12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)

Umræður utan dagskrár

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Það fer ekki milli mála að viðtalið við hæstv. forsrh. í útvarpinu fyrir tveimur dögum og einnig það, sem á undan hefur gengið í sambandi við undirbúning efnahagsmála, hefur valdið nokkurri spennu á hv. Alþingi. Ég held að það sé ákaflega auðvelt að minnka þessa spennu eða láta hana hverfa með öllu með því að gefa hreinar og skýrar yfirlýsingar. Ég vitna í stefnuræðu forsrh. frá því í haust, þegar hann talaði um gjaldmiðilsbreytinguna. Hann segir:

„Hún á í fyrsta lagi að auka traust manna á krónunni.

Þegar hver króna verður hundrað sinnum meira virði en nú, þá er hún komin í hóp annarra gjaldmiðla á Norðurlöndum. En þessi hugarfarsáhrif geta því aðeins orðið að gagni, að aðrar ráðstafanir fylgi sem sannfæri almenning um að alvara sé á ferðum til þess að treysta gildi krónunnar og veita verðbólgunni viðnám. Samfara þessari breytingu hefur ríkisstj. í huga margháttaðar efnahagsaðgerðir.“

Nú liggur það ljóst fyrir af yfirlýsingum ríkisstj. að gjaldmiðilsbreytingin á að taka gildi um áramót og þá spyr ég: Hefur þá öðrum aðgerðum, sem áttu að hafa hugarfarsáhrif á fólkið í landinu, verið frestað og hversu lengi hefur þeim þá verið frestað? Eru þær þá ekki tilbúnar, eftir því sem ríkisstj. hafði ásett sér þegar þessi stefnuræða var flutt?

Annað atriði í stefnuræðunni. Þar segir: Unnið er að nýjum vísitölugrundvelli, sem ætti að geta gengið í gildi í kringum áramótin. — Ég spyr einnig að því: Er vonlaust að nýr vísitölugrundvöllur geti gengið í gildi um áramótin? Ef svör við þessu eru á þann veg, að þessar aðgerðir verði ekki til um áramót og ekki fyrr en þing kemur aftur saman, þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur af því, að gengið verði fram hjá þinginu.

Ég vil líka nefna annað mál sem er mjög knýjandi um áramót, en það er fiskverðsákvörðunin. Ástandið í útflutningsmálum og kjaramálum sjómanna er með þeim hætti, að hér verður um risavaxið vandamál að ræða. Samhliða þeim heimatilbúna vanda, sem er, fylgir einnig vandinn vegna gífurlegrar olíuhækkunar fyrir fiskiskipaflotann sem og aðra landsmenn. Það er því eðlilegt að við alþm. viljum vera þátttakendur, þegar ríkisstj. leggur fram sínar tillögur, einnig varðandi þetta atriði.

Og þá kem ég að síðasta atriðinu sem ég ætla að gera hér að umræðuefni, en þar hefur farið lítið fyrir ákveðnum mönnum að undanförnu. Framsóknarráðherrarnir, einkum tveir, hæstv. sjútvrh. og hæstv. viðskrh., hafa gefið ítrekaðar yfirlýsingar, bæði hér á Alþingi við fjölmiðla og á fundum. Hæstv. sjútvrh. sagði á fundi á Vopnafirði í september að framsóknarmenn væru orðnir órólegir yfir aðgerðaleysi ríkisstj. í efnahagsmálum og það væri því tímaspursmál hvenær Framsfl. gæfist upp á þessu stjórnarsamstarfi. Nú langar mig að spyrja þann eina ráðh. sem er hér inni í þingsalnum frá Framsfl., hvort þessir ráðh., formaður flokksins og viðskrh., sem hafa lýst óánægju sinni með aðgerðaleysi ríkisstj., séu orðnir ánægðir allt í einu og hvaða breyting hafi orðið á og sömuleiðis hvort framsóknarráðherrarnir og Framsfl., sem hefur ekkert látið frá sér heyra, er alveg eins og hann sé rænulaus með öllu í umræðum nema þegar viðskrh. er við, — hvort Framsfl. vilji gefa hér yfirlýsingu um að hann muni ekki standa að aðgerðum í efnahagsmálum í þinghléi nema þing verði þá kallað saman fyrr en annars er ákveðið. Ef þessar yfirlýsingar liggja skýrar fyrir, annaðhvort frá hæstv. forsrh., hæstv. ráðh. Framsfl. eða einhverjum framámanni í Framsfl., þá held ég að þessi spenna verði ekki nein hér í þinginu. Það er mál að svara þannig að það þurfi ekki að vera tortryggni eða spenna eins og hefur verið núna undanfarna daga og þingið geti haldið áfram að afgreiða þau mál sem nauðsynlegt er að afgreiða fyrir jól.