15.12.1980
Efri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)
155. mál, ferðagjaldeyrir
Frsm. minni hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Eins og þegar hefur komið fram klofnaði nefndin í afgreiðslu þessa máls. Við hv. þm. Lárus Jónsson skilum séráliti og leggjum til að frv. verði fellt.
Þetta mál þekkja allir og óþarft að eyða að því mörgum orðum. Ég vil aðeins benda á að við getum þess í nál., að hér sé um að ræða skattheimtu á næsta ári nálægt 2.4 milljörðum kr., sem er hluti af skattránsstefnu núv. hæstv. ríkisstj. sem leggur aukalega á þjóðina í kringum 60 milljarða kr. á næsta ári — miðað við þá útreikninga sem stjórnin sjálf gerir — umfram það sem var áður en við tók þessi vinstri stjórn. Ég vil nú eiginlega kalla þetta einu og sömu vinstri stjórnina. Stefnan er óbreytt þó að afleiðingarnar verði náttúrlega sífellt verri og alvarlegri þegar slíkt stjórnleysi og upplausn gengur yfir þjóðina.
Það er um þennan skatt sérstaklega að segja, að auðvitað er mjög óæskilegt að vera með tvöfalt gengi á gjaldmiðlinum. Það er nú einu sinni svo, að Íslendingar eru eina vestræna þjóðin sem býr við gjaldmiðil sem ekki er sæmilega gjaldgengur á erlendri grund. Við vitum það Íslendingar, að lengi hefur verið lítið á okkar peninga sem meira og minna verðlausa seðla erlendis, og ekki bætir úr skák að vera með tvöfalt gengi eða margfalt eins og hér var í eina tíð. Þetta gerir það líka að verkum, að svartamarkaður með gjaldeyri er varanlegur. Hann hefur lengi verið, en auðvitað er rétt gengisskráning það eina sem getur verið grundvöllur heilbrigðs fjármálalífs. Og það versta er kannske að nú, þegar fyrirhuguð er gjaldmiðilsbreyting, skuli síður en svo stytta upp í þessu efni. Miklu líklegra er hitt, að nýi gjaldmiðillinn verði í rauninni enn þá verðminni en sá núverandi — gagnstætt því sem haldið er fram — og að enginn muni við honum líta erlendis. Ég held að það sé alveg ljóst, að ekki er verið að styrkja gjaldmiðil Íslands, heldur að stofna til aukins öngþveitis og lélegri gjaldmiðils en við höfum nokkurn tíma áður haft.
Þess má einnig geta, að auðvitað er með öllu óeðlilegt að það séu einungis efnamenn sem geti ferðast til útlanda. Það hefur lengi verið svo, allt frá Íslandsbyggð, að ungt fólk hefur jafnan viljað geta notið þess að dveljast um tíma erlendis. Og þannig þarf það helst að vera, að menn geti kynnst sjónarmiðum annarra með dvöl í nágrannalöndum eða fjarlægum löndum, og þá eiga það auðvitað ekki að vera sérréttindi efnamanna einna að geta þetta, heldur æskilegast að öll alþýða geti leyft sér að sjá sig eitthvað um í veröldinni.
Þessir peningar, 2.4 milljarðar, eru eins og snjókorn í neðra, er mér víst óhætt að segja í þessum stól, í þessari skattheimtuhít, og ég held að það sé mjög misráðið að viðhalda þessu þegar kjör landsmanna rýrna jafnt og þétt, sérstaklega þeirra eignaminni og tekjulágu. Það er eins og alltaf sé sjálfsagt að níðast á því fólki. Það munar um þessa peninga hjá tekjulágu fólki og efnalitlu þó að forréttindamenn eða efnamenn geti vel greitt þetta. Þess vegna leggjum við eindregið til að þetta mál verði fellt, því að mælirinn er fullur.