15.12.1980
Efri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)
156. mál, tímabundið vörugjald
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég hef skrifað með fyrirvara undir nál. þar sem mælt er með samþykkt þessa frv. Það, sem ég vil sérstaklega benda á í þessu sambandi, er að hér var og er að sjálfsögðu um að ræða tímabundna ráðstöfun, en á sama tíma er ljóst að allt aðflutningsgjaldakerfi landsins þarf endurskoðunar við. Ég hef talið rétt að þetta yrði framlengt nú, en ég vil vekja athygli á því, að nauðsyn ber til þess að aðflutningsgjaldakerfið verði endurskoðað og þá um leið hvaða hlutverki vörugjald skuli gegna yfirleitt í tekjuöflun ríkissjóðs og hvernig það lagar sig að aðflutningsgjaldakerfinu almennt.
Þetta vil ég að komi hér fram vegna þess að ég tel brýnt að menn snúi sér að þessu verkefni sem alka fyrst og menn viti betur en nú hvar menn standa í þessum efnum, þó að stefnumörkun eigi sér stað. Þetta á ekki síst við með tilliti til stöðu iðnaðar í landinu og iðnþróunar sem hefur nokkuð verið til umræðu að undanförnu og gerir í raun og sannleika þeim mun brýnna að menn komi sér að þessu verki.