12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Mér kemur ekki á óvart að það skuli fara tvennum sögum af heiðursmannasamkomulagi sem hæstv. forsrh. hefur gert við formenn þingflokka Sjálfstfl. og Alþfl. Ég hefði satt að segja orðið undrandi á því, að einum sögum hefði farið af þeim fundi. En ég vil í þessu sambandi rifja upp eða leggja áherslu á að það er eðli heiðursmannasamkomulags, að báðir aðilar séu hreinskilnir og hreinskiptnir, báðir fái einhverja úrlausn sinna mála og umfram allt svör við brýnum og einföldum spurningum. Og það, sem liggur fyrir nú, er að við viljum fá að vita hvort ríkisstj. ætlar sér að stjórna með brbl. og reka þingið heim. Þetta er afskaplega einfalt. Hæstv. forsrh. sagði áðan að vitaskuld mundi hann svara fsp. ef þær væru bornar fram með þinglegum hætti. Ég hef ekki þessa reynstu af hæstv. forsrh.

Á þskj. 102 er fsp. til forsrh. um efnahagsráðstafanir ríkisstj. Þessari fsp. svaraði forsrh. aldrei, þótt hún væri tekin á dagskrá, þannig að ég hef þá reynslu, að það sé ekki einhlítt að fá svör við fsp. hér til forsrh. þótt þær séu bornar fram með þinglegum hætti.

Ég get í leiðinni líka þakkað hæstv. forsrh. fyrir það, að hann getur stundum verið skemmtilegur og komið manni á óvart, eins og þegar hann gaf út sérstaka fréttatilkynningu um þann mikla árangur sem náðst hefði af stefnu ríkisstj. og sýndi sig í því, að verðbólgan væri á undanhaldi. Af þessu höfðu menn gaman um allt land. Menn hafa líka gaman af þeim smámálum sem mest halda ráðh. uppteknum um þessar mundir, eins og t.d. Gervasoni eða alls konar langlokum um Helguvík.

Er Gervasoni af grundu fer

og Guðrún úr pólitík

á grynningar stjórnarbátinn ber,

hann brotnar í Helguvík.

Sannleikurinn er að sjálfsögðu sá, og það ætti hæstv. forsrh. að vera farinn að læra, að við ætlum okkur að fá hrein svör við því áður en við förum heim í jólaleyfi — (Gripið fram í: Er þessi jólavísa eftir hv. þm.?) Hún er eftir Móra. — Við ætlum að fá svör við því, hvort hæstv. forsrh. ætlar sér að stjórna með brbl. eða ekki. Svo einfalt er það.

Ég vil líka taka undir það sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson sagði hér áðan. Í fyrra töldu menn ekki eftir sér að vera á þingi í janúar. Menn töldu þá nauðsynlegt, að mynduð yrði ríkisstj. til þess að framkvæma efnahagsráðstafanir hið allra fyrsta, og menn töldu ekkert eftir sér, þm. þá, að vera til taks ef það tækist. Við erum alveg sama sinnis nú. Að vísu tókst að bjarga sæmdinni í bili, ríkisstj. komst á koppinn, en síðan hefur bara ekkert gerst. Og við viljum alls ekki að forsrh. þurfi að bíða með það að leggja sín mál fyrir þingið. Við skulum vera til taks allan tímann milli jóla og nýárs ef á þarf að halda. Það er alveg sjálfsagt að gera honum ekki ónæði, hæstv. forsrh. — Ég vil svo segja í leiðinni, af því að hann er nú varaformaður míns flokks, að hann gæti til tilbreytingar t.d. komið á þingflokksfund og sagt okkur hvort hann ætlaði að gefa út brbl. í þinghléinu.

Nei, sannleikurinn er sá, að ríkisstj. getur náttúrlega, ef hún hefur sterkan bakgrunn, ef á bak við hana er sterkt lið sem vill láta brjóta á sér, sýnt þinginu ofríki. En menn hafa orðið varir við að það eru býsna margar brotalamir í þessum stuðningsmönnum. Þeir eru reiðubúnir til þess að leggja sitt pólitíska líf undir, jafnvel fyrir franskan flökkustrák.