11.12.1980
Neðri deild: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1312 í B-deild Alþingistíðinda. (1304)

143. mál, Fiskimálasjóður

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar um að hækka hámarksupphæð Fiskimálasjóðs til lánveitinga úr 2 millj. í 5 millj. kr. Stjórn sjóðsins er sammála um að geta sjóðsins og aðrar aðstæður leyfi að þessi upphæð verði hækkuð sem segir í frv.

Nefndin hefur rætt málið á fundum sínum. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Halldór Blöndal og Páll Pétursson, en viðstaddir nm. voru sammála um að leggja til að frv. yrði samþykkt.