22.10.1980
Neðri deild: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í B-deild Alþingistíðinda. (115)
7. mál, horfnir menn
Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Frv. til laga um horfna menn á þskj. 7, sem hér er lagt fyrir hv. Nd., er ætlað að koma í stað laga nr. 23 frá 1922, um sönnun fyrir dauða manna, sem ætla má að farist hafi af slysum. Er þau lög voru sett á sínum tíma voru engin slík lög í gildi hér á landi. Var að sjálfsögðu bagalegt að engar lagareglur voru til um það efni. Raunar var frv., sem þá var lagt fyrir þingið, enn þrengra, þ.e. frv. til laga um sönnun fyrir dauða sætýndra manna, og var það gert nokkru víðtækara við umfjöllun þess í þinginu. Veruleg bót var að lagasetningu þessari á þeim tíma og hún ekki mjög ólík löggjöf nágrannalanda á þessu sviði, þótt ekki væri eins ítarleg.
Þó var hin síðari ár löngu orðið ljóst, að bagalegt var hvað frestir til dómsuppkvaðningar voru langir svo og að engin nýmæli voru til í hennar stað. Allnokkur úrbót varð með styttingu fresta sem hér var gerð með lagabreytingu á síðasta þingi svo sem menn muna. Kom þá jafnframt fram að í undirbúningi væri heildarendurnýjun á lögunum. Felst hún í frv. því sem hér liggur fyrir, sem samið er af dr. Ármanni Snævarr hæstaréttardómara fyrir tilstilli dómsmrn. Er þar gert ráð fyrir lögfestingu ákvæða til að leysa úr margháttuðum úrlausnarefnum sem núgildandi lög fjalla ekki um.
Frv. er skipað í fjóra kafla. Þriðji kaflinn fjallar um það efni sem núgildandi lög taka til, en hinar nýju reglur eru mun skýrari og skilvirkari.
Í I. kafla er fjallað um heimildir skiptaráðanda til að úrskurða að um bú horfins manns skuli farið sem dánarbú. Á það við þegar atvik benda til þess, að hinn horfni sé látinn.
Í II. kafla frv, er fjallað um varðveislu og ráðstöfun á fjármunum horfins manns, þá er eigi er talið fært að taka bú hans til skipta.
Loks er í IV. kafla fjallað um þær lagareglur er gilda skuli er dánartíkur, sem dómur samkv. III. kafla er reistur á, reynast rangar.
Ég tel hið nýja lagafrv. veigamikla réttarbót og vil vænta þess, að það fái góðar undirtektir í þinginu.
Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.