23.10.1980
Sameinað þing: 8. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í B-deild Alþingistíðinda. (132)

Stefnuræða forseta og umræða um hana

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í máli hv. stjórnarandstæðinga kom það fram, að ég hafi í stefnuræðu minni talið þjóðinni trú um að allt sé í hinu besta lagi í íslensku þjóðfélagi. Þessi ummæli þeirra stangast mjög á við það sem fram hefur komið. M.a. komst ég nú svo að orði í stefnuræðunni: „Íslenska þjóðin á við mikla og margháttaða örðugleika að etja. Verðbólgan er þar verstur þrándur í götu. Hún er að verulegu leyti okkar eigin smíð, Íslendinga. Til þess að vinna bug á þessum alvarlegu erfiðleikum þurfa allir að taka á sig skyldur og byrðar.“

Með stefnuræðunni, eða nokkrum dögum síðar, var hv. þm. send þjóðhagsáætlun yfir árið 1981 sem nú hefur verið formlega lögð fram á Alþingi. Í þeirri ítarlegu grg., sem er nokkurs konar fylgiskjal með stefnuræðunni, kemur í mörgum atriðum mjög greinilega fram, hvers konar erfiðleikar steðja að okkur og hvað hefur farið á annan veg en við höfum óskað eftir. Þessi ummæli hv. stjórnarandstæðinga, að ég hafi gert tilraun til þess að fegra ástandið og telja mönnum trú um að allt sé í hinu besta lagi, fá því ekki staðist.

Meðal þess, sem erfiðlega gengur að ráða við, er hallinn á viðskiptum okkar við útlönd. Það er gerð ítarleg grein fyrir honum í þjóðhagsáætlun og af hverju hann stafar. Þessi halli, sem er talið að muni nema um eða rúmlega 40 milljörðum króna á þessu ári, er að vísu í hlutfalli við þjóðarframleiðslu miklu minni en hann hefur stundum verið á síðasta áratug. Engu að síður er hann alvarlegur og þarf að vinna að því með tiltækum ráðum að draga verulega úr honum og eyða honum, ef unnt er, á næsta ári. En þessi viðskiptahalli á sér ákaflega augljósar skýringar. Ein meginástæðan eru erfiðleikar Flugleiða og sá mikli halli sem stafar af þeim. Önnur ástæða er hækkun vaxta á erlendum markaði sem við höfum að sjálfsögðu ekki ráðið við.

Það er fleira en viðskiptahallinn sem hefur valdið okkur nokkrum vonbrigðum. Við vitum, eins og fram hefur komið bæði í stefnuræðu minni og þjóðhagsáætlun, að gengi íslensku krónunnar hefur á þessu ári lækkað miklu meira en stjórnin gerði ráð fyrir og vonaðist eftir þegar hún tók til starfa. Hér hefur verið gerð ítarleg grein fyrir því hvers vegna. Ætla ég að fáir geti talið með nokkrum sanni að hér hafi verið nokkuð undan dregið. Ég lét það koma greinilega fram í ræðu minni, að einn mikilvægur þáttur í efnahagsmálunum, peningamálin, þ.e. útlán viðskiptabankanna, hefði gengið úr skorðum og það var fyrst eftir að ríkisstj. hafði sett fram alvarlegar aðvaranir í því efni sem tekið var í taumana, og eins og ég gat um í stefnuræðu minni hefur orðið verulegur bati í síðustu mánuði.

Þannig er það á ýmsum sviðum sem við eigum við erfiðleika að etja og mál hafa gengið verr en við hefðum óskað. En því fer fjarri að þessar staðhæfingar hv. stjórnarandstæðinga fái staðist, að á nokkurn hátt sé verið að draga fjöður yfir eða reyna að dylja þær staðreyndir.

Það er e.t.v. rétt að draga saman í lokin í nokkrum meginatriðum það sem mestu máli skiptir í því sem við höfum verið að ræða hér.

Það er rétt að rifja það upp fyrst, að verðbólgan var á síðasta ári, frá upphafi til loka ársins, rúm 60%. Í ár verður hún lægri, rúmlega 50%. Þótt verðbólgan sé að sjálfsögðu allt of mikil hér hefur miðað í rétta átt á þessu ári. Hv. stjórnarandstæðingar eru fáorðir um þetta, en velja stóryrði og fullyrðingar í staðinn. Hverjar eru þá orsakir þess að ekki hefur náðst meiri árangur en sá sem ég hér nefni. Það er líka ljóst og hefur komið skýrt fram. Það er sölutregða og verðlækkun á frystum fiski erlendis. Þetta hefur ásamt verðhækkunum og kostnaðarhækkunum innanlands valdið miklu meira gengissigi en við höfum óskað.

Það er röng fullyrðing, að gengissig hafi að nokkru leyti verið ákvarðað vegna hagsmuna ríkisins, eins og kom fram hjá öðrum hv. andstæðingi. Það eru tilgátur einar sem ekki eiga sér neina stoð í veruleikanum. Gengissigið er eingöngu vegna erfiðleika frystiiðnaðarins og ráðstafana til að koma honum á réttan kjöl, en gengissig eykur að sjálfsögðu verðbólgu. Allir vita að af því leiðir hækkun á ýmsum vörum, og almennt hefur sú regla verið sett fram, að 3% gengislækkun eða gengissig þýði um 1% hækkun framfærsluvísitölu á mjög skömmum tíma fyrst eftir að gengislækkunin er ákvörðuð. Vegna víxlverkana verða áhrifin svo enn meiri síðar. Á sama tíma sem af þessum ástæðum hefur þurft að lækka gengið hafa innfluttar vörur okkar hækkað í verði á árinu um 12–14% í erlendum gjaldeyri. Vitanlega hefur þetta hvort tveggja unnið mjög á móti viðleitni okkar til að ráða við verðbólguna.

Þegar þetta er haft í huga er það skýring að vissu leyti á því, að ekki hefur náðst meiri árangur. Þó hefur sá árangur náðst, að verðbólgan verður minni í ár en hún var á s.l. ári.

Það er í þessu sambandi mikilvægt atriði og kannske eitt aðalatriðið í íslenskum þjóðmálum, að þrátt fyrir margar torfærur hefur tekist að halda nægri atvinnu og afstýra atvinnuleysi.

Hinum miklu vandamálum frystihúsa og útgerðar hefur verið mætt með margvíslegum ráðstöfunum og þessum undirstöðuatvinnuvegum verið gert kleift að halda áfram rekstri. Ríkisstj. mun að sjálfsögðu halda því áfram, að reyna að tryggja rekstrargrundvöll aðalútflutningsatvinnuveganna.

Ef við nefnum nokkur fleiri meginatriði í sambandi við efnahagsmálin, þá má að sjálfsögðu minna á ríkissjóð sem hefur náð jafnvægi, eins og ég gerði hér grein fyrir og hæstv. fjmrh. gerði ítarlega grein fyrir í ræðu sinni. Því er haldið fram, að það náist með því einu að leggja þunga skatta á landslýðinn. Staðreyndin er hins vegar sú, að ef við miðum útgjöld ríkisins og tekjur ríkisins eða skattana við hlutfall af þjóðarframleiðslu, eins og við höfum oft hér gert, þá kemur það í ljós að útgjöldin og skattabyrðin í heild er lægri í ár, 1980, heldur en árið áður og verður samkv. fjárlagafrv. fyrir 1981 ívið lægri en á þessu ári.

Nú er það þannig, að þótt við óskuðum þess að geta lækkað skattaálögur í ýmsum greinum, þá er það ekki hægt að ráði sem stendur vegna þess, hversu mikla áherslu við leggjum á það í baráttunni við verðbólguna að ríkissjóður sé í jafnvægi. Þrátt fyrir það hefur verið ákveðið að fella niður einn skatt, nýbyggingargjaldið. Enn fremur hefur verið ákveðið að endurskoða framkvæmd skattalaganna frá 1978 og lagfæra ýmsa annmarka og agnúa sem koma þar fram. Til þess að nefna þó eina prósentu, þá er gert ráð fyrir í fjárlagafrv. fyrir árið 1981 að hlutfall skatta af þjóðarframleiðslu verði um 28.5%, sem verður þá lægra en í ár.

Önnur atriði er kannske rétt að nefna. Ég hef drepið áður á útlánin og þarf ekki að fara fleiri orðum um þau. En varðandi sparnaðinn eða sparifjármyndun, sem er eitt grundvallaratriði fyrir allt efnahagslíf og atvinnulíf þjóðarinnar, vil ég endurtaka það sem kom fram í ræðu minni áðan, að sparifjármyndun eða sparnaður hefur aukist meira hlutfallslega fyrstu 9 mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra, eða um 50% nú á móti rúmum 43% í fyrra.

Hins vegar í sambandi við vaxtamálin, þótt ekki sé möguleiki að fara út í umr. almennt um þau, þá verðum við að gæta mjög hófs í vaxtahækkunum vegna atvinnurekstrarins. Það er auðvitað nokkurt ósamræmi í málflutningi hv. stjórnarandstæðinga, þegar annars vegar er kvartað yfir því, að ríkisstj. geri ekki nóg fyrir atvinnureksturinn til að halda honum gangandi, en samhliða eru þessir sömu menn hávaxtamenn, sem hafa ásakað stjórnina fyrir að hafa ekki leyft vaxtahækkanir tvívegis á þessu ári.

Varðandi kjarasamninga, þá er ekki tími hér til að fara rækilega út í það mál. En ef menn bera þá samninga, sem nú eru ýmist gerðir eða verða gerðir á næstunni, saman við kjarasamninga sem gerðir hafa verið t.d. fyrir þrem árum röskum og fyrir sex árum, þá er þar ekki um sambærilegt að ræða. Bæði í febr. 1974 og í júní 1977 voru gerðir samningar þar sem kauphækkanir voru í fyrsta áfanga töluvert yfir 20%. Í „sólstöðusamningunum“ frá 1977 var til viðbótar innleitt vísitölukerfi af fullum krafti. Nú hins vegar hefur í samningunum við opinbera starfsmenn verið gætt hófs og reynt að gæta þess, að þeir valdi ekki verðbólgu eða verðþenslu að neinu ráði. Ég vænti þess, að svipuð niðurstaða geti orðið í þeim samningum sem nú eru framundan.

Að lokum, herra forseti, þar sem ræðutími er að enda, er e.t.v. rétt að nefna eitt atriði enn; sem er grundvallaratriði í allri okkar stjórnmálabaráttu, samhliða baráttunni við verðbólguna, að gæta þess þó, að halda nægri atvinnu og að ekki verði atvinnuleysi í okkar landi. Atvinnuleysi er böl sem við verðum öll að vera sammála um að bægja frá.

Um daginn ræddi við mig reyndur maður og gagnmenntaður í skóla lífsins. Hann mælti m.a. á þessa lund: „Við Íslendingar kvörtum sáran yfir verðbólgunni, en hér hafa allir menn atvinnu. Í grannlöndum okkar er verðbólgan miklu minni, en ömurlegt atvinnuleysi.“ Síðan spurði þessi maður: „Hvorn kostinn mundir þú fremur kjósa ef þú mættir velja?“ „Hvorugan,“ svaraði ég, því að mitt markmið er að koma verðbólgunni niður á viðunandi stig og halda um leið nægri atvinnu á Íslandi. Ég trúi því, að það megi takast og muni takast.