23.10.1980
Sameinað þing: 8. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (136)
Stefnuræða forseta og umræða um hana
Guðmundur G. Þórarinsson:
Herra forseti. Helsta gagnrýnisefni þess ræðumanns, sem nú lauk máli sínu, var að ríkisstj. hefði ekki fylgt efnahagsstefnu Framsfl. Af þessu hafði hann miklar áhyggjur. Glöggur maður, Kjartan Jóhannsson.
Ósjálfrátt hefur það leitað á hugann við að hlusta á ræður sumra stjórnarandstæðinga, að það sé beinlínis ógætni að tefja þá frá innanflokksdeilum og foringjavandamálum með því að ræða stjórnmál. Ræður sumra þeirra sýna ljóslega að þeir eru illa undir það búnir að ræða pólitík. Það er nánast ótrúlegt að hlusta á ræður sumra þeirra: Úrtölur, úrtölur, úrtölur og hávær gagnrýnissöngur, án þess að þeir komi með nokkrar till. til úrbóta sjálfir. Sjálfir hafa þeir þó, flestir þessara ræðumanna, setið í ráðherrastól með litlum árangri í baráttunni gegn verðbólgunni. Erfitt hlýtur að vera að taka slíka menn alvarlega.
Hv. 1. þm. Reykv. gerði Flugleiðamálið að umræðuefni. Mál þetta hefur fengið mikla umræðu að undanförnu og mikið verið í því unnið í sumar. Fram hefur verið lögð skýrsla hér á hv. Alþ. og frv. liggur hér til umr. Samgrh. á mikið hól skilið fyrir störf sín í þessu máli. En á meðan aðrir hafa unnið í þessu máli hefur Sjálfstfl. sofið. Síðasta starfsdag Alþingis áður en skýrslan var lögð fram uppgötvuðu sjálfstæðismenn, að þeir höfðu sofið yfir sig, og báðu um umræður utan dagskrár, umræður sem að sjálfsögðu höfðu enga þýðingu vegna þess að þegar voru áformaðar tvennar mjög viðamiklar umræður, — umræður sem eingöngu höfðu það mark að sýna eitthvert frumkvæði sjálfstæðismanna í málinu. Umræður, sem fram hafa farið, sýndu þó, að sjálfstæðismenn eru varla vaknaðir enn.
Það verður að segja Alþfl.-mönnum til hóls, að þeir báðu um skýrslu í þessu máli. Ég er einn af þeim fjölmörgu Íslendingum, sem á undanförnum misserum hefur oft þótt lítið vit í ræðum Alþfl.-manna margra. Það var þess vegna gleðileg tilbreytni, að þeir skyldu biðja um skýrslu til þess að fá gögn í málunum fram á þinginu áður en þeir ræddu þau. Það mega þeir eiga. Hitt er svo aftur annað mál, að sjálfsagt hafa margir orðið fyrir vonbrigðum með hvað sumir þeirra ræddu málið af litlu viti þó þeir hefðu skýrsluna í höndum. Ekki skal ég leggja dóm á það, en sjálfsagt verður ekki á allt kosið.
Það er rétt, sem margir hafa lagt áherslu á í þessum umræðum, að baráttan gegn verðbólgunni hefur gengið allt of hægt. Nokkuð hefur áunnist, en allt of lítið. Þetta á sér margvíslegar orsakir. Íslendingar eru ekki einir í heiminum. Það, sem skeður í efnahagsmálum nágrannalanda okkar og helstu viðskiptalanda, hefur gífurleg áhrif hér. Öllum ber saman um að mikil óvissa og óáran ríki nú í efnahagsmálum landanna í kringum okkur og ástand sumra þeirra sé mun verra en hér hjá okkur. Verðbólgan fer alls staðar vaxandi og er nú orðin alþjóðlegt vandamál. Þessu valda gífurlegar olíuhækkanir, ný holskefla sem hófst 1979. Afleiðing þessa er í öllum löndum í kringum okkur vaxandi atvinnuleysi, minnkandi hagvöxtur, dregið hefur úr milliríkjaviðskiptum, mikill viðskiptahalli helstu viðskiptalanda okkar auk vaxandi verðbólgu. Gífurlegir fjármunir hafa streymt til olíusöluríkjanna.
Viðskiptaafgangur olíusöluríkjanna var 1978 5 milljarðar dala, 1979 var hann 68 milljarðar dala, og áætlað er að á þessu ári verði viðskiptaafgangurinn 115 milljarðar dollara. Íslendingar hafa ekki heldur farið varhluta af þessum hækkunum. Á síðasta ári greiddum við 50 milljarða kr. fob. fyrir olíuvörur eða sem svarar 19% alls vöruinnflutnings. Árið 1978 var þessi tala 12%, 1973 7%. Feiknaleg umskipti hafa átt sér stað í þessum málum. Á sama tíma og olían tekur þannig stærri og stærri hluta gjaldeyristekna okkar og verðlag annarra innfluttra vara hækkar stöðugt hefur verð á helstu útflutningsvörum okkar hækkað lítið eða staðið í stað. Að sjálfsögðu rýrir þetta kjör þjóðarinnar. Viðskiptakjör okkar versnuðu um 10% á síðasta ári og eru talin munu versna nálægt 6% á þessu. Allt hefur þetta veikt stöðu okkar mjög í baráttu gegn verðbólgu. Allur vandi væri leystur ef við gætum notað sömu krónuna tvisvar, þ.e. bæði til þess að greiða olíuhækkanir og hækkandi verð annarra innflutningsvara annars vegar og laun í landinu og annan kostnað hins vegar. Þá væri galdurinn leystur. Málið er því miður ekki svo einfatt. Auðvitað hljóta lífskjör í landinu að versna ef þjóðarbúið verður fyrir síendurteknum þungum áföllum erlendis frá. Við höfum að vísu í landinu lög, þar sem kveðið er á um að með verðbótum á laun skuli verja lífskjör í landinu hvernig sem allt veltist. Telja menn að unnt sé að verja lífskjör einnar þjóðar með lögum, án tillits til helstu efnahagsstærða? Þarna komum við að miklum kjarna málsins.
Framsóknarmenn hafa barist fyrir ákveðinni leið til þess að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Þessi leið byggist á niðurtalningu allra kostnaðarþátta, svo sem verðlags vöru og þjónustu, búvöruverðs, fiskverðs, vaxta og verðbóta á laun ásamt ákveðnum aðgerðum til þess að vernda lífskjör þeirra lægst launuðu. Ríkisstj. hefur ekki tekist að draga nema lítillega úr verðbólgunni vegna þess að hún hefur ekki tekið á öllum þessum þáttum. Vissulega hefur hún það sér til málsbóta, að erfitt er, ef ekki ógerlegt að ákveða niðurtalningarmörk meðan svo gífurlega áhrifamikill þáttur efnahagslífsins hefur ekki verið ákveðinn sem grunnkaupshækkanir á almennum vinnumarkaði eru. En nú verða menn að fara að gæta að hvert þeir stefna.
Í kjölfar minnkandi þjóðartekna og mikillar óvissu í efnahagsmálum viðskiptalanda okkar bendir margt til að laun muni hækka á næstunni um 20–25%, þ.e. verðbætur plús grunnkaupshækkanir. Að baki þessari launahækkun er engin verðmætaaukning. Á þetta hafa margir stjórnarandstæðingar bent í ræðum hér í kvöld, lýst áhyggjum sínum, en enginn sagt frá því, hvernig hann vildi við bregðast. Þessi launahækkun mun fara beint út í verðlagið, og verði ekki spyrnt við fótum mun verðbólgan magnast enn á næsta ári. Hvað segja menn um það?
Auðvitað verður að grípa til aðgerða og það sem fyrst, til þess að verðbólgan leggi ekki í rúst lífskjör þeirra sem minnst hafa. Menn telja gjarnan að stjórnmálamenn beri ábyrgð á verðlagsþróuninni. Gott og vel. En þá verða menn jafnframt að viðurkenna þá staðreynd, að ómögulegt er að bera ábyrgð án þess að hafa vald til breytinga. Menn geta ekki borið ábyrgð á ástandi sem þeir hafa ekki vald til að breyta. Hafa stjórnmálamenn vald til þess að stöðva þessa verðlagsþróun? Til þess að stöðva þessa verðlagsþróun þarf að grípa inn í sjálfvirkni í verðlagsmálum.
Sú ríkisstj., sem nú situr, byggir í meginatriðum á samráði við sem flesta þjóðfélagshópa. En þar getur komið, að lýðræðislega kjörin stjórn geti þurft að beita — og telji sig neydda til að beita löggjafarvaldi, ef ekki næst samkomulag til þess að halda niðri hækkunum á verðlagi vöru og þjónustu, fiskverði og búvöru, og setja hámark á verðbætur launa með ákveðnum skattalækkunum til að verja kjör þeirra sem minnst hafa. Hafa stjórnmálamenn vald til að gera þetta? Setjum svo, að til slíkra aðgerða væri gripið. Er hugsanlegt að launþegasamtök og önnur aflmikil samtök tækju sig saman og lömuðu þjóðfélagið með verkföllum eða hliðstæðum aðgerðum? Er hugsanlegt að aðgerðir stjórnmálamanna yrðu þannig gerðar að engu? Já, auðvitað er það hugsanlegt. Og það hefur gerst bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Allt vekur þetta spurningar um valdsvið ríkisstj. eftir leikreglum lýðræðis og þá jafnframt ábyrgð.
Stjórnmálamenn eru kjörnir í lýðræðislegri kosningu til þess að fara með stjórn landsins. Stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir annarri valdskiptingu þjóðfélagsins í grundvallaratriðum en löggjafarvaldi, framkvæmdavaldi og dómsvaldi. Eðli lýðræðisins er síðan að stjórnmálamenn standi ábyrgir gerða sinna í kosningum. Hvað varðar verðlagsþróunina, þá lifum við beinlínis í „átomat.“ Ein hækkun leiðir aðra af sér og hjólið snýst hraðar og hraðar. Og erfitt er stundum að greina hvað er afleiðing og hvað orsök. Sérhver hagsmunahópur og þrýstihópur stendur vörð um að engu sé breytt sem að honum snýr. Ríkisstj. boðar í stefnuræðu og þjóðhagsspá að gripið verði til aðgerða. Vonandi ber stjórnarandstaðan gæfu til þess að fylkja sér ekki undir merki allra þrýstihópa þegar að þeim aðgerðum kemur.
Framsóknarmenn munu standa fast að baki þessarar ríkisstj. í þeirri hörðu baráttu sem fram undan er gegn verðbólgunni. En þeir munu líka gera þá kröfu til hennar, að hún takist á við þennan draug efnahagslífsins. Framsóknarmenn hafa rækilega kynnt þjóðinni hvernig þeir vilja halda á málum. — Lifið heil.