09.12.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
346. mál, störf stjórnarskrárnefndar
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Af því, sem hæstv. forsrh. hefur sagt hér, liggur það nú ljóst fyrir, að stjórnarskrárnefnd mun ekki koma fram með neinar hugmyndir eða tillögur um breytingar á kjördæmaskipun og kosningalögum. Mér sýnist því eðlilegt framhald vera, eins og hér kom fram áðan, að þingflokkarnir taki sín í milli upp viðræður um þetta mál og freisti þess að ná fram lausn og sameiginlegum tillögum á útmánuðum á næsta ári þannig að héðan verði ekki farið af þingi næsta vor öðruvísi en að hægt sé að ná samstöðu eða sem mestum og bestum meiri hluta í því að breyta kjördæmaskipun og kosningalögum.