22.10.1980
Neðri deild: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (119)
13. mál, vélstjóranám
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Þetta mál var flutt á þinginu sem leið, en kom nokkuð seint fram og var ekki afgreitt úr n. Frv. er aðeins tvær gr., hin fyrri er efnisgrein, en sú síðari um það, hvenær lögin skuli taka gildi. Efni frv. er það, að aftan við 3. gr. laga um vélstjóranám komi ný mgr. sem hljóði þannig:
„Sá sem lokið hefur fyllsta námi frá Vélskóla Íslands á hverjum tíma og hefur auk þess lokið sveinsprófi í vélvirkjun eða annarri málmiðnaðargrein, sbr. 14. gr. þessara laga, á rétt á starfsheitinu vélfræðingur.“
Það kemur fram í grg., að þetta frv. er lagt fram samkv. ósk Vélstjórafélags Íslands. Starfsheitið vélstjóri tekur núna til manna með mjög mismunandi menntun og vélstjórar eru sammála um það — það þykist ég hafa kynnt mér — að eðlilegt sé að greina á milli manna sem nú heita einu nafni vélstjórar, það sé eðlilegt að greina þar á milli með sérstöku starfsheiti fyrir þá sem lokið hafa lengstu skólanámi. Eins og menn vita er fullt vélstjóranám mjög langt nám, það jaðrar við það að vera eins og lengsta framhaldsskólanám eða háskólanám, og er því mjög eðlilegt að þarna sé gerður nokkur munur á. Er því lagt til að þeir, sem hafa lokið þessu lengsta námi og hafa sveinspróf í vélvirkjun eða annarri málmiðnaðargrein, fái að heita vélfræðingar, ef þetta verður að lögum.
Orðið vélfræðingur er ekki nýtt í málinu, hygg ég. Það var notað á tímabili um tiltekna menn, sem nú mundu vera kallaðir tæknifræðingar, og að því leyti til er þetta orð ekki notað lengur og að mínum dómi hættulítið að taka það upp um þá vélstjóra sem þarna ræðir um.
Ég ætla ekki að hafa öllu fleiri orð um þetta, herra forseti, en ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og til hv. menntmn.