nein áhrif á eftirlaun þeirra aðila sem þegar eru komnir á greiðslur frá sjóðnum. Sama er að segja um öll réttindi til ársloka 1980, þau munu standa óbreytt. Aftur á móti hefur breytingin þau áhrif á t.d. eftirlaun bónda, sem fæddur er 1912 og kemur á eftirlaun á árinu 1982, að fyrir tímabilið 1967 til og með 1980 fær hann eins og hingað til fastákveðin réttindi sem samsvara iðgjaldagreiðslu af grundvallarbúi, en fyrir 1981 fær hann raunverulega áunnin réttindi miðað við iðgjaldagreiðslu það ár.“
Ég held út af fyrir sig að þetta hljóti að vera skýrt. Það er útilokað að meta fjármunalegar breytingar fram í tímann, miðað við það að við vitum ekki hverjar iðgjaldagreiðslurnar verða út frá launum og út frá framleiðslumagni hjá hinum einstöku bændum. Þetta er útilokað að vita fram í tímann.
En af því að ég er nú staðinn hér upp vil ég aðeins minna á einn þátt er varðar lífeyrisgreiðslur til fólks í sveitum. Það er auðvitað rétt, að á Lífeyrissjóði bænda hafa verið gerðar breytingar allnokkrum sinnum, eins og hv. þm. er kunnugt, fyrst og fremst til þess að leitast við að aðlaga starfsemi sjóðsins breyttum aðstæðum svo að hann sinni sínu hlutverki af meira réttlæti. Á liðnu þingi var t.d. gerð sú breyting, að aldursmark sjóðþega var lækkað úr 20 í 16 ár. Sömuleiðis voru teknir inn launþegar í landbúnaði. Smám saman hefur starfsemi sjóðsins verið löguð að breyttum aðstæðum. En þrátt fyrir það er drjúgur hópur fólks í sveitum landsins, aldraðra og öryrkja, sem ekki nýtur lífeyris frá Lífeyrissjóði bænda. Það eru nokkrir tugir manna sem um er að ræða. Þess var vænst, að lög um eftirlaun aldraðra, sem samþykkt voru á s.l. vori, mundu bæta þarna úr, en það hefur komið á daginn að þau gera það alls ekki. Lögin eru því miður þannig sniðin, að örfáir úr hópi þessa umrædda fólks, sem ég minntist á, fá úrlausn sinna mála. Eins og ég tók fram er þarna ekki um stóran hóp að ræða, en ég minni þó á þetta hér. Vonandi verður málið vandlega skoðað og réttlætis gætt og þörfum þessa fólks sinnt í framtíðinni.
En varðandi það frv., sem hér er til umræðu — og ég gerðist svo djarfur að bæta við og lesa upp bréf frá Pétri Sigurðssyni framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins, — þá held ég að nóg sé komið af skýringum.