12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1336 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)
1. mál, fjárlög 1981
Frsm. meiri hl. (Geir Gunnarsson):
Herra forseti. Fjvn. hefur fjallað um frv. til fjárlaga fyrir árið 1981 á 35 formlegum fundum auk fjölmargra funda í undirnefndum sem fjallað hafa um einstaka málaflokka, og áður en þing kom saman eða frá 1. okt. átti nefndin um 60 viðtöl við fulltrúa sveitarfélaga.
Vegna þess, hve mikill og vaxandi hluti þess tíma, sem nefndin hefur til umráða fyrir 2. umr., hefur farið í viðtöl, ákvað nefndin að taka upp þann hátt í fyrrahaust að ljúka viðtölum við sveitarstjórnarmenn áður en þing hæfist.
Afgreiðsla núgildandi fjárlaga varð með einstæðum hætti að því leyti, að þrjú fjárlagafrv. komu fram og störf fjvn. við fjárlagaafgreiðslu stóðu frá 1. okt. 1979 fram til páska s.l. vor. Sú tilhögun að ljúka viðtölum við sveitarstjórnarmenn fyrir þingsetningu í fyrrahaust auðveldaði nefndinni það óvanalega hlutverk að fjalla um þrjú fjárlagafrv. fyrir sama árið, og ég held að nm. geti verið sammála um að þessir breyttu starfshættir, sem aftur voru viðhafðir nú í haust, hafi dregið talsvert úr þeim tímaskorti sem einkennt hefur störf nefndarinnar á undanförnum árum vegna ásóknar í viðtöl við nefndina og aukið umfang viðfangsefnisins almennt.
Nefndin hefur notið aðstoðar hagsýslustjóra, Brynjólfs Sigurðssonar, og starfsliðs hans. Fyrir hönd nefndarinnar þakka ég þau störf og þá ekki síður starfsmanni nefndarinnar, Magnúsi Ólafssyni, fyrir mjög vel unnin störf nú sem endranær. Meðnefndarmönnum mínum öllum færi ég þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, þolinmæði og umburðarlyndi í minn garð, en á það hefur reynt enn meira en áður vegna sérstakra anna minna við önnur störf lengst af samhliða fjárlagaafgreiðslunni.
Ég fagna því, að ávallt skuli ríkja í störfum nefndarinnar sá gamli, góði starfsandi, að fulltrúar stjórnarandstöðunnar leggja sig ekki síður fram en stjórnarsinnar við að tryggja að fjárlagafrv. fái afgreiðslu í tæka tíð. Þökk sé þeim fyrir drengilegt samstarf. Gætu fulltrúar stjórnarandstöðunnar þó sjálfsagt haft tilefni til að kvarta yfir ýmsu sem betur mætti fara í störfunum.
Eins og áður hefur reynst erfitt að tryggja að erindi berist svo tímanlega, að sanngjarnt sé að ætlast til að nefndin hafi tíma til að sinna þeim. Þó tel ég að talsvert hafi þokast í rétta átt í þessu efni. Nefndin kom því nú í fyrsta sinn formlega á framfæri við einstök ráðuneyti, að hún óskaði eftir því að athugasemdir og beiðnir um breytingar á fjárlagafrv. bærust fyrir 1. nóv. Á þessu varð nokkur misbrestur og afgreiðsla erinda frá ráðuneytunum mun væntanlega verða eitthvað í samræmi við það. Ég vænti þess, að öllum til þæginda komist sá háttur á sem nefndin óskaði eftir.
Það er síðan ástæða til að leggja á það áherslu, að þegar ríkisstj. hefur sameiginlega lagt fram fjárlagafrv. ætti ekki að þurfa að búast við því, eins og átt hefur sér stað, að yfir fjvn. rigni beiðnum frá einstökum ráðuneytum um útgjaldaaukningu sem nemur hundruðum millj. kr., svo ekki séu nefndar hærri tölur. Einkum er það ekki til að auðvelda fjvn. starfið, þegar slíkum sendingum fylgja ekki svo mikið sem ábendingar um tekjuauka eða útgjaldalækkanir í staðinn.
Fjvn. leggur nú við 2. umr. fram tillögur um skiptingu fjárveitinga til svo til allra þátta verklegra framkvæmda í A-hluta fjárlagafrv. Enn fremur hefur nefndin lokið skiptingu safnliða sem nefndin annast sjálf skiptingu á, svo sem útgáfustyrkja, framlaga til héraðasafna og verndar gamalla bygginga, framlaga til að viðhalda byggð og halda uppi gistingu svo og til sjúkraflugs.
3. umr. bíða B-hluta fyrirtæki og heimildagrein að venju, auk þess ýmis einstök erindi svo og framlög til sjúkra- og hjúkrunarstofnana á vegum annarra aðila en ríkis- og sveitarfélaga. Enn fremur bíða 3. umr. málefni Landspítalans. Á milli 2. og 3. umr. mun fjvn. athuga hvernig best verði séð fyrir nauðsynlegustu byggingarframkvæmdum Landspítalans, og enn fremur er í athugun með hvaða hætti unnt væri að tryggja stofnuninni úrlausn varðandi kaup á sneiðmyndatæki, en á það hefur verið lögð þung áhersla.
Það fer ekki á milli mála, að erfitt er að gera sér heildarmynd af fjárlagaafgreiðslunni þegar upplýsingar skortir m.a. um endanlegt mat á tekjuliðum frv., og í raun ofætlun að í nál. og umfjöllun við 2. umr. geti komið fram raunhæft mat eða sú heildarmynd sem fyrir hendi ætti að vera við 2. umr. þingmáls, ekki síst þegar um er að ræða svo veigamikið mál sem fjárlögin eru.
Ég lagði á það áherslu fyrir 2. umr., að fyrir 2. umr. gæti legið fyrir endurskoðuð tekjuáætlun og brtt. við tekjuhlið. Því miður fór svo sem næstum ávallt fyrr við afgreiðslu fjárlaga, að nauðsynlegar upplýsingar fengust ekki. Þjóðhagsstofnun taldi ekki gerlegt að endurmeta tekjuáætlun fyrr en fyrir lægju innheimtutölur fyrir nóvembermánuð. Forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar mætti á fundi fjvn. hinn 3. des. s.l. og greindi nefndarmönnum frá áætlun um tekjur ríkissjóðs á þessu ári og hvers vænta mætti almennt um tekjuáætlun fyrir næsta ár, en stofnunin taldi ekki gerlegt að leggja fram nýja tekjuáætlun í tæka tíð fyrir 2. umr. eins og ég áður greindi. Hinn 9. des. s.l. barst eftirfarandi skýrsla frá Þjóðhagsstofnun varðandi tekjuáætlun fjárlaga fyrir árið 1981, með leyfi hæstv. forseta:
„Lauslegar áætlanir um tekjur ríkissjóðs á árinu 1980, sem gerðar eru á grundvelli innheimtutalna fyrstu tíu mánuði ársins og vísbendinga um nokkra liði í nóvember, benda til að í heild verði innheimta heldur meiri en gert var ráð fyrir í áætlun þeirri sem sett var fram í grg. fjárlagafrv. 1981. Breytingum er hins vegar misskipt, því að annars vegar má ætla að beinir skattar reynist mun verr en áður var talið, en óbeinir skattar reynist drýgri. Beinir skattar verða að líkindum a.m.k. 3 milljörðum kr. undir fyrri spá, og raunar þarf mikla bjartsýni til að halda sér við svo lítið frávik. Aðrir skattar og tekjur gætu á hinn bóginn reynst allt að 5 milljörðum umfram fyrri spá. Gangi þetta eftir yrðu heildartekjur 373.9 milljarðar í stað 371.9 milljarðar í fyrri spá.
Eins og jafnan er hætta á frávikum í lok ársins, og þó ekki síður í endanlegu uppgjöri tekna, þannig að allt er þetta óvissu undirorpið, ekki síst hvað varðar beina skatta. Ljóst er að þessar vísbendingar valda nokkurri breytingu á tekjuáætlun ársins 1981. Að hluta stafa breytingarnar af áhrifum kjarasamninga á þessu hausti, þótt ekki sé gert ráð fyrir breytingum á meginforsendum fjárlagafrv. hvað varðar framvindu kauptaxta, verðlags og kaupmáttar á næsta ári. Áhrifin koma fram með beinum hætti í launaskatti, en óbeint fram í aðflutningsgjöldum og veltusköttum vegna áhrifanna á innheimtu 1980. Loks hefur gjaldskrám verið breytt í tveimur mikilvægum tilvikum, þ.e. í bensíngjaldi og útsöluverði Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, og hafa þær breytingar áhrif á áætlanir næsta árs. Innheimta beinna skatta á þessu ári bendir til þess, að miðað við aðrar forsendur óbreyttar verði að reikna með lægra innheimtuhlutfalli 1981 en gert er í áætlun fjárlagafrv. og þar með minni tekjuheimtu. Ákvarðanir um breytingar á skattstigum og fleira hafa hins vegar ekki verið teknar enn sem komið er og því engu slegið föstu að svo stöddu um beina skatta í tekjuáætlun. Þjóðhagsstofnun mun endurskoða tekjuáætlun fjárlagafrv. 1981 næstu daga, strax eftir að innheimtutölur nóvembermánaðar hafa borist.“
Þetta var skýrsla Þjóðhagsstofnunar.
Það hefur verið meginreglan í störfum fjvn. að þessu sinni að standa gegn óskum og kröfum um hækkun útgjalda, en erindi um aukin fjárframlög hafa borist svo hundruðum skiptir. Í raun má segja að nefndin reyni, eftir því sem rök standa til, að verja þann niðurskurð sem fjárlaga- og hagsýslustofnun og hæstv. ríkisstj. hafa framkvæmt á fjárlagabeiðnum stofnana ríkisins og annarra aðila við samningu fjárlagafrv. Segja má að brtt. nefndarinnar á þskj. 209 og 220 séu aðallega tvenns konar. Tekið hefur verið nokkurt tillit til einstakra hækkunarbeiðna þegar í frv. hefur ekki verið gert ráð fyrir neinni hækkun í átt við almennar verðlagsbreytingar og nefndinni hefur ekki þótt ástæða til raunlækkunar í þeim mæli. Að öðru leyti er aðallega um að ræða tillögur um nokkra hækkun á framlögum ríkisins til verklegra framkvæmda frá því sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv., einkum þar sem um er að ræða niðurskurð að raungildi í málaflokkum sem stöðugt hafa verið skornir niðúr undanfarin ár í þeim mæti, að nefndin taldi ekki fært án viðbótarfjár að koma saman tillögum um skiptingu sem samrýmdust óhjákvæmilegum framgangi verka sem þegar eru komin áleiðis í framkvæmdum. Enda þótt einstakir framkvæmdaþættir hafi þannig verið hækkaðir talsvert og jafnvel þar á meðal þættir sem ekki hafa lækkað að raungildi undanfarin ár, svo sem framlag til sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, sem hækkar samkv. tillögum fjvn. um 700 millj. kr. frá fjárlagafrv., þá er heildarupphæðin í raun svo knöpp miðað við þær framkvæmdir, sem nú er unnið við, að sjálfgefið er að ýmsir aðilar beri sig illa. Og raunin hefur orðið sú, sem jafnvel mátti búast við, að þeir bera sig verst er hæstu fjárveitingarnar fá, vegna þess að þar hefur verið fest mest fé sem kemur ekki að notum svo fljótt sem nauðsyn ber til, og jafnvel þessar hæstu fjárhæðir duga ekki til að ljúka áföngum með þeim hraða sem áætlaður var og sótt er eftir.
Brtt. fjvn. á þskj. 209 og 220 eru fluttar af allri nefndinni, en fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa þann fyrirvara um aðild að þeim brtt., að þeir hafa óbundnar hendur um fylgi við einstakar tillögur og áskilja sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma, og þeir hafa sérstakan fyrirvara gagnvart einstökum tillögum nefndarinnar varðandi skiptingu fjár til sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva.
Mun ég nú rekja þær brtt. sem fjvn. flytur á þskj. 209 og 220.
Er þar fyrst æðsta stjórn ríkisins: Hús Jóns Sigurðssonar: Liðurinn hækkar um 5 millj. kr. og verður 35 millj. 462 þús. kr. Hér er um að ræða önnur rekstrargjöld.
Sérfræðileg aðstoð við þingflokka: Liðurinn hækkar um 9 millj. 940 þús. kr. og verður 76 millj. 205 þús. kr. á árinu 1981. Hér er um það að ræða, að liðurinn taki sömu hækkunum og áætlað er að launaliðir í frv. muni taka á næsta ári.
Forsrn.: Þjóðgarðurinn á Þingvöllum og Þingvallanefnd: Gjaldfærður stofnkostnaður hækkar um 3 millj. vegna líffræðirannsókna í Þingvallavatni og sértekjur hækka um 1.5 millj., enda greiðir Landsvirkjun helming kostnaðar við rannsóknirnar. Ríkisframlag hækkar því um 1.5 millj.
Menntmrn.: Háskóli Íslands: Launaliður lækkar um 853 þús. kr. hjá verkfræðideild vegna leiðréttingar, en staða dósents í rafmagnsfræði kemur í stað stöðu prófessors í tölvunarfræði.
Raunvísindastofnun Háskólans, nýtt viðfangsefni 27 millj. kr. Hér er um að ræða 12 millj. til rannsókna á gerð eldsneytis úr innlendu hráefni í samvinnu við erlenda aðila og 15 millj. kr. til rannsókna á nýtingu vindorku til húshitunar og smíði tilraunavindmyllu fyrir varmaveitu í Grímsey.
Æfinga- og tilraunaskóli Kennaraháskólans: Þar er gjaldfærður stofnkostnaður hækkaður um 14 millj. kr. og verður 30 millj.
Íþróttakennaraskóli Íslands: Viðhald verður 9 millj. kr., en liður þessi féll niður við gerð fjárlagafrv. Hér er um að ræða viðhald á íþróttavöllum.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi: Gjaldfærður stofnkostnaður hækkar um 5 millj. kr. og verður 45 millj. Framhaldsskóli á Selfossi: Hér er um lið að ræða sem var nýr í fjárlögum 1980, en féll niður í fjárlagafrv. 1981. Hér er lagt til að stofnkostnaður verði 40 millj. Námsgagnastofnun, bókaútgáfa: Liðurinn hækki um 150 millj. kr., en mjög hefur verið talið skorta á undanfarið að stofnunin hafi getað gegnt hlutverki sínu með þeim fjárveitingum sem hún hefur fengið. Hér er því lagt til að hún fái 150 millj. kr. viðbót vegna bókaútgáfu.
Iðnskólar almennt: Þar er gjaldfærður stofnkostnaður um 23 millj. kr. og verður 183 millj., en sundurliðun kemur fram í sérstöku yfirliti í brtt. fjvn.
Tónlistarfræðsla: Liðurinn Tónlistarskólar, stofnkostnaður hækkar um 13.5 millj. kr., verður alls 15 millj. og skiptist eins og sýnt er í sundurliðun í brtt. fjvn.
Héraðsskólar, almennt: Gjaldfærður stofnkostnaður hækkar um 21 millj. kr. og verður 301 millj. Sundurliðun er í sérstöku yfirliti í brtt. fjvn.
Skíðakennsla í skólum: Styrkurinn hækkar um 1.5 millj. kr.
Framlög til byggingar grunnskóla og íbúða fyrir skólastjóra: Liðurinn hækkar um 719 millj. kr. og verður 4 milljarðar 247 millj. og skiptist eins og sýnt er í sundurliðun í brtt. fjvn. Framlag til þessara framkvæmda hefur lækkað mjög að raungildi á undanförnum árum og hefði samkvæmt fjárlagafrv. lækkað enn frekar á árinu 1981.
Stofnanir afbrigðilegra barna: Nýr liður: Gjaldfærður stofnkostnaður 15 millj. kr. vegna búnaðar í eldri stofnunum. Ekki hefur verið talið kleift samkvæmt lögum um Framkvæmdasjóð öryrkja og þroskaheftra að greiða úr sjóðnum til þessa verkefnis, og er því lagt til að leysa vandann með sérstakri fjárveitingu að þessu sinni. Ég tel á hinn bóginn eðlilegt að séð verði til þess að Framkvæmdasjóðurinn leysi slík verkefni framvegis.
Dagvistarheimili, stofnkostnaður: Liðurinn hækkar um 300 millj. og verður 1100 millj. kr. Skipting á einstakar framkvæmdir er sýnd í brtt. fjvn. Miðað við framlög til annarra framkvæmdaþátta er allvel fyrir þessum þætti séð og mun hér vera um að ræða hæsta framlag til dagvistarmála að raungildi til þessa.
Náms- og fræðimenn: Liðurinn Menntastofnun Bandaríkjanna á Íslandi hækkar um 500 þús. kr. og verður 1.5 millj.
Liðurinn Styrkir til útgáfustarfa hækkar um 200 þús. kr. og verður 22 millj. og 200 þús. Liðnum er skipt af fjvn. og hefur nefndin þegar ákveðið skiptingu hans.
Liðurinn Starfsemi stúdenta hækkar um 390 þús. kr. og verður 1 millj. 200 þús. kr.
Fullorðinsfræðsla: Liðurinn Bréfaskólinn hækkar um 2 millj. 200 þús. kr. og verður 12 millj.
Liðurinn Námsflokkar hækkar um 2 millj. kr. vegna öldungadeildar í Hveragerði og verður alls 5 millj. kr. Liðurinn Félagsmálanámskeið, sem er framlag til Samvinnuskólans vegna námskeiðahalds, hækkar um 200 þús. kr. og verður 3 millj.
Lagt er til að tekinn verði upp nýr liður: Heimilisiðnaðarskólinn 2 millj. kr.
Þjóðminjasafn Íslands: Liðurinn Til sveitarfélaga hækkar um 30 millj. kr. og verður 68 millj. Hér er um að ræða framlög til héraðasafna og styrki til viðhalds gamalla bygginga. Fjvn. hefur skipt þessum lið í samráði við þjóðminjavörð.
Lagt er til að tekinn verði upp nýr liður: Sjóminjasafn Íslands í Hafnarfirði 30 millj. kr.
Náttúruverndarráð:
Liðurinn Rannsóknarstörf við Mývatn hækkar um 2 millj. kr. vegna stofnkostnaðar og verður 8 millj. 588 þús. kr. Hér er um að ræða endurbætur á húsnæði, þ.e. á gamla prestsetrinu að Skútustöðum.
Listir, framlög: Liðurinn Listiðnaðarmál hækkar um 1 millj. kr. og verður 2 millj. sem skiptist sem hér segir: Sigrún Jónsdóttir 750 þús. kr. og Guðrún Vigfúsdóttir 750 þús. kr. Óráðstafað er 1/2 millj. kr.
Norræn samvinna: Liðurinn Norræna félagið hækkar um 1 millj. kr. og verður 3.5 millj.
Íþróttasjóður, bygging íþróttamannvirkja: Liðurinn hækkar um 50 millj. kr. og verður 700 millj. og skiptist eins og sýnt er í sundurliðun í brtt. fjvn. Þótt fjárveiting til íþróttamannvirkja hafi hækkað allnokkuð að raungildi á undanförnum árum miðað við það sem áður var skortir enn verulega á að unnt sé að standa við greiðslur á framlögum ríkisins eins og stefnt er að í lögum. Vegna þess hefur fjvn. undanfarin ár takmarkað allverulega fjölda þeirra mannvirkja sem fá fjárveitingu til byrjunarframkvæmda. Eins er gert að þessu sinni.
Viðeyjarstofa, endurbætur: Hér er aðeins um að ræða að breyta heiti liðarins. Hann heiti: Viðeyjarstofa og Nesstofa, endurbætur. Þetta er leiðrétting á mistökum í prentun fjárlagafrv.
Æskulýðsmál: Liðurinn hækkar alls um 10 millj. 990 þús. kr. og skiptist hækkunin sem hér segir: Æskulýðsráð ríkisins hækkar um 1 millj. 800 þús. kr., Æskulýðssamband Íslands um 1 millj., Ungmennafélag Íslands um 7 millj. 100 þús. kr., Bandalag ísl. skáta um 400 þús. kr., Bandalag ísl. skáta vegna Úlfljótsvatns um 110 þús. kr.,
Bandalag ísl. farfugla um 70 þús. kr., Íslenskir ungtemplarar um 220 þús. kr., Landssamband KFUM og KFUK um 150 þús. kr., KFUM, starfsemi í Vatnaskógi 40 þús. kr., og KFUK, starfsemi í Vindáshlíð 100 þús. kr. Hækkun á framlagi til Ungmennafélags Íslands er við það miðuð, að hækkun til sambandsins og hækkanir til Íþróttasambands Íslands verði hlutfallslega sem næst jafnar þegar breytingar á framlögum til þessara aðila síðustu tvö árin eru teknar með í reikninginn.
Ýmis íþróttamál, Íþróttasamband Íslands: Liðurinn hækkar um 8 millj. kr. og verður 205 millj.
Ýmislegt í menntmrn.: Liðurinn hækkar alls um 43 millj. 390 þús. kr., þar af 1 millj. 100 þús. kr. vegna nýs liðar: Byggðasafn að Reykjum í Hrútafirði, 900 þús. kr. vegna nýs liðar: Náttúrugripasafn á Selfossi, 1 millj. kr. vegna nýs liðar: Minnisvarði um Egil Skallagrímsson á Borg á Mýrum, og 1 millj. kr. vegna tíðar sem áður var í fjárlögum en hafði fallið niður: Svifflugfélag Íslands. Framlag til minnisvarða um Ara fróða að Staðarstað, 1 millj. kr., er lokagreiðsla.
Um aðra liði er vísað til brtt. fjvn., en viðfangsefnið Ýmis framlög 30 millj. kr. eru styrkir sem menntmrn. veitir til einstaklinga og samtaka að nokkru leyti að tillögu fjvn.
Þá er komið að landbrn.
Skógrækt ríkisins: Þær breytingar, sem lagðar eru til, eru aðeins tilfærslur á milli viðfangsefna án þess að um sé að ræða hækkun á framlagi í heild.
Landnám ríkisins: Nýr liður, 15 millj. kr., sem er til bæja á Hólsfjöllum. Framlag var til þessa í fjárlögum 1980, 20 millj. kr., en ekki var áætlað fyrir lið þessum í fjárlagafrv. fyrir árið 1981.
Landþurrkun: Liðurinn hækkar um 4 millj. 500 þús. kr. og sundurliðun á því er í brtt. fjvn.
Fyrirhleðslur: Liðurinn hækkar um 33 millj. 200 þús. kr. og skiptingin á einstakar framkvæmdir er einnig í brtt. fjvn.
Til frekari athugunar hjá fjvn. eru ráðstafanir vegna skemmda sem urðu vegna vatnsflóða á Austurlandi s.l. sumar.
Landbúnaðarmál, ýmis starfsemi: Liðurinn Landssamband ísl. hestamanna til leiðbeininga um hestamennsku hækkar um 100 þús. kr. Liðurinn Æðarræktarfélag Íslands hækkar um 100 þús. kr. Liðurinn Efnarannsóknastofa Norðurlands hækkar um 650 þús. kr. Liðurinn Búnaðarsamband Suðurlands, tilraunastöðvar hækkar um 5 millj. kr. og er þá í heildarupphæðinni gert ráð fyrir framlögum til tilraunastöðvanna í Laugardælum og Stóra-Ármóti.
Liðurinn Skógræktarfélag Íslands hækkar um 2 millj. 200 þús. kr.
Það er aðeins ein tillaga varðandi sjútvrn.: Hafrannsóknastofnun. Þar er nýr liður: Útibú í Ólafsvík 3 millj. kr.
Þá er komið að dóms- og kirkjumrn. Almannavarnir: Liðurinn hækkar um 40 millj. kr.: 20 millj. kr. vegna færanlegrar stjórnstöðvar og 20 millj. kr. eru áætlaðar til varnargarðs við Vík í Mýrdal.
Þjóðkirkjan: Liðurinn Dómprófastsembætti í Reykjavík hækkar um 700 þús. kr. og verður 2.5 millj. kr. vegna skrifstofukostnaðar.
Þá koma liðir er varða félmrn.
Jafnréttisráð: Önnur rekstrargjöld hækka um 600 þús. kr. vegna vanáætlaðs húsnæðiskostnaðar.
Ýmis framlög: Liðurinn hækkar alls um 64 millj. 680 þús. kr. og er þar vísað til brtt. fjvn. um einstakar hækkanir á framlögum. Mestu hækkanirnar eru til Slysavarnafélags Íslands 32 millj. 380 þús. kr., og verður framlagið til samtakanna þá 97 millj. kr. Framlag til Alþjóðaárs fatlaðra hækkar um 10 millj. og verður 60 millj. kr. Framlag til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra hækkar um 7.3 millj. og verður 22 millj. Aðrar hækkanir nema lægri upphæðum. En alls hækkar liðurinn Ýmis framlög hjá félmrn. eins og áður sagði um 64 millj. 680 þús. kr.
Er þá komið að heilbr.- og trmrn.
Bygging sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og læknisbústaða, annarra en ríkissjúkrahúsa: Liðurinn hækkar um 700 millj. kr. og verður 5 milljarðar kr. og skiptist eins og sýnt er í sérstöku yfirliti í brtt. fjvn.
Í fjárlagafrv. var gert ráð fyrir að fjárveitingar til þessa verkefnis lækkuðu að raungildi frá núgildandi fjárlögum. Eins og við var að búast reyndist algjörlega ókleift að standa að málinu á þann veg, og hækkaði liðurinn í meðferð fjvn. um 700 millj. kr. í 5 milljarða, eins og ég áðan sagði. Er fjárveitingin til byggingar sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva líklega hin hæsta að verðgildi til þessa.
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu náðist ekki full samstaða innan nefndarinnar um skiptingu fjárins. Eins og ég áður greindi er óánægjan mest hjá þeim aðilum sem fá hæstu fjárveitingarnar, einfaldlega vegna þess að á þeim stöðum, sem þar er um að ræða, hefur mest fjármagn verið bundið og þar er hvað mikilvægast að nýting fáist sem fyrst á því mikla fjármagni. Ég held að flestum, sem um þessi mál hafa fjallað, sé ljóst að hm háa hlutdeild ríkisins í þessum framkvæmdaþætti, 85% af kostnaði, hefur valdið meiri þrýstingi heimamanna um framkvæmdir en tekist hefur að ráða við, með þeim afleiðingum að svo margar og dýrar framkvæmdir eru nú í gangi í þessum málaflokki að jafnvel hærri fjárhæðir að verðgildi en nokkru sinni fyrr duga ekki til þess að þm. geti sæmilega við skiptingu unað. Við, sem stöndum að skiptingu fjárhæðarinnar án sérstaks fyrirvara, teljum að miðað við það heildarfjármagn, sem um er að ræða, hefði skipting á þann veg að veita enn stærri hluta fjárveitingarinnar til dýrustu verkefnanna gert hlut annarra aðila óviðunandi. Óhjákvæmilegt er að fjárveitingar í þeim mæli sem lagt er til komi til þeirra aðila annarra sem eru með sjúkrahús og heilsugæslustöðvar í byggingu. Óhjákvæmilegt er að mínum dómi að röðin fari að koma að þeim sem búa við algerlega óviðunandi aðstöðu varðandi heilsugæslu á stærstu þéttbýlissvæðunum þar sem fólksfjölgunin er mest. Óhjákvæmilegt er áð framvinda þessara mála verði tekin til sérstakrar athugunar fyrir gerð næsta fjárlagafrv.
Liðurinn Ýmis heilbrigðismál hækkar um 91 millj. 120 þús. kr. Hjartavernd hækkar um 25 millj. kr., Krabbameinsfélagið um 40 millj. 620 þús.
Lagt er til að Sjúkraflug hækki um 11 millj. kr. og verði 30 millj. Fjvn. hefur þegar skipt liðnum á milli viðtakenda. Flugfélagið Ernir fær 10.5 millj., Flugfélag Norðurlands 6 millj., Flugfélag Austurlands 8 millj., Eyjaflug 3 millj. og óráðstafað er 2.5 millj. Í heild verður liðurinn 30 millj.
Starfslaun Ófeigs J. Ófeigssonar læknis hækka um 1.5 millj. og verða 4.5 millj.
Gæsluvistarsjóður, framlag: Liðurinn Gæsluvistarsjóður hækkar um 20 millj. kr. sem varið skal til móttökudeildar fyrir áfengissjúklinga á Kristneshæli.
Fjárveiting til félagssamtakanna Verndar hækkar um 500 þús. kr. og verður 1.5 millj. kr. Bindindisstarfsemi: Áfengisvarnir hækka um 4 millj. kr. vegna fræðslustarfs samstarfsnefndar um vímuefni, og framlag til Stórstúku Íslands hækkar um 3 millj. 200 þús. og verður 9.5 millj. kr.
Þá er röðin komin að fjmrn.
Styrktarfé og ýmis eftirlaun embættismenn: Liðurinn hækkar um 20 millj. 800 þús. kr. Sundurliðun kemur fram í brtt. fjvn. — Styrktarfé og ýmis eftirlaun, ekkjur. Liðurinn hækkar um 10 millj. 275 þús. Sundurliðun kemur einnig fram í brtt. fjvn. Með almennari lífeyrisréttindum lækkar raungildi framlaga til þessara liða smám saman á fjárlögum.
Næst kemur samgrn. Vegagerð ríkisins: Liðurinn Til einstaklinga og samtaka hækkar um 4.5 millj. kr. og verður 13 millj. kr. Lið þessum hefur fjvn. þegar skipt til aðila sem stuðla að viðhaldi byggðar og annast gistingu í dreifbýli.
Hafnamál: Hafnarmannvirki og lendingarbætur hækka um 391 millj. 500 þús. kr., en till. fjvn. nr. 132 á þskj. 209 fjallar um hafnarframkvæmdir vegna skipaiðnaðar. Þessi till. er dregin til baka til 3. umr. vegna frekari athugunar á uppsetningu í frv. Lagt er til að framlag til Hafnarbótasjóðs hækki um 39 millj. 150 þús. kr. Hann hækkar í réttu hlutfalli við hækkun á framlögum til hafnarmannvirkja samkv. lögum.
Sjóslysanefnd: Gjaldfærður stofnkostnaður er 10 millj. kr. sem skal varið til að gera fræðslukvikmynd um vinnuslys á sjó, og nýr liður: Yfirfærslur 2 millj. kr., sem skal ráðstafað til kynningar á björgunarneti.
Flugmálastjórn: Gjaldfærður stofnkostnaður hækkar um 400 millj. kr. og verður 2 milljarðar 285 millj. kr. Sérstakt yfirlit í brtt. fjvn. sýnir skiptingu á þessum lið. Gert er ráð fyrir að fyrir þessari 4000 millj. kr. hækkun verði séð á lánsfjáráætlun. Hér er annars vegar um að ræða tækjakaupalán, 200 millj. kr., og hins vegar lán til malbikunarframkvæmda á flugvöllum, 200 millj. kr.
Ýmis framlög: Flugbjörgunarsveitir hækka um 3 millj. kr.
Veðurstofa Íslands: Liðurinn Veðurstöðvar hækkar um 19 millj. 995 þús. kr. vegna launa veðurathugunarmanna, sem breytast í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á launakjörum hjá Alþýðusambandi Íslands. Þá eru næst liðir er varða iðnrn.
Eftirmenntun í iðju og iðnaði: Liðurinn hækkar um 6 millj. kr. Fjvn. mun skipta þessum lið í samráði við iðnrn. Iðja og iðnaður, framlög: Iðnaður og önnur starfsemi á sviði iðnaðar hækki um 2 millj. 200 þús. kr., og nýr liður, Byggingaþjónustan, er 13 millj. kr. Liður þessi var í fjárlögum 1980, en féll niður við gerð fjárlagafrv. 1981.
Þá er komið að síðustu till. sem varðar Hagstofu Íslands aðalskrifstofu: Laun hækka um 8 millj. 500 þús. kr. og Önnur rekstrargjöld um 21 millj. 700 þús. kr., en sýnt er að stofnunin mun ekki nota um 33 millj. kr. af fjárveitingu ársins 1980, sem ætlað var til sérstakra tímabundinna verkefna. Er þessi hækkun ætluð til að ljúka þeim verkefnum og færist þá aðeins á milli ára.
Ég hef þá lokið við að greina frá brtt. fjvn. Verði till. fjvn. á þskj. 209 og 220 samþykktar — aðrar en till. nr. 132 á þskj. 209 varðandi hafnarframkvæmdir vegna skipaiðnaðar, en eins og ég gat um áðan verður hún tekin aftur til 3 umr., þá hækkar útgjaldahlið frv. um 3 milljarða 474 millj. 667 þús. kr. Þar af nema hækkanir á gjaldfærðum stofnkostnaði ríflega 2 milljörðum 800 millj. kr. og af þeirri hækkun nemur hækkun vegna skólabygginga 835 millj. kr., vegna dagvistarheimila 300 millj., vegna íþróttamannvirkja 50 millj., vegna sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva 700 millj., vegna hafnarframkvæmda, þar með Hafnarbótasjóður, 430 millj., og vegna flugmála 400 millj. kr.