12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)

1. mál, fjárlög 1981

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir að taka af mér ómakið að tala hér mikið um Reykjavík og Reykjavíkurborg og þarfir hennar og þau erindi sem núv. borgarstjóri, stjórn og meiri hl. hafa sent fjvn. Hann hefur gert þeim erindum góð skil, en ég vil þó undirstrika að afskaplega lítið tillit hefur verið tekið til þarfa Reykjavíkurborgar í gerð þessara fjárlaga eins og frv. liggur nú fyrir.

Ég held að það hefi verið tekið til greina brot af einni ósk, þ.e. framhald B-álmu Borgarspítalans, þó ekki að fullu. Það er það eina sem tillit hefur verið tekið til ásamt því, að eitthvað rennur til byggingar sundlaugar við Grensásdeild Borgarspítalans, sem eins og allir vita er þjónustustofnun fyrir landið allt.

Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 234 brtt. ásamt 1. þm. Vestf. Matthíasi Bjarnasyni og leyfi mér að gera nokkra grein fyrir þeim.

1. till., undir II. tölulið á þskj. 234, er um að framlag til Íþróttasambands Íslands, sem ætlaðar eru 197 millj. til sinna starfa á næsta ári, verði hækkað um rúmar 100 millj. þannig að til Íþróttasambandsins verði ætlaðar 305 millj. kr.

Í þessu sambandi vil ég geta þess, að Íþróttasamband Íslands telur innan sinna vébanda um 80 þús. einstaklinga. Þar af eru 72 þús. Íslendingar af 220 þús. beinir iðkendur íþrótta og um 8 þús. leiðbeinendur og leiðtogar. Þá sjá hv. þm. að hér er ekki um nein smásamtök að ræða. Má kallast ganga kraftaverki næst að ekki skuli vera hærri upphæð ætluð til sambandsins — jafnvel samkv. minni till. —en raun ber vitni til að standa straum af því mikla starfi sem þarna er unnið. En skýringin er afskaplega einföld. Skýringin kemur fram í bréfi sem Íþróttasambandið skrifar menntmrh. 14. júlí. Með leyfi forseta vil ég lesa smápart af því bréfi, en þar kemur fram að gefin dagsverk til íþróttakennslu eru talin 24 þús. „Væri það metið til fjár með verðlagi eins og það er nú er um að ræða gefna vinnu við íþróttakennslu að upphæð 700 millj. kr. Sé tekið tillit til þessara miklu sjálfboðaliðsstarfa við sjálfa kennsluna er fjárveitingin, sem hér er farið fram á, tæplega 12% af heildarkostnaðinum. Í þessu sambandi ber svo jafnframt að hafa hugfast að við margvísleg stjórnunar- og leiðtogastörf eru u.þ.b. 6 þús. manns og er sú vinna hvergi metin til fjár í þessu erindi, enda mun erfiðara að finna þar raunverulegan vinnustundafjölda.“

Þetta læt ég nægja að lesa upp úr erindi Íþróttasambands Íslands til menntmrh. varðandi þær fjárveitingar sem farið er fram á.

Ég held að ef menn hafa á annað borð hugboð um hvaða starf er rekið á vegum Íþróttahreyfingarinnar og undir forustu Íþróttasambands Íslands geti menn verið sammála um að ekkert af því, sem gert er í þjóðfélaginu, er meira fyrirbyggjandi og meira uppbyggjandi fyrir manninn en það starf sem þar er unnið. Það eru lagðar fram stórar upphæðir til að reyna að ná árangri eftir að unglingar eða fólk á besta aldri hefur leiðst út í alls konar vandamál, en það er minna hugsað um fyrirbyggjandi störf. Það er þetta fyrirbyggjandi starf sem er unnið í íþróttahreyfingunni, uppbygging bæði á andlegri og líkamlegri atorku og atgervi íslensku þjóðarinnar. Það er talað um að rækta landið. Það er talað um að leggja þúsundir milljóna í að rækta landið. En hvað með þjóðina sjálfa? Hvað með einstaklinginn, fólkið sem á að búa í landinu? Það þarf að hugsa meira um það en kemur fram í þessu frv. til fjárlaga. Því hef ég ásamt hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni leyft mér að flytja þessa till. um að framlag til Íþróttasambands Íslands verði hækkað upp í 305 millj. kr.

Ég vil taka það alveg sérstaklega fram, að hækkunartillaga þessi má ekki verða til þess að umræða verði um að lækka á einn eða annan hátt framlag til Ungmennafélags Íslands. Ungmennafélagið er nákvæmlega sams konar hreyfing og Íþróttasambandið. Þar vinna hlið við hlið tveir góðir samstarfsaðilar. Ungmennafélagið þarf á miklu meira fé að halda en nú er ætlað því til handa á fjárlögum. Ég vil undirstrika að hækkunarbeiðni mín til handa Íþróttasambandinu má ekki verða til þess að umræður skapist um að lækka það framlag sem Ungmennafélag Íslands fær.

Ég vil taka það fram, að innan Íþróttasambands Íslands eru 16 sérsambönd. Þau fengu af síðustu fjárveitingu 85 millj. Innan vébanda Íþróttasambandsins eru 27 héraðssambönd. Þau fengu 37 millj. kr. Svo eru önnur verkefni, sem Íþróttasambandið hefur á stefnuskrá sinni, sem ég gæti líka talað um. En ég vil bara minnast á sérsamböndin og héraðasamböndin til þess að þm. viti almennt að ungmennafélög og sérsambönd eða héraðssambönd um land allt fá beinan fjárstuðning af framlagi á fjárlögum til Íþróttasambands Íslands.

Ég tel mig ekki þurfa að hafa fleiri orð um Íþróttasamband Íslands og ungmennafélagsskapinn. Ég held að allir hv. þm. hljóti að þekkja þá starfsemi sem þar fer fram. Ef ekki, þá er kominn tími til þess, að þeir kynni sér hana. Ég skil ekki hvernig þeir geta verið þm. ef þeir þekkja ekki þá uppbyggingarstarfsemi sem þar fer fram.

Ég vil skjóta hér inn í dæmi um hvað skilningsleysið er algjört innan fjvn. Mér þætti vænt um ef fjvn.-menn, sem eru viðstaddir, hlustuðu. Að sjálfsögðu vona ég að orð mín nái eyrum hæstv. fjmrh.

Það er lækkaður styrkur til Ólympíunefndar Íslands. Verðbólgan gengur öfugt þar. (Fjmrh.: Það er ekkert Ólympíumót.) Er ekkert Ólympíumót? Maður lifandi! Ég álít að hæstv. ríkisstj. og þá fjmrn. ætti að kynna sér hvernig starfið fer fram, hvenær undirbúningur hefst undir Ólympíuleika. Undirbúningur undir þrenna til ferna Ólympíuleika fram í tímann er hafinn alls staðar í heiminum. Það er fyrir löngu byrjaður undirbúningur undir Ólympíuleika. Ég skil ekki hvers vegna á að lækka styrkinn. Halda menn að það sé hlaupið til og náð árangri á einhverju sviði í íþróttum með því að veita fé á síðustu stundu í slíka starfsemi? Þetta er mesti misskilningur. Ég ætla að vona að þessi hugsunarháttur sé ekki á öðrum sviðum. Ég er hér með till. á eftir um að fella niður styrki til blaðanna þar sem hækkunin hefur verið 70%. Íþróttahreyfingin nýtur ekki sama skilnings. Ég skil ekki framkomuna gagnvart Íþróttahreyfingunni. (Gripið fram í: En framkoman gagnvart blöðunum?) Ég kem að því aftur, hv. þm., ég kem að því rétt strax. Ég kalla það siðleysi þegar þingmenn, pólitískir aðilar, eru látnir skammta sér og sínum flokkum fé af almannafé á Alþingi, en ég kem að því seinna.

Þá höfum við leyft okkur að flytja samkv. IV. lið á þskj. 234. till. um aukið framlag til byggingar sjúkrahúsa í Reykjavík, þ.e. til B-álmunnar. Í frv. er gert ráð fyrir framlagi að upphæð 635 millj. Reykjavíkurborg fór fram á 750 millj. kr. framlag þar. Við höfum hækkað það aðeins um 40 millj., upp í 675 millj.

Tillaga nr. V. á sama þskj. flytja Matthías Bjarnason, hv. 1. þm. Vestf., sem er 1. flm., og ég, en vegna fjarveru hans í kvöld mun hann tala fyrir þeirri till. við 3. umr. Ég vil aðeins segja það, að ég kynntist nokkuð þessari sjúkrahúsbyggingu á Ísafirði í sumar þegar ég átti tvívegis leið um Ísafjörð og skoðaði þá byggingu. Hún er á því framkvæmdastigi að ég held að það sé óviturlegt að reyna ekki að ljúka henni að verulegu leyti og taka hana í notkun sem fyrst þó að þessi upphæð geri lítið annað en að flýta fyrir. Ég skoðaði byggingar á vegum opinberra aðila víða um land, sem eru í gangi, einhverjum áföngum hefur verið náð, en bíða áframhaldandi fjárfestingar til að fjármagnið, sem þegar er komið, skili einhverju til baka. Þar álít ég rangt að staðið. — Við flytjum tillögu um að hækka framlag til sjúkrahússins á Ísafirði um 100 millj., úr 330 millj. í 430 millj. Eins og ég gat um mun 1. þm. Vestf., hv. þm. Matthías Bjarnason, gera frekari grein fyrir þessari till. seinna.

Á þskj. 234 leyfum við okkur, sömu þm., að flytja — það er VII. liður — till. um aukið framlag til Stórstúku Íslands. Í frv. er gert ráð fyrir 9.5 millj. til Stórstúku Íslands. Við gerum till. um að sú upphæð verði hækkuð upp í 20.5 millj. Ég veit ekki hvort menn gera sér almennt grein fyrir hvaða starf er unnið innan Stórstúku Íslands og af Stórstúku Íslands. Það kemur einhver háðsglampi í augu manna þegar talað er um Stórstúkuna. Talað er um að þetta sé einhver stofnun sem sé rekin af gömlum mönnum og hún sé kraftlaus. Þetta er rangt. Stórstúka Íslands er rekin af hugsjónamönnum. Það má segja að sumir þeirra teljist til aldamótakynslóðarinnar, en þetta eru menn sem borga frekar úr eigin vasa en að starfið verði ekki unnið. Stórstúka Íslands hefur þó 40 aðildarfélög um land allt og hún vinnur í þeim aldurshópum sem minnst ber á. Við veitum miklu fé og réttilega til þess að koma á réttan kjöl því fólki sem telst til áfengissjúklinga, en við tökum það eins og sjálfsagðan hlut að menn vinni fyrir ekki neitt og jafnvel borgi úr eigin vasa þegar er verið að vinna fyrirbyggjandi starf í yngstu aldursflokkunum. Ég segi nákvæmlega sama um það: Það er skilningsleysi manna sem ræður hér upphæðum. Það er eins og það sé af einhverri vorkunnsemi verið að sletta slatta og slatta í Stórstúku Íslands. Menn gera sér ekki grein fyrir hvaða starf er unnið þarna. Það er margþætt. — Mér verður reyndar hugsað til borgarstjórnar Reykjavíkur. Það er árlega stofnað nýtt leikfélag, ný hljómsveit eða eitthvað slíkt og lögum samkvæmt, samkvæmt fyrirmælum héðan frá Alþingi, skal sveitarstjórn gjöra svo vel og leggja það fram sem þarf til rekstrar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. En svo þegar er komið að því, sem er uppbyggjandi eða fyrirbyggjandi starf á mönnunum sjálfum, fer allt í hnút.

Ég verð að segja alveg eins og er, að menn ættu að kynna sér starf þessara manna. Það fer ekki eftir aldri hvaða árangri menn ná. Þarna eru hugsjónamenn sem hafa lagt meira af mörkum úr eigin vasa en þeir fá frá opinberum aðilum til starfsins.

Þetta eru þær till. sem við hv. þm. Matthías Bjarnason flytjum. Það eru sem sagt till. varðandi Íþróttasamband Íslands, byggingu B-álmu Borgarspítalans, sjúkrahúsið á Ísafirði og Stórstúku Íslands. Samtals gerir þetta um 250 millj. Ég er stundum talinn af sumum hafa átt talsverðan þátt í því að þessi ríkisstjórn komst á laggirnar, en ég hef ekki verið kostnaðarsamur í tillögum eða tillitslaus við hana. En það getur vel komið að því. Og því segi ég að ég ætlast til þess, og fyrirgef ekkert, að tekið sé tillit til tillagnanna sem ég er með núna. Ég held að þær séu af þeim toga spunnar að þær séu réttlætanlegar hvernig sem á þær er lítið. (Gripið fram í.) Meðflm. á ekki að hræða. Ég held að meðflm. væri frekar til þess að auka líkurnar á því að þetta nái fram að ganga. Hann er virtur þm. og hefur sýnt það hér á Alþingi að honum er að mörgu leyti vel treystandi, enda hefur hann gegnt mestu ábyrgðarstöðum sem Alþingi getur fengið nokkrum manni, þ.e. verið valinn til forustu ráðuneytis. Ég held að hann ætti því ekki að hræða. Hann stóð sig mjög vel í ráðuneytinu. Ég geri því ráð fyrir að hann verði frekar til þess að bæta þessar till. eða vekja traust á þeim en hitt.

En þá kem ég að þeirri hliðinni sem ég vona að þm. fagni hvað mest. Ég er ekki að gera tillögur um aukin útgjöld í sambandi við fjárlagagerðina. Ég er alveg þveröfugt að reyna að spara um 50 millj. á útgjaldahliðinni. Það geri ég með því að flytja hér ásamt sama þm. till. um að liðurinn Til blaðanna samkv. nánari ákvörðun ríkisstj. falli niður. Það eru 170 millj. Því til viðbótar leggjum við til að heimildarákvæði samkv. 6. gr. 5.17, um kaup á dagblöðum fyrir stofnanir ríkisins, falli niður. Sá liður segir ekki mikið í tölum. Það er heimildarákvæði. Ég hef ekki gert mér far um að leita upplýsinga um hvað mikið fór í þann lið s.l. ár, en ég býst við því — og ég leyfi mér að búast við því, að blöðin noti sér eins og hver annar kerfið hverju sinni, hvort sem öll dagblöðin eða ekki taka þessa ölmusu, þetta siðlausa framlag sem þm., pólitískir aðilar, skammta eigin málgögnum.

Ég er búinn að tala á móti þessum styrk síðan ég kom til setu á Alþingi og ég geri það enn. Og það er furðulegt, hvernig hann er til kominn: Með því að kasta fram till. á lokastigi afgreiðslu fjárlaga, við 3. umr., tvisvar sinnum þennan stutta tíma sem ég er búinn að sitja hér og hækka styrkinn um 100%. Hvað kemur svo núna?

Þá vil ég beina orðum mínum til hæstv. fjmrh. í framhaldi af því sem ég sagði áðan um Ólympíunefnd sem hafði 5.5 millj. kr. framlag, en er nú með 4 millj. í till. Blaðastyrkurinn er hækkaður um 70%, úr 100 millj. í 170 millj. Ég veit það ekki, en ég held að þetta sé mesta hækkun á einum lið í fjárlögunum. (Fjmrh.: Nei.) Er það ekki? Þá biðst ég afsökunar. En hvað sem því líður er um að ræða 70% hækkun og það tel ég enn þá meira siðleysi en að koma styrknum á. Það eru 250 eintök keypt á mánuði af hverju dagblaði. Áskriftargjald hefur verið 5 500 kr., en hefur nýlega hækkað um 27%. Það er gjaldið sem verður næst greitt af fólkinu í landinu. Það eru þá 250 sinnum það á mánuði fyrir hvert blað eða 1800 þús. kr. Þetta fer upp undir 130 millj. samtals og til viðbótar eru 170 millj. Það er þá 300 millj. kr. styrkur sem ég geri tillögu um að verði felldur niður.

En síðan kemur umdeilanlegur liður, sem ég ætla ekki að gera neina tillögu um, en hann bætist við það sem þm. og þingflokkar eru sammála um að skammta sér í sína starfsemi. Það eru 76 millj. kr. til þingflokkanna. Þarna skammta þm. þingflokkum sínum upp undir 400 millj. kr., hvort sem það er til blaða eða starfsemi flokkanna beint. Það er best að hver þm. geri upp sinn hug og síðan sína samvisku, en ég segi að þetta sé siðlaust.

Verði þessar till. allar samþykktar er ég alveg sannfærður um að þeim 50 millj., sem ég geri ekki till. um, er hægt að koma fyrir á einhvern hátt þannig að að meira gagni geti komið en hjá dagblöðum sem ekki sýna öll rekstrarhalla. Samkvæmt nýjustu fréttum frá Dagblaðinu er það með í rekstrarafgang 11.5 millj. kr. Það er ekki mikið af mikilli veltu, en það tapar ekki. Það þarf ekki og fær ekki styrk af þeim fjárveitingum sem samþykktar eru til stjórnmálaflokkanna. En auk þess eru ekki nema tvö af þessum sex blöðum beint tengd stjórnmálaflokkunum, — það má segja þrjú af þeim. Ég bið innilega afsökunar. Ég gleymdi Alþýðublaðinu. Þá eru þau þrjú. En það getur ekki verið að þau fái mikið framlag af þessu. (Gripið fram í: Þau fá það hlutfallslega bætt.) Já, ég hef ekki þær upplýsingar, en ég tek þetta gott og gilt úr því að þm. veit það.

Þetta er það sem ég vildi segja um þessar till., sem ég leyfi mér að flytja hér ásamt hv. 1. þm. Vestf. Að sjálfsögðu áskiljum við okkur fullan rétt til að taka afstöðu til málsins við 3. umr. Þá vona ég að komi í ljós að það er mikill fengur fyrir hvern sem er að hafa samstarf við þann ágæta þm. sem Matthías Bjarnason er.

Frsm. 1. minni hl. (Lárus Jónsson): Herra forseti. Aðeins örstutt athugasemd út af upphlaupi hæstv. ráðh. við umr. í dag, þegar hann braut áratugagamla þingvenju og tók til máls áður en frsm. nál. höfðu lokið máli sínu. (Fjmrh.: Með góðu samþykki þeirra allra.) Já, með svo góðu samþykki. Hæstv. ráðh. fékk athugasemdir um það hjá þeim sem átti eftir að tala.

Ég ætlaði ekki að ræða það. Það verður hver að hafa sín vinnubrögð. En það, sem ég vildi ekki láta ómótmælt, var að hæstv. ráðh. tók eitt atriði út úr ræðu minni og sagði mig hafa farið þar með staðlausa stafi og rangar tölur, en það var að því er varðaði afkomu ríkissjóðs á árinu 1978, við stjórnarskiptin þegar vinstri stjórnin tók við völdum.

Ég vil upplýsa hæstv. ráðh. um hvaðan ég hef þau ummæli. Ég sagði að þá hefðu ríkisfjármálin verið í jafnvægi, en ég hef það úr skýrslu fjárlaga- og hagsýslustofnunar, dags. 14. júlí 1978, um mánuði áður en stjórnarskipti urðu, og það mun vera síðasta skýrsla sem gerð var um ríkisfjármálin áður en stjórnarskipti urðu. Ég er hérna með blað úr þessari skýrslu og ég skal gefa hæstv. ráðh. það á eftir. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Meginniðurstöður þessarar endurskoðunar á horfum í fjármálum ríkisins á yfirstandandi ári, sbr. fskj. 1, eru þær, að gjöldin verði samtals 151 milljarður 354 millj. kr. á árinu eða 12 milljörðum 881 millj. hærri en í fjárlögum. Tekjur eru nú áætlaðar samtals 150 milljarðar 596 millj. kr., sem er 11.1 milljarði hærra en í fjárlögum.“ Og síðan segir: „Niðurstaðan leiðir þannig til 3 milljarða 158 millj. kr. greiðsluafgangs.“ — Þetta er áætlaður greiðsluafgangur á því ári um einum mánuði áður en stjórnarskipti urðu.

Hæstv. ráðh. veit að sjálfsögðu betur en ég að ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar tók þegar í stað, eftir að hún settist að völdum, ákvarðanir um stórfelldar greiðslur úr ríkissjóði og það var öllum ljóst að ekki yrði hjá því komist að ríkissjóður yrði rekinn með halla þá mánuði sem eftir lifðu af því ári. Á voru lagðir skattar sem menn vissu að mundu ekki innheimtast að hluta fyrr en á fyrri hluta ársins 1979. Því var ríkisstj. farin að tala um 16 mánaða ár, þ.e. 4 mánuði á árinu 1979, eftir 4 mánuði mundi verða kominn jöfnuður aftur á ríkisfjármálin. Það kann að vera, að þessar tiltektir þáv. ríkisstj. hafi gert að verkum að ríkisfjármálin hölluðust mjög á þessu ári.

Ég vildi sem sagt upplýsa hvaðan ég hef þessar upplýsingar. Hæstv. ráðh. kann að vefengja að þessar áætlanir séu réttar, en þær eru frá fjárlaga- og hagsýslustofnun frá þessum tíma og ég vil gjarnan gefa honum þetta blað. Hann gæti þá fengið upplýsingar um það hjá fjárlaga- og hagsýslustofnun hvort hér sé ekki farið með rétt mál, a.m.k. vitnað rétt í þessa skýrslu.

Að öðru leyti skal ég ekki fara orðum um ræðu hæstv. ráðh. Hann sagði, sem satt er og rétt og ég skal taka undir það með honum, að það væri sjálfsagt að dæma að leikslokum hvernig ríkisbúskapurinn kemur út á þessu ári. Hins vegar stendur það óhaggað, sem ég las upp úr Hagtölum mánaðarins sem eru nýútkomnar, hver meginskýringin er á afkomunni í ár. Hún er sú, að skattlagning á þjóðina hefur tekist betur en fjárlög gerðu ráð fyrir og niðurgreiðslur hafa orðið heldur minni en fjárlög gerðu ráð fyrir.