10.12.1980
Neðri deild: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)
144. mál, eftirlaun til aldraðra
Frsm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 97 frá 1979, um eftirlaun til aldraðra. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið sér til ráðuneytis Guðjón Hansen tryggingafræðing sem kom á fund hennar. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru hv. þm. Jóhann Einvarðsson og hæstv. landbrh. Pálmi Jónsson.
Ég vil hins vegar vekja athygli á því, að þau mistök hafa orðið við nál. þetta, og raunar einnig það nál. sem ég mælti fyrir hér áðan, að nafn Magnúsar H. Magnússonar hefur fallið niður. Ég vil biðja menn að afsaka það, að á einhvern hátt hefur þetta gerst, en hv. þm. Magnús H. Magnússon var sannarlega viðstaddur afgreiðslu þessara mála.