11.12.1980
Neðri deild: 29. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (1316)
142. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Frsm. (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Það er aðeins vegna þess að ég gleymdi að minnast á það við 2. umr., að nm. veltu talsvert fyrir sér setningu í 2. gr. frv. þar sem segir að ákvæði reglugerðarinnar skuli gilda frá 1. júní 1980. Okkur þótti það vera lítil vinnuhagræðing að láta þau gilda frá þessum tíma. Þarna munu standa á bak við loforð ráðh. og vararáðh. og þótti okkur ekki ástæða til að hreyfa við því að svo komnu máli.