10.12.1980
Efri deild: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1267 í B-deild Alþingistíðinda. (1214)
162. mál, ráðgjöf og fræðsla varðandi fóstureyðingar
Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Hv. 2. þm. Austurl. sagði að tölur um fjölgun fóstureyðinga segðu ekki alla söguna því að það hefðu verið ólöglegar fóstureyðingar og konur hefðu í stórum stíl, eins og hann orðaði það, farið til útlanda. Þessu sjónarmiði hefur mjög verið haldið fram og hv. þm. er ekki einn um það. En ég held að hér sé um miklar ýkjur að ræða. Ég neita því ekki, að eitthvað hafi verið um þetta, en ég held að það hafi ekki verið svo mikið að það breyti nokkru um þá niðurstöðu að lögin frá 1975 eru meginorsök að aukningu fóstureyðinga.
Hv. þm. sagði að það væru óábyggilegar tölur sem væru til um hve margar konur hefðu farið til útlanda. Ég held að það séu ekki óábyggilegar tölur. Ég er hér með tölur sem ná ekki yfir allt í þessu efni, en gefa vísbendingu, og þær tölur eiga að vera öruggar. Mér skilst að það hafi verið einkum til Bretlands sem konur leituðu til að fá fóstureyðingu fyrir átið 1975. Nú get ég gefið þær upplýsingar, að samkvæmt heilbrigðisskýrslum heilbrigðisstjórnarinnar í Bretlandi fyrir árið 1974 kemur fram að það eru 23 íslenskar konur sem létu eyða fóstri í Bretlandi á því ári, — 23 íslenskar konur. Ég held að þessar upplýsingar, sem ég tel að verði ekki vefengdar, bendi rækilega til þess, að sú fullyrðing mín sé rétt að lögin frá 1975 og það ákvæði þeirra, að félagslegar ástæður heimili fóstureyðingar, séu meginástæðan fyrir þeirri uggvænlegu þróun sem við stöndum frammi fyrir með fjölgun fóstureyðinga.
Hv. 2. þm. Austurl. vék nokkuð að úrræðum til að ráða bót á félagslegum vanda. Við erum sammála um að félagslegar aðgerðir hljóta að koma þarna að gagni. En þó var að skilja á máli hv. þm. að það væri ekki einhlítt að félagslegar aðgerðir kæmu að gagni. Ég er honum sammála um að félagslegar aðgerðir, hverjar sem þær eru, hve miklar sem þær eru, geta aldrei orðið fullkomin trygging fyrir því, að fyrir öllu sé vel séð í uppeldi eins barns. Börn geta notið hins besta uppeldis og atlætis við fátækt, og ríkidæmi er engin trygging í þessu efni. Ég er sammála hv. 2. þm. Austurl. ef það er þetta sem hann meinar. En ég er ekki sammála honum ef hann meinar að undir einhverjum kringumstæðum eigi að leyfa fóstureyðingar af félagslegum ástæðum. Ég tel, eins og ég hef áður skýrt rækilega, að slíkt sé flótti frá vandamálinu og samræmist ekki þeim siðferðisreglum sem við Íslendingar höfuð viljað tileinka okkur.
Hv. 3. þm. Vesturl. sagði að það væri sumt yfirborðslegt sem kæmi fram í tölum sem væru nefndar í sambandi við fóstureyðingar. Ég er honum sammála um að tölur segja ekki allt í þessu efni. Við getum verið sammála um það. En það vil ég segja honum að veruleikinn er miklu dekkri en þessar tölur benda til.
Hv. þm. sagði að það væri fróðlegt að vita hvernig lögin væru framkvæmd. Víst er ekkert nema gott um það að segja, að menn hafi sem gleggstar upplýsingar um það. Ég hef fyrr, þegar ég hef mælt fyrir þessu máli, farið nokkuð út í þá sálma. Ég sagði í upphafi að ég ætlaði ekki að fara að endurtaka meginefni þess sem ég hef áður sagt um þetta mál. En ég vil segja það hér og fullyrða, að lögin eru þannig framkvæmd að jafna má til þess, að fóstureyðingar séu frjálsar nema þegar fóstrið hefur náð miklum þroska. Ég vil fullyrða þetta. Ég minni hv. þm. líka á það, að í umr. 1975 um frv. að lögunum deildu menn um hvað þeir vildu hafa fóstureyðingar frjálsar. Sumir vildu ganga skemmra, aðrir vildu ganga lengra en bókstafur þessara laga, sem nú gilda, segir til um. En oddviti þeirra manna, sem vildu hafa ákvæðin sem frjálsust, sagði þegar frv. var komið í þann búning sem það var afgreitt: Gott og vel, þetta gerir ekkert til vegna þess að frv. er þannig að í framkvæmd verður um frjálsar fóstureyðingar að ræða. — Þetta geta menn séð í umr. um málið. Og þessi maður hafði alveg rétt fyrir sér. Það hefur komið fram sem hann hélt fram.
Aðeins eitt atriði sem ég skal að lokum vík ja að. Það er atriði sem hv. 2. þm. Austurl., svo að ég komi aftur að honum, vék að. Hann sagði að það væri sín skoðun að sjálfsákvörðunarréttur konunnar ætti að gilda í þessu efni. Ég ber ákaflega mikla virðingu fyrir þeirri skoðun, að sjálfsákvörðunarréttur eigi að ríkja og hver og einn maður eigi að hafa leyfi til að ráða sér sjálfur, ráða fyrir sér. En ef þessi réttur á að vera einhvers virði verða einhver takmörk að vera. Og takmörkin hljóta að vera þau, að það hafi enginn leyfi, enginn sjálfsákvörðunarrétt til þess að tortíma mannlegu lífi, sem fæðist til þess að hafa sama sjálfsákvörðunarrétt fyrir sig.
Það hefur oft verið talað um sjálfsákvörðunarrétt og í mörgum samböndum. Kannske er eitt það frægasta í því efni sjálfsákvörðunarrétturinn sem deilt var um á hinum sögulegu fundum, — kappræðum sem fram fóru á sléttum Bandaríkja Ameríku fyrir 120 árum og tveim árum betur. Þar áttust við tveir menn.
Annar þeirra, einn glæsilegasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna, þekktur og viðurkenndur, barðist fyrir sjálfsákvörðunarrétti hinna einstöku ríkja Bandaríkjanna. Samkv. þessum sjálfsákvörðunarrétti áttu hin einstöku ríki að hafa rétt til þess að fjötra svarta menn í þrældóm. Ríkin áttu að hafa sjálfsákvörðunarrétt til þessa.
Hinn maðurinn, sem andmælti þessu, var ekki þekktur þá. En hann kom með þá skoðun, að hversu þýðingarmikill sem sjálfsákvörðunarrétturinn væri gæti hann aldrei þýtt það, að leyfilegt væri að gera það sem væri rangt í sjálfu sér og það væri rangt í sjálfu sér að binda nokkurn mann í þrældóm.
Af þessum málum varð stór saga, miklir atburðir og borgarastyrjöld. En nú finnast ekki menn sem halda því fram, að Stephen Douglas hafi haft á réttu að standa, en Abraham Lincoln á röngu. Menn geta talað um sjálfsákvörðunarréttinn í ýmsum samböndum og frelsið. Við skulum dá það. En það verða að vera takmörk fyrir sjálfsákvörðunarrétti, fyrir frelsi. Og ef það eiga að vera einhver takmörk hljóta það að vera þau takmörk sem banna að tortíma mannlegu lífi af hvaða ástæðum sem er.