10.12.1980
Neðri deild: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (1256)

152. mál, biskupskosning

Matthías Á Mathiesen:

Herra forseti. Ég held að það hafi aldrei gerst að máli, sem nefnd hefur flutt, hafi verið vísað til nefndarinnar aftur. Hins vegar hefur það gerst oft, sem hæstv. fjmrh. sagði áðan, að nefndin tekur málið til meðferðar og vinnur að því vegna þess að hún hefur flutt það. En ég held að óvanalegt sé að máli, sem nefnd flytur, sé vísað til hennar samkv. þeim venjum sem hér hafa verið.

Menntmn. þessarar hv. deildar flytur þetta mál, 1. umr. er lokið hér og áður en málið kemur til 2. umr. hefur nefndin að sjálfsögðu, — ég er sammála ráðh. í því, — leitað til þeirra aðila, sem hún telur rétt að leita til, og hefur fjallað um málið. Ég held að venjan sé sú, að formlega sé máli ekki vísað til nefndarinnar aftur eftir 1. umr. þegar svona stendur á.