15.12.1980
Neðri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1439 í B-deild Alþingistíðinda. (1442)

112. mál, skráning lífeyrisréttinda

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um skráningu lífeyrisréttinda. Frv. þetta var lagt fram á síðasta þingi og hlaut þar afgreiðslu frá nefnd. Mælti nefndin þá með samþykkt þess, en það stöðvaðist í meðförum deildarinnar.

Hér er um sjálfsagt mál að ræða að mínu mati. Lífeyrissjóðirnir leggja mikla áherslu á, að þetta mál nái fram að ganga, og hafa ritað nefndinni bréf um það á sama hátt og gert var á síðasta þingi. Gerði nefndin allt sem í hennar valdi stóð til þess að málið næði þá fram að ganga.

Ég tel ekki ástæðu til að rekja þetta mál frekar, vil aðeins ítreka þá einróma skoðun nefndarinnar, að frv. verði samþykkt.