15.12.1980
Neðri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)

103. mál, orlof

Sigurgeir Bóasson:

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., er að mínum dómi að mörgu leyti athyglisvert, en þó tel ég að ýmsum spurningum sé ósvarað áður en hægt er að mæla með því.

Gallarnir á núverandi kerfi eru aðallega þrenns konar, eins og greint er frá í grg. Í fyrsta lagi hefur innheimta verið seinvirk. Í öðru lagi hafa vextir á orlofsfé verið lægri en almennt gerist. Í dag eru þessir vextir 24%, en á almennum sparisjóðsbókum 35%. Í þriðja lagi fara peningarnir út úr þeim umdæmum þar sem þeirra er aflað. Þetta eru megingallarnir við núverandi kerfi.

Ef við skoðum aðeins betur þessa galla, þá er ljóst að innheimtukerfið má bæta mikið án nokkurra sérstakra breytinga. Til þessa hefur innheimtukerfið verið mjög laust í reipunum. Samkv. reglum um greiðslu orlofsfjár ber atvinnurekanda að borga orlofsféð fyrir 10. næsta mánaðar, en hins vegar eru engin ákvæði um það, hvað gerist ef atvinnurekandinn gerir það ekki, gagnstætt því sem er um flest útgjöld fyrirtækja. En það eru, eins og öllum er kunnugt, ákvæði um það, að ef útgjöld eru ekki innt af hendi á gjalddaga, þá koma til dráttarvextir. Það segir sig sjálft, að þetta hefur leitt til þess að fyrirtækin dragi að greiða orlofsfé. Þetta eru kannske einu útgjöldin sem ekki eru háð dráttarvaxtareglunum. Þarna hefur verið klaufalega að staðið. Reyndar skilst mér að nú séu einhverjar breytingar fyrirhugaðar á þessum málum, með því að endurskoða eftir á hvernig greiðslum frá einstökum fyrirtækjum hafi verið háttað, þannig að tryggt sé að allir launþegar fái rétta vexti. Þetta er spor í rétta átt, en auðvitað hefði verið eðlilegt að setja í upphafi þær reglur, að fyrirtæki, sem borga ekki sitt orlofsfé á réttum tíma, borgi dráttarvexti, eins og gert er t.d. með greiðslur á lífeyrissjóðsgjöldum.

Í öðru lagi er spurningin um vextina, hvers vegna þeir eru 24% þegar almennir sparisjóðsvextir eru 35%. Ég kann ekki svar við þeirri spurningu. Mér skilst að þessir peningar séu ávaxtaðir í Seðlabankanum og mismunur á þeim vöxtum, sem þar fást, annars vegar og kostnaði Póstgíróstofunnar hins vegar ættu að vera þeir vextir sem hægt er að greiða orlofsþegum. Þessa vexti þarf auðvitað að hækka.

Hins vegar verður því ekki neitað, að núverandi kerfi hefur marga kosti, sérstaklega þá, að þarna er allt skráð á einum stað. Í því fyrirtæki, sem ég starfa við, eru launamiðar þrisvar sinnum fleiri en fjöldi starfsmanna er að meðaltali. Við byggjum mikið á aðkomumönnum, sem vinna kannske tvo mánuði hjá okkur, en fara síðan á einhvern annan stað og síðan þriðja staðinn. Þetta þýðir auðvitað að þessir menn fengju tvær, þrjár eða fjórar sparisjóðsbækur, ef farið yrði eftir þeim reglum sem hér eru lagðar til. Mér sýnist augljóst að ef þetta fyrirkomulag yrði tekið upp, þá mundi pappírsfarganið aukast í kringum orlofskerfið.

Hins vegar er kjarni málsins auðvitað þessi: Eru bankarnir tilbúnir að taka þetta amstur að sér og borga hærri vexti en Póstgíróstofan? Ef þeir eru tilbúnir til þess, þá eigum við að breyta þessu, annars ekki.