09.12.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)
356. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar
Viðskrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Nei, það er engin ný stefna mörkuð af hálfu hæstv. ríkisstj. í þessu máli. Stefnan er óbreytt. Ég geri ráð fyrir að því fjármagni, sem var ákveðið til þessara mála á fjárlögum fyrir þetta ár, — það voru, að því er mig minnir, 4 milljarðar í olíustyrkinn og 500 millj. kr. til annars í sambandi við upphitunarmálin, — verði ráðstafað eins og til hefur verið ætlast. Það er hins vegar ekki lokið afgreiðslu fjárlaganna fyrir næsta ár, en á fjárlagafrv. eru, að því er mig minnir, 5 milljarðar í þessu skyni. Það er alger misskilningur hjá hv. þm., að það sé um að ræða stefnubreytingu í þessum efnum. Og það er enginn nýr tónn í þessu af minni hálfu. Þm. er ekki nógu músíkalskur. Það er engin ástæða til þess að staðhæfa að það sé nýr tónn í þessu. En þetta er eigi að síður mikið vandamál, m.a. af þeim ástæðum sem ég minntist á hér áður, að það háttar ólíkt til með innlenda orkugjafa. Það er alveg ljóst, að Alþ. þarf að taka þessi mál upp til endurskoðunar, ég er sammála fyrirspyrjanda um það, en ég tel eftir atvikum ekki rétt að sú endurskoðun hefjist fyrr en menn sjá svolítið betur fram úr þessum málum.
Það er enn eitt atriði sem ástæða er til að benda á. Flestir eru sammála um að á komandi árum verði áframhaldandi hækkun á olíuverði. Hvað hún verður hröð og með hverjum hætti, um það eru menn ekki sammála. Þetta sveiflast til og frá eins og verið hefur á þessu ári. Það hafa orðið gífurlegar sveiflur á þessu ári. Á tímabili var t.d. gasolíuverð komið niður í rúmlega 270 dollara tonnið, en er nú aftur komið upp í líklega um 330 dollara, eftir því sem ég heyrði seinast. Þetta hefur skeð á örstuttum tíma, líklega tveimur mánuðum eða svo. Það eru því miklar sveiflur í þessu. En ég held að menn séu sammála um að verðið fari hækkandi, og það ýtir auðvitað undir að við þurfum að endurskoða þessi mál. Ég er sammála því. Spurningin er hvenær sú endurskoðun á að hefjast.