09.12.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1131)
356. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar
Egill Jónsson:
Herra forseti. Það er ákaflega gagnlegt að þetta mál skuli hafa komið á dagskrá einmitt þessa dagana. Ég tek að sjálfsögðu undir það sjónarmið, sem hefur komið fram í þessum umr., hversu mikilvægt er að fylgjast með löggjöfinni og því, hvernig hún kann að hafa reynst. Hitt skiptir hins vegar miklu meira máli, hvað Alþ. kann að gera núna við afgreiðslu fjárlaga í sambandi við olíustyrk.
Ég færði rök að því, þegar málið var til afgreiðslu í Ed. á s.l. vori, að tekjurnar, sem kallaðar væru inn til ríkissjóðs til að mæta þeim útgjöldum sem löggjöfin gerði ráð fyrir, væru miklu hærri en það sem gengi til þessara verkefna. Það er þess vegna ákaflega þýðingarmikið að fá svör við því núna, hvort gengið verður út frá svipuðu hlutfalli og áður var, hvort þeir tekjustofnar, sem voru lagðir á þjóðina til að mæta þessum útgjöldum, yrðu látnir ganga áfram til þessara verkefna eða einhverra annarra. Um þetta vil ég alveg sérstaklega spyrja og ítreka hér og fá svör við því.
Ég undirstrika þetta alveg sérstaklega vegna þess, að þó að lögunum verði breytt og þó að löggjöf verði bætt þýðir það engan veginn að því fylgi einhverjar sérstakar úrlausnir á þeim vandamálum sem þeir eiga við að búa sem þurfa að kynda híbýli sín með olíu.