22.10.1980
Neðri deild: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (117)

11. mál, fiskvinnsluskóli

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég endurflyt þetta frv. Það var flutt á síðasta þingi af þáv. menntmrh. og kemur fram í óbreyttum búningi, þannig að ég hygg að hv. þdm. séu kunnugir efni þess. En þannig er, að í gildandi lögum um fiskvinnsluskólann er ákvæði um skyldur skólans til þess að halda námskeið fyrir starfsfólk í ýmsum greinum fiskiðnaðarins, og í 4. tölul. 1. mgr. í reglugerð nr. 71 1973, um mat á saltfiski til útflutnings, segir, að Fiskmat ríkisins, sem Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem nú starfar, leysti af hólmi, skuli halda námskeið fyrir fiskmatsmenn, en í lögunum um Framleiðslueftirlitið er ekkert beint ákvæði um að það skuli standa fyrir slíku námskeiðahaldi.

Í 3. mgr. 3. gr. laganna segir að Framleiðslueftirlitið skuli veita leiðbeiningar um fiskverkun og meðferð sjávarafurða. Og það er á grundvelli þessa ákvæðis og fyrrgreinds reglugerðarákvæðis sem Framleiðslueftirlitið hefur síðan haldið allmörg námskeið fyrir, menn til að öðlast þekkingu til þess að starfa sem fiskmatsmenn. Nú er það augljóst, að engin ástæða er til þess, að þessar stofnanir báðar séu að sinna þessu sama verkefni. Það orkar ekki tvímælis, að Fiskvinnsluskólanum ber skylda til að sinna þessu verkefni, og augljóst að það er vel komið í höndum hans. Hins vegar er eðlilegt að samvinna sé við Framleiðslueftirlitið um þetta námskeiðahald og fyrir því er gert ráð í því frv. sem hér er nú til umr. til breytinga á lögunum um Fiskvinnsluskólann. Þar er einnig gert ráð fyrir því, að Framleiðslueftirlitið hætti að halda námskeið og þannig verði komið í veg fyrir tvíverknað.

Ég vil geta þess, að hér liggur nú fyrir og er m.a. á dagskránni í dag frv. til breytinga á lögum um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem hæstv. sjútvrh. flytur og mun mæla fyrir. Hann er ekki staddur hér í dag. En ég vil minna á að mjög eðlilegt er að þessi frv. séu rædd samtímis og könnuð samtímis í n., m.a. hvað þetta atriði snertir fyrst og fremst.

Í 2. gr. þessa frv. um breyt. á lögum um Fiskvinnsluskólann er ákveðið að lokaprófi fiskiðnaðarmanna skuli ljúka með verklegu prófi. Gert er ráð fyrir að sett verði í reglugerð ákvæði um efni prófsins og um framkvæmd þess. Það hefur verið athugað, að hægt er að koma saman efni í slíkt verklegt próf, en ekki virðist endilega ástæða til að setja það í lög, hvernig því verði háttað, heldur verði sett reglugerð um efnið í rn., þar sem hægt er að hafa náið samstarf við kunnáttumenn um efni málsins. Auk þess hefur slík reglugerð náttúrlega þann kost, að það er auðveldara að koma við breytingum, ef á þykir liggja, í framkvæmd málsins frekar en þurfa að bera það undir Alþ. í hvert sinn sem eitthvert slíkt vandamál kynni að koma upp.

3. gr. er aftur um stjórn Fiskvinnsluskólans, Skólanefndarmennirnir eru fimm sem stýra Fiskvinnsluskólanum, og í núgildandi lögum er m.a. gert ráð fyrir að Fiskimálaráð svokallað tilnefni einn mann í þessa skólanefnd. En nú háttar svo til, að Fiskimálaráð hefur verið lagt niður fyrir nokkru, þannig að það er ekki eðlilegt að hafa það ákvæði áfram í lögunum um Fiskvinnsluskólann, að Fiskimálarað tilnefni einn af stjórnarmönnum skólans. Sú till. er hér uppi að breyta þarna til þannig að nýr tilnefningaraðili komi í staðinn fyrir Fiskimálaráð. Er gert ráð fyrir að það verði Fiskifélag Íslands, sem er hagsmunaaðili fiskiðnaðarins, sem tilnefni mann í skólanefnd í stað Fiskimálaráðs. Einnig er svo lagt til að reglulegir nemendur skólans. tilnefni einn nm. í stað tveggja áður, en hins vegar að fagfélag fiskiðnaðarmanna, Fiskiðn, tilnefni einn mann.

Þetta eru þær breytingar sem um er að ræða á stjórn Fiskvinnsluskólans, og hef ég tekið undir það sem aðrir ráðh. á undan mér hafa tekið undir, að flytja málið í þessu horfi. En eins og ég segi, þá er þetta frv., þó að það sé ekki stórt í sniðum, tengt öðru frv. sem er á dagskrá hér í dag, en verður víst ekki talað fyrir vegna þess að hæstv. sjútvrh. er ekki við. Ég tel ákaflega mikilvægt að sama nefnd fjalli um bæði þessi mál, en samkv. venjum okkar má segja að það falli ekki alveg saman í hvaða nefndir vísa skuli þessum málum. Samkv. venju okkar hér mundi breyting á fiskvinnsluskólalögum falla undir verksvið menntmn., en breytingar á lögum um Framleiðslueftirlit sjávarafurða mundu aftur á móti heyra undir sjútvn. Ég tel reyndar enga ástæðu til að vera með neina togstreitu milli nefnda í þessu efni, og ég ætla á þessu stigi að leggja það til við forseta, að ekki verði gengið endanlega frá till. um það, í hvaða n. þetta mál fer, heldur verði þess beðið, að hæstv sjútvrh. fái tækifæri til að tala fyrir því máli sem hann flytur. Ég held að það sé reyndar ekki stórmál hvor n. verður valin til þess arna. Aðalatriðið er að þessi mál fái athugun og séu könnuð af sömu n. eða þá a.m.k. í samvinnu nefnda, ef sú niðurstaða verður að vísa þeim til tveggja þm.

Ég vil þá fara fram á það, herra forseti, að málinu verði frestað um sinn og ákvörðun tekin síðar um það, hvernig fer um vísun til nefndar.