11.12.1980
Neðri deild: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)
152. mál, biskupskosning
Frsm. (Ingólfur Guðnason):
Herra forseti. Frv. það, sem hér á að fara að greiða atkvæði um, frv. um biskupskosningar, er flutt af menntmn. Nd. samhljóða. Einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma við frv., og sama rétt hafa að sjálfsögðu allir hv. þm. í Nd.
Við umr. um frv. í gær komu engar aths. fram, hvorki frá nm. né öðrum, sem gefa það til kynna að ástæða sé til að vísa frv. aftur til menntmn. Nd. Tel ég því að vísun þess þangað hafi engan tilgang og beri því að vísa frv. beint til 2. umr.