09.12.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)

365. mál, kostnaður við myntbreytinguna

Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Umræður um gjaldmiðilsbreytingu hafa verið á dagskrá mjög að undanförnu. Þær hafa snúist um þá spurningu, hvaða ráðstafanir ríkisstj. hygðist gera samfara myntbreytingunni. Alþingi og reyndar þjóðinni allri er kunnugt um þau svör. Þar hafa engin svör fengist og ekki einu sinni gefið í skyn að Alþ. muni gert kunnugt, áður en það fer heim í jólaleyfi, hverjar þær ráðstafanir eru sem ríkisstj. hyggst gera.

Ég hef á þskj. 159 beint þeirri fsp. til hæstv. viðskrh., hver væri heildarkostnaðurinn við framkvæmd myntbreytingarinnar: í fyrsta lagi kostnaður við myntsláttuna, í öðru lagi kostnaður opinberra aðila, annar en sá kostnaður sem af myntsláttunni leiðir, og síðast hver væri áætlaður kostnaður einkaaðila.