12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í B-deild Alþingistíðinda. (1379)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það er sérkennilegt með þá stjórnarandstöðu sem nú er á Alþingi, að venjulega sefur hún vikum saman og svo hleypur hún hér upp í umr. með litlum fyrirvara, en miklum hávaða. Síðast gerðist það hér á Alþingi nokkrum dögum fyrir Alþýðusambandsþing. Nú er það greinilega að gerast hér aftur. En það er líkt með upphlaupinu fyrir Alþýðusambandsþing og því upphlaupi, sem er nú, að það einkennist af alvarlegri brotalöm sem gerir málflutning hv. stjórnarandstöðu að engu. Það er nákvæmlega sama brotalömin sem einkennir þessa umr. nú eins og einkenndi umr. síðustu daga fyrir Alþýðusambandsþing. Brotalömin er þessi:

Hv. þm. stjórnarandstöðunnar halda því fram samtímis, jafnvel í sömu ræðunni, eins og heiðursmaðurinn, hv. formaður þingflokks Alþfl., Sighvatur Björgvinsson, gerði hér áðan, að annars vegar hafi ríkisstj. engar tillögur í efnahagsmálum og þess vegna beri að samþykkja frv. Alþfl. um frestun myntbreytingarinnar. (SighB: Ég minntist nú ekkert á það.) Nei, það var hins vegar gert hér fyrir tveimur dögum. Á hinn bóginn hafi ríkisstj. í undirbúningi tillögur í efnahagsmálum og þess vegna sé ekki hægt að senda þingið heim, eins og hv. þm. Vilmundur Gylfason sagði áðan.

Ég beindi þeirri ósk til hv. stjórnarandstöðu í umr. fyrir Alþýðusambandsþing, að hún gerði upp við sig hvort hún ætlaði að halda því fram, að ríkisstj. hefði tillögur í efnahagsmálum, jafnvel svo myndarlegar og magnaðar tillögur að hún þyrði ekki að sýna þær, hvorki fyrir Alþýðusambandsþing né fyrir þinglok fyrir jól, eða hvort stjórnarandstaðan ætlaði að halda því fram, eins og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson gerði að mestu leyti í sinni löngu ræðu áðan, að ríkisstj. hefði engar tillögur í efnahagsmálum og þess vegna væri hér allt að fara til andskotans. (Gripið fram í: Hver er reynslan?) Það ætla ég að láta hv. stjórnarandstöðu um að dæma fyrir sjálfa sig. Ef reynslan er sú, að ríkisstj. hafi engar tillögur í efnahagsmálum, þá er engin þörf á að hafa neinar áhyggjur af því, hvað gerist í jólaleyfi eða hvað gerist yfirleitt á vettvangi ríkisstj. almennt. (LJ: Það er mesta áhyggjuefnið.) En það er ekki hægt á sama tíma, hv. þm., að halda því fram bæði að ríkisstj. hafi í undirbúningi og hafi jafnvel á sínum borðum svo magnaðar tillögur í efnahagsmálum, að þess vegna geti þingið ekki farið heim í jólafrí, og svo á hinn bóginn að það verði að fresta myntbreytingunni vegna þess að ríkisstj. hafi engar tillögur í efnahagsmálum.

Ég beini því vinsamlega til hv. stjórnarandstöðu aftur, nákvæmlega eins og ég gerði fyrir Alþýðusambandsþingið, að hún haldi nú nokkra fundi og komi sér saman um hvort hún ætlar að halda því fram og byggja sinn málflutning á því, að ríkisstj. hafi tillögur, eða á því, að ríkisstj. hafi ekki tillögur. (Gripið fram í: Hefur ríkisstj. tillögur eða ekki tillögur?) Það er ekki mitt að svara því. Það var ekki ég sem hóf þessar umr. utan dagskrár. Það er ekki ég sem fór þessa leið. Ég hefði ekki byggt málflutning minn á svona þversögn. En þetta er eina atriðið sem hv. stjórnarandstaða hefur byggt sinn málflutning á og ekki getað gert upp. Það mun fara nákvæmlega eins yfir þessum herramönnum hér í framtíðinni eins og fór fyrir liðsoddum þeirra á síðasta Alþýðusambandsþingi.

Hv. þm. Sverrir Hermannsson gerði að umtalsefni og nánast forsendu sinnar ræðu atburðina á 10 dögum í jan. og febr. fyrr á þessu ári. Það er nú með þá atburði og þátt hv. þm. Sverris Hermannssonar í þeim, að við hinir eigum mjög bágt með að taka þátt í þeirri umr. fyrr en böndin í Valhöll hafa verið á bók fest líkt og önnur fræg bönd í annarri byggingu voru á bók fest í öðru landi. Meðan við hinir höfum ekki fengið leyfi formanns Sjálfstfl. til þess að hlusta á böndin, sem eru lokið inni í skjalaskáp Sjálfstfl., hlýtur að vera mjög erfitt fyrir okkur að taka þátt í umr. með hv. þm. Sverri Hermannssyni um hvað raunverulega gerðist þessa frægu 10 daga. Ég vil því beina því til formanns Sjálfstfl., sem er mikill baráttumaður fyrir frjálsu orði og frjálsri umr. og frelsi almennt í landinu, að hann leyfi nú þingheimi og þjóðinni að hlusta á böndin í Valhallarpeningaskápnum, líkt og Nixon leyfði bandarísku þjóðinni að hlusta á böndin sem voru geymd í Washington-skjalaskápnum.

Að lokum vil ég segja það við hv. þm. Vilmund Gylfason, að það er skiljanlegt að honum komi í hug orð og athafnir Cromwells og afstaða hans til þinga almennt, því að fátt minnir nú meira á fyrirlitningu Cromwells á þingum heldur en þau orð sem hv. þm. Vilmundur Gylfason hefur haft um síðasta flokksþing Alþfl.