09.12.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)

366. mál, reikningsmeðferð aura eftir myntbreytinguna

Fyrirspyrjandi (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. í sambandi við myntbreytinguna hef ég á sama þskj. beint þeirri fsp. til hæstv. fjmrh., á hvern hátt ríkissjóður fyrirhugaði að framkvæma upptöku aura vegna myntbreytingar: a) við greiðslu almennra krafna; b) við greiðslu launa eða bóta almannatrygginga; c) við skráningu fjárhæða í bókhaldi ríkissjóðs og ríkisstofnana.

Ég gerði mér grein fyrir því, að eins og kerfi ríkisbókhaldsins hefur verið allt frá 1973 sýndist mér að hér yrðu mjög mikil vandkvæði á framkvæmd ef framkvæmdir yrðu eins og gert hafði verið ráð fyrir.

Síðan þessi fsp. var lögð fram hefur hæstv. ráðh. lagt fram frv. sem hann sjálfsagt gerir grein fyrir í svari við fsp. minni.