15.12.1980
Efri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1423)
34. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Afstaða okkar sjálfstæðismanna kemur fram í nál. sem hér hefur verið lesið. Ég þarf ekki að bæta neinu við það, aðeins hnykkja á því, að það er okkar skoðun að það þurfi að vinda sér í að endurskoða allt lífeyrissjóðakerfi landsins. Og eins og fram hefur komið hér höfum við lagt fram frv. í þessari hv. deild sem innlegg í þá tiltekt sem þarf að gera á lífeyrissjóðakerfinu.