11.12.1980
Efri deild: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)
111. mál, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Eins og frsm. n. gat um rita ég undir þetta nál. með fyrirvara. Fyrirvarinn byggist á því, að ég tel að þetta kerfi eins og það er, þessi biðreikningur og allt það sem verður núna lögfest væntanlega, sé með þeim hætti, að þar sé eingöngu tjaldað til einnar nætur og það sé einn liður í þeim frumskógi lífeyrissjóðanna sem verður að uppræta mjög fljótlega. En ég vil ekki standa í vegi fyrir því, að þetta verði núna lögfest. Það munu vera um 11 þús. nöfn á þessum biðlista og eins og ég sagði áðan er þetta hinn mesti frumskógur. En talið er að það muni verða eitthvað auðveldara að fást við þetta næstu mánuðina og misserin, þar til nýskipan lífeyrismála hefur komist á, með því að lögfesta þetta. Hef ég þess vegna staðið að meirihlutaálitinu þótt ég telji, eins og ég áðan sagði, að allt sé þetta hinn mesti óskapnaður.