09.12.1980
Neðri deild: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)
Umræður utan dagskrár
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Það er ekki að ófyrirsynju að hv. þm. Friðrik Sophusson hefur kvatt sér hljóðs utan dagskrár til þess að spyrjast fyrir um fyrirætlanir ríkisstj. varðandi aðlögunargjaldið. Í blöðum heyrast mismunandi yfirlýsingar ráðh. um framtíð aðlögunargjaldsins. Aðlögunargjaldið fellur brott um næstu áramót. Í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir tekjum af því. Ekkert frv. hefur verið lagt fram á Alþ. um framlengingu þess. Því er ekki að furða þótt þm. spyrjist fyrir um það, hver ætlunin sé, þegar tíu dagar eða svo eru til þinghlés vegna jólanna.
Ég vil í tilefni þessa láta þá skoðun mína koma fram, að þetta mál sé dæmigert um störf eða starfsleysi ríkisstj., stefnu eða stefnuleysi ríkisstj. Ríkisstj. vissi, þegar hún settist í valdastólana, að aðlögunargjaldið var aðeins til ársloka. Ríkisstj. vissi að ráðh. hennar margir hverjir og þar á meðal þeir, sem um málið áttu að fjalla, höfðu skuldbundið sig gagnvart erlendum viðskiptaaðilum, Efnahagsbandatagi og efnahagssamvinnu Evrópuríkja að framlengja ekki aðlögunargjaldið. Engu að síður kemur ríkisstj. því ekki í verk að marka stefnu hvað við skuli taka þegar aðlögunargjaldið rennur út. Og ríkisstj. kemur sér enn ekki saman nú þegar þrjár vikur eru til áramóta og tíu dagar til þinghlés, hvað gera skuli. Okkur í stjórnarandstöðunni er sagt að 2. umr. um fjárlagafrv. eigi að fara fram í þessari viku, á fimmtudaginn kemur. (Gripið fram í: Á föstudaginn.) Já, það er ekki að furða þó þeirri umræðu sé seinkað, en ég hafði ekki nýrri fréttir. Gott að fá þessa frá fjvn.-manni. En engu að síður liggja ekki á lausu upplýsingar sem þessar.
Þá má enn fremur nefna að samkvæmt svokölluðum Ólafslögum er skylda ríkisstj. að láta lánsfjár- og fjárfestingaráætlun næsta árs fylgja fjárlagafrv. Í grg. fyrir fjárlagafrv. var gert ráð fyrir því, að þessi áætlun lægi fyrir um mánaðamótin okt.– nóv. Nú er komið fram undir miðjan desember. Það er liðinn einn og hálfur mánuður frá því að ríkisstj. hét þingheimi að þessi áætlun yrði lögð fram. En við höfum ekki séð neitt bóla á þessari áætlun enn þá. Það er lágmarkskrafa að hún verði í höndum þm. nokkrum sólarhringum fyrir 2. umr. fjárlaga. Ríkisstj. hefur brotið lög, og þetta er ekki eina dæmið um brot ríkisstj. á Ólafslögum.
Ég held að það verði líka að aðvara ríkisstj. um það, að Alþ. er engin sjálfsafgreiðslustofnun. Það er ekki virðingu Alþingis samboðið að hrúga á borð þm. örfáum dögum fyrir þinghlé málum sem ætlast er til að fái afgreiðslu áður en jólaleyfi hefst. Þetta á við um hvort tveggja varðandi aðlögunargjaldið og varðandi lánsfjár- og fjárfestingaráætlunina, og það á við t.d. þriðja málið sem er dæmigert um fálmkennd vinnubrögð ríkisstj., þ.e. ákvarðanir og stefnuleysi ríkisstj. í vaxta- og .verðtryggingarmálum. Hér hefur verið boðað á Alþ. allt frá því í vor, að fram yrði lagt frv. um framlengingu aðlögunartíma Ólafslaga hvað snertir vexti og verðtryggingu, en ég hef ekki orðið var við það frv. enn í dag. Ég veit að það er stór biti að kyngja fyrir ráðh. Alþb. að fallast á framlengingu aðlögunartíma Ólafslaga hvað snertir vexti og verðtryggingu vegna þess að það ákvæði Ólafslaga sögðu þeir sér vera allra óljúfast að samþykkja. Og þess vegna hlýtur það að vera stór biti í kok fyrir þá að gleypa þetta ákvæði, jafnvel svo kokvíðir sem þeir stundum geta verið, og staðfesta með framlengingu aðlögun vaxta, verðtryggingar og verðbólgu.
Ég nefni þessi þrjú dæmi til sönnunar og vitnisburðar um getuleysi núv. ríkisstj. sem jafnvel stjórnarandstöðunni rennur til rifja.