11.12.1980
Efri deild: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (1337)

144. mál, eftirlaun til aldraðra

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það frv., sem ég flyt hér, er lagt fram í samræmi við fyrirheit ríkisstj. í sambandi við lausn kjaradeilu Alþýðusambands Íslands og atvinnurekenda í okt. s.l., nánar tiltekið 27. okt. Frv. fjallar um breytingu á lögum um eftirlaun aldraðra og gerir ráð fyrir því, að lífeyrir samkv. þeim lögum megi taka breytingum á sömu dögum og almenn laun í landinu, þ.e. 1. des., 1. mars, 1. júní og 1. sept., en hingað til hefur lífeyrir samkv. þessum lögum breyst 1. jan.,1. apríl,1. júlí og 1. okt. Þetta frv. hefur ekki útgjöld í för með sér, heldur aðeins tilfærslu á útgjöldum. Mun það skakka að því er ríkissjóð varðar um það bil 4 millj. kr. á þeim hluta ársins 1980 sem eftir lifir.

Frv. hefur fengið meðferð í hv. Nd. og var afgreitt þaðan samhljóða. Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessar umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn., og legg á það áherslu, að málið fái afgreiðslu nú fyrir hátíðarnar.