11.12.1980
Neðri deild: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)

152. mál, biskupskosning

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Menntmn. beggja deilda hafa fjallað efnislega um þetta mál og hafa reynst vera sammála um það. Af þeim ástæðum sé ég enga ástæðu til að vísa málinu til menntmn. Ég skil áhuga hæstv. fjmrh., en tel það algjörlega ástæðulaust.