08.12.1980
Neðri deild: 25. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

95. mál, sparisjóðir

Flm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Frv. það, sem er flutt á þskj. 105 um breyt. á lögum nr. 69 frá 1941 um sparisjóði, fjallar um þá grein laganna þar sem rætt er um ábyrgðir sem viðkomandi stofnanir geta gengið í. Þær eru mjög takmarkaðar, en með breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins frá því s.l. vor er gert ráð fyrir að innlánsstofnanir takist á hendur ábyrgð vegna lána, vegna afborgana og vaxta af lánum sem Húsnæðisstofnun eða þeir sjóðir, sem þar til heyra, hafa lánað einstaklingum. Til þess að svo megi verða gagnvart sparisjóðunum þarf að gera breytingu á 20. gr. laganna og fjallar þetta frv. um það. Gert er ráð fyrir að sparisjóðunum sé kleift að annast þá fyrirgreiðslu sem ætluð er í löggjöf um Húsnæðisstofnun ríkisins, þ.e. annast fyrirgreiðslu vegna Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um frv., en vísa til grg. og leyfi mér að leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.