12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. hættir mjög til að vísa til stefnuræðu sinnar og annað tveggja vísar hann til hennar í upphafi máls síns eða stjórnarsáttmála. En það vill nú þannig til, að þó mönnum sé vísað á stefnuræðuna verða menn ekki upplýstari, af því að þar sagði ekkert, ekki nokkurn skapaðan hrærandi hlut um áform ríkisstj., eins og menn þekkja. Og enn eru svörin á þá leið, að unnið sé að undirbúningi, unnið sé að könnun, málin séu í vinnslu, þau séu á umræðustigi, ekki fullráðið til hvaða ráða verði gripið. Þetta bókaði ég hjá mér. Og í hvert einasta skipti sem spurt er hér á hinu háa Alþingi og kallað eftir þeim ráðstöfunum, sem hæstv. ríkisstj. þykist vera með í takinu, þá verða þessi sömu svör uppi höfð. (Gripið fram í.) Í 10 daga stóð tilhugalíf þessarar hæstv. ríkisstj. áður en þeir opinberuðu, og brúðarmeyjarnar lölluðu á eftir krullaðar, eins og hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson. (Gripið fram í.) Nýkomnir úr Karmenrúllulagningu. (Gripið fram í.) Síðan ekki söguna meir.
Í 10 daga voru þeir að taka ákvörðun um það, hvernig þeir ættu að bjarga Íslandi, og að því er manni skildist lá svo mikið við, að það var aðeins klukkutíma spursmál um hvort það tækist. Þeir minntust eiðstafsins og samviskan bauð þeim að grípa til þessara bragða, og af því að svona lá við þjóðarheill voru látin lönd og leið þau vinnubrögð sem menn yfirleitt temja sér í samskiptum sínum og í félagsskap manna. Það var þá. En í 10 mánuði eftir þessa 10 tilhugalífsdaga hefur ekkert skeð, ekki nokkur skapaður hrærandi hlutur, alls engar ráðstafanir verið gerðar, ekkert viðnám veitt í einu eða neinu og fyrir því stöndum við frammi fyrir þessum ósköpum sem raun ber vitni. — Ég hef ekki fleiri orð um það.
En aðeins nokkur orð að gefnu tilefni, sem snertir auðvitað þetta mál, hæstv. forseti, svo að ég fer ekki út fyrir umræðusviðið, en það snýr einkum að hæstv. fjmrh. Það eru til lög í landinu sem kveða svo á — lög nr. 13 frá 1979, eins og menn þekkja — að ríkisstj. skal leggja — með leyfi hæstv. forseta — fyrir Alþingi fjárfestingar — og lánsfjáráætlanir fyrir eitt ár í senn og skulu þær fylgja fjárlagafrv. Það eru engin áform í þessari grein, þótt yfirleitt séu þessi lög útbíuð í einhverjum stefnumiðum og stefnumótun, sem er mjög óvenjulegt um lög og á ekki að tíðka, en í 19. gr. þessara laga segir, með leyfi hæstv. forseta: „Undirbúningur fjárfestingar- og lánsfjáráætlana skal vera á vegum ríkisstj. og skal Þjóðhagsstofnun, fjárlaga- og hagsýslustofnun, Seðlabanki Íslands og Framkvæmdastofnun ríkisins í samvinnu við einstök rn. annast nauðsynlega undirbúningsvinnu.“ Hér eru skýr ákvæði um hvernig þetta verkefni skuli unnið. Framkvæmdastofnunin tekur þátt í þessu verkefni og þessar fjórar stofnanir, sem þarna eru upp taldar, undir verkstjórn fjárlaga- og hagsýslustofnunar. Jafnan hefur það verið svo, að í júnímánuði hefur fjmrh., sá sem þá hefur setið í því embætti, haft forgöngu um að kalla þessa starfsstjórn saman. En núv. hæstv. fjmrh. hafði ekki þann hátt á eins og fyrirrennarar hans gerðu. Hann hefur aðeins í örskamma stund sýnt sig á einum fundi með þessum samstarfsaðilum. En látum það vera. Hér er mælt fyrir um hverjir vinna skuli.
Framkvæmdastofnunin hefur aðallega á sinni könnu að ganga frá lánsfjáráætlun fyrir hina ýmsu atvinnuvegasjóði eins og menn þekkja. Og rétt er það, að nokkuð dróst úr hömlu að hún gerði skil svo sem vera ber, en af eðlilegum og auðskiljanlegum ástæðum. Það er auðvitað vegna þess, að hér er allt á hverfanda hveli, þannig að forráðamenn lánastofnana og sjóða eiga ekki hægt um vik að standa skil á þessum verkum sínum. Allt að einu var það, að stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins, sem fjallaði um þetta mál í morgun, afgreiddi sinn hluta lánsfjáráætlunarinnar hinn 6. nóv. s.l. á fundi. Voru þá einstaka óvissuatriði þar afgreidd með, svo sem hvort á okkar könnu yrðu hitaveitur ýmsar, svo að ég nefni Eyrarhitaveitu, og menn þekkja við hvað er átt. Þarna var þessu skilað. En allt frá því í septembermánuði hafði framkvæmdastjóri lánadeildarinnar gengið eftir því nærri dögum saman við forstöðumann fjárlaga- og hagsýslustofnunar, hvað liði undirbúningi að gerð lánsfjáráætlunar. Hann hlaut að svara, eins og ástatt var hjá honum, að ekki væru efni til frekari vinnslu á því stigi málsins þar sem ýmsar veigamestu ákvarðanir ætti eftir að taka um gerð þessarar áætlunar. Stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins fjallaði um málið í morgun og vísaði gersamlega á bug þessum ásökunum hæstv. fjmrh., sem eru auðvitað gersamlega úr lausu lofti gripnar. Allir vita hvað veldur.
Herra forseti. Ég lýk máli mínu með því að vitna í dagblaðið Tímann, og ég veit að hæstv. forseti hefur þolinmæði með mér meðan ég geri það. Það hljóðar svo í Tímanum í dag:
„Ástæða til þess, að lánsfjárlögin verða ekki afgreidd nú fyrir hátíðir samhliða fjárlögum fyrir næsta ár, er þannig einkum sú, að ekki hefur náðst full samstaða í stjórnarliðinu um niðurstöðutölur.“
Hvar í ósköpunum er hæstv. fjmrh.?