12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (1383)
Umræður utan dagskrár
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Þessar umr. eru nú farnar að ganga nokkuð vítt og breitt þannig að ég tel ástæðu til þess að leggja áherslu á að við reynum að halda okkur við aðatatriði í þessu máli. Þessar umr. eru til komnar vegna þess, að menn óttast að hæstv. ríkisstj. ætli sér, meðan þingið er í jólaleyfi, að setja brbl. sem verði stefnumarkandi í efnahagsmálum landsins með sérstöku tilliti til gjaldmiðilsbreytingarinnar. En ríkisstj. hefur lofað að gera sérstakar ráðstafanir og móta heildarstefnu í efnahagsmálum til þess að gera gjaldeyrisbreytinguna mögulega, þannig að hún hafi tilætlaðan árangur, en verki ekki sem olía á verðbólgubálið.
Hæstv. forsrh. sagði áðan að verði tillögur ríkisstj. tilbúnar á meðan Alþingi situr, þá verði þær lagðar fyrir Alþingi. Já, mikil er sú náð. Við megum gera ráð fyrir þessu. Hæstv. forsrh. sagði síðan að ríkisstj. hefði heimild til, ef brýna nauðsyn bæri til, að setja brbl. og ætlaði ekki að afsala sér þeim rétti. Þetta er alveg rétt og ég skil þetta. Það er ekki verið að fara fram á það hér, að hæstv. ríkisstj. afsali sér þeim almenna rétti sem hún hefur til þess að setja brbl. samkv. stjórnarskrá ríkisins. Við erum alls ekki að tala um það. Við erum að tala um allt annað. Við erum að tala um það, að ríkisstj. setji ekki brbl. um efnahagsmálin, um þá stefnumótun sem hún hefur lofað í sambandi við gjaldmiðilsbreytinguna. Það er þetta sem við erum að tala um, annað ekki.
Það vilt svo til og menn muna það, að í nóv. var rædd hér fsp. frá mér til hæstv. viðskrh. um gjaldmiðilsbreytinguna. Fsp. var á þá leið, hvort ríkisstj. sæi ekki ástæðu til þess að endurskoða fyrirætlanir um gjaldmiðilsbreytinguna. Það kom fram ótti bæði hjá mér og öðrum um það, að þessu máli væri stefnt í voða vegna þess að það lægju ekki fyrir neinar tillögur frá ríkisstj. í efnahagsmálum. Það voru í þrjá daga á þriggja vikna tímabili í nóv. umr. um þessa fsp. og það voru haldnar milli 50–60 ræður. Það voru fyrst og fremst stjórnarandstæðingar sem héldu þessar ræður. Það gafst ekki tækifæri til þess að þakka Framsókn fyrir eina einustu ræðu, að vísu talaði hæstv. viðskrh. Nær allir, sem töluðu, voru að spyrja um efnahagstillögunar, hverjar þær væru. Það fékkst ekkert svar við því. En þessar umr. urðu þó ekki árangurslausar, því að það fékkst svar við mjög þýðingarmiklu atriði í þessu máli. Það fékkst svar við því sem margir hreyfðu, en var sett sérstaklega skýrt fram af hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen. Hann spurði viðskrh., með leyfi hæstv. forseta:
„Mega alþm. gera ráð fyrir því, að áður en þeir fara heim í jólaleyfi fái þeir að sjá hér á borðum sínum tillögur ríkisstj. í sambandi við þær ráðstafanir sem hún telur nauðsynlegt að gera vegna myntbreytingarinnar sem fram á að fara um áramót?“
Hæstv. viðskrh. sagði, með leyfi hæstv. forseta, í þessari sömu umr. (Forseti hringir.) Ég þykist vita að hæstv. forseti meini hvorki sjálfum sér né þingheimi að heyra það sem hæstv. viðskrh. sagði. Það var á þessa leið:
„Til þess að svara spurningu hv. þm. Matthíasar Á. Mathiesens vil ég aðeins segja það, að ríkisstj. mun að sjálfsögðu leggja sín mál fyrir Alþingi þegar hún leggur fram tillögur sínar um aðgerðir í efnahagsmálum. Um það þarf ekkert að efast. Ég ætla ekki að fara að tiltaka neinar ákveðnar dagsetningar við þetta tækifæri, en hv. þm. getur alveg treyst því, að ríkisstj. mun leggja fyrir Alþingi tillögur sínar um aðgerðir í efnahagsmálum, sem eru nauðsynlegar og geta að mínu mati ekki beðið lengi.“
Þetta er sagt í umr. 4. nóv. s.l. Ég fæ ekki skilið þessa yfirlýsingu hæstv. viðskrh. öðruvísi en að í henni felist það, að ríkisstj. muni leggja tillögur sínar í efnahagsmálum til stefnumótunar í sambandi við gjaldmiðilsbreytinguna fyrir Alþingi áður en þær eru lögfestar. Það þýðir að þetta er loforð um það, að ekki verði sett brbl. um þessi efni. Og það er það sem þessi umr. snýst um, að það verði ekki sett brbl. um þetta efni. Ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. — nú sé ég að hæstv. forsrh. hefur gengið út undir þessari ræðu — en ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. geri sig ekki bera að því að gera hæstv. viðskrh. ómerkan af þessum orðum og þessu fyrirheiti sem hann hefur gefið okkur alþm. og hv. Alþingi.