09.12.1980
Sameinað þing: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)
367. mál, Vestfjarðalæknishérað
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það eru nokkur orð út af síðustu orðum hv. 5. þm. Vestf.
Ég tek undir það, að auðvitað er höfuðmálið að farið sé eftir því, sem Alþ. hefur ákvarðað í þessum efnum, og þá fyrst og fremst að því er varðar byggingu þess mikla mannvirkis sem er nú í byggingu og hefur verið undanfarin ár og lítur út fyrir að verði mörg næstkomandi ár ef ekkert verður að gert. Það reynir á í þeim efnum nú næstu daga hvernig sá meiri hluti, sem ríkir á Alþ., afgreiðir fjárveitingarnar til heilsugæslustöðvarinnar og sjúkrahússins á Ísafirði. Þar reynir ekki síst á 5. þm. Vestf. að láta sjá hvers hann er megnugur í því að hækka þær fjárveitingar sem þarf til þess að sjáanlegur árangur verði í þessari byggingu og hægt verði að taka hana í notkun á næsta ári. Eins og málið stendur núna er ljóst að þær tillögur, sem fyrir liggja, verða til þess að ekki kemst í framkvæmd næstu tvö árin það sem átti að gerast í ár. Meginmáli skiptir að núverandi stjórn, meiri hl. hér á Alþ., sjái svo um að til þessa verkefnis verði veitt það fjármagn sem þarf til að koma því í gagnið. Það er mergurinn málsins varðandi þetta.
Af því að hér var drepið á framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins er full ástæða — það gefst þó ekki tími til að ræða það sérstaklega í þessum umr. — til að ræða sérstaklega til hlítar hvernig hún hefur að málum staðið. Það er með slíkum endemum að vart hygg ég að finnist nein dæmi slíks sem þar hefur átt sér stað. Því þarf að breyta og koma í lag. Það verður einnig tekið eftir því, hvort núverandi meiri hl. hér á Alþ. styður að að því verði unnið að koma því máli í lag ásamt fjárveitingunum.